Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.06.1993, Side 2

Fréttir - Eyjafréttir - 16.06.1993, Side 2
2 Miðvikudagur 16. júní 1993 Mikið áfall þegar blindan uppgötvaðist -en í erfiðleikum okkar höfum við fengið ómetanlegan stuðning segja foreldrar Daða Þórs sem fæddist þremur mánuðum fyrir tímann. Daði I*ór með forddrum sínum, Sigríði og Páli. Flestum þykir nóg um að koma í hciminn eftir 40 vikna mcðgöngu enda viðbrigðin mikil, að yfirgefa hlýjan og notalcgan móðurkvið og líta í fyrsta skipti heiminn fyrir utan. Daði ]>ór Pálsson, scm fædd- ist þann 27. október 1992, varð þessa niunaðar ekki aðnjótandi, að dvelja 40 vikur í móðurkviöi.' Móðir hans, Sigríður Finarsdóttir, hafði aöcins gengið með hann í 24 vikur þegar hann fæddist. I>á var Daði I>ór aðeins rúmar 3 merkur og 34 sentímetrar og strax hófst barátta hans fyrir lífinu. Hann varð ofan á í þeirri haráttu og þó ennþá vanti nokkuð á að hann hafi náð sömu þyngd og jafnaidrar hans cr hann ágætlcga kröftugur og lætur til sín heyra þegar þurfa þykir. En Daða I>ór vantar þó eitt sem flestir njóta, hann er hlindur. Það uppgvötvaðist ekki fyrr cn tveimur mánuðum eftir að hann fæddist en eftir aðgerð á öðru auga í Bandaríkjunum er foreldrum hans gcfin von um að hann muni sjá útlínur og mun á nótt og degi. Allt hefur þetta reynt mjög á fjöl- skylduna en með hjálp góðra manna hcfur henni tekist að halda þetta út, bæði andlega og fjárhags- lega. Daði Þór er minnsti drcngur sem lifaó hefur af fyrirburð á Islandi að sögn foreldra hans, Sigríðar og Páls Pálssonar. Fæðingin var komin af stað þegar Sigríður var send til Reykjavíkur og á Landspítalann. Þar fékk hún heldur kuldalegar móttökur. „Þegar ég kom inn á spítalann tók læknir á móti mér. Hann hlustaði mig og setti mig í sonartæki og sagói svo að þetta væri vonlaust. Þennan læknir sáum við aldrei aftur og við vitum ekki hver hann er,“ sagói Sigríður. Þó móttökumar hafi ekki verið á þann hátt sem flestir kjósa þegar komið er á sjúkrahús áttu aðrir læknar eftir að bæta það upp. Daði Þór var strax settur í hitakassa og lungnavél og losnaði ekki þaðan í nokkrar vikur. Hann fór Ójótlega að dafna enda hraustur að öðru leyti en því aó lungun höfðu ekki náð að þroskast nægilega. „Honum var gefið lyf, sem nýlega var búið að leyfa hér á landi, og eykur lífslíkur fyrirbura um 40%. Auðvitað hjálpaði þaó til en það voru fyrst og fremst læknamir á vökudeild Landsspítalans sem björguðu lífi Daða Þórs,“ sagði Sigríður. Tíminn leið og þegar Daði Þór var tveggja mánaða átti að útskrifa hann af spítalanum en þá kom stóra áfailió. „I síðustu skoðun áóur en hann færi út kom í Ijós að hann var blindur. Það var ofboðslegt áfall, ekki bara fyrir okkur heldur læknana líka. Allt var sett af stað og eftir skoðun á Landa- koti var haft samband við dr. Eugene De Juan í Baltimore í Banda- ríkjunum, einn færasta augnskurð- Iækni í heimi, sem var tilbúinn að skoða Daða Þór. Við fórum til Bandaríkjanna 5. maí og var læknir í fylgd með okkur,“ sagði Páll. Daði Þór var skorinn upp á hægra auga. Augasteinninn var tekinn úrog nethimnan sem lá laus í augn- botninum lagfærð. „Aðgerðin heppn- aðist mjög vel og átti að senda okkur heim til Islands samdægurs en ís- lenski læknirinn stoppaói það. Lá Davíð Þór því í nokkra daga á sjúkra- húsinu í Baltimore og fannst Bandaríkjamönnum að Islendingar hugsuðu vel um sitt fólk.“ Þó aðgerðin hafi heppnast vel kemur ekki í Ijós fyrr en í næsta mánuði hvort hún hefur heppnast eða ekki. Spurningin er hvort nethimnan festist eða ekki. Björtustu vonir eru að Daði Þór fái útlínusjón en tíminn verður að lcióa það í ljós. Heppnist aðgerðin fara þau aftur út í haust og þá verður gerð aðgerð á vinstra auganu. Þetta hcfur verið mikió álag fyrir fjölskylduna og kostað háar fjár- hæðir. Tryggingastofnun greiddi farið út fyrir Daða Þór og annaó foreldrið og dagpeninga en þau fóru bæði út og þaö uröu þau að borga sjálf. Auk þess hafa tugir þúsunda farió í ferðir milli lands og Eyja. „í tilfellum sent þessum finnur maóur hvað gott er að búa á stöðum eins og Vestmannaeyjum. Við höfum notið bæði andlegs og veraldlegs stuðnings sem verður seint fullþakkaður. Hann hefur gert okkur kleift að vera með Daða Þór og það er afskaplega mikils virði að finna að allir fylgjast meó þegar eitthvað ber útaf í tilfelli eins og okkar þó það sé kannski ókostur þcgar maður er að gera eitthvað af sér,“ sagói Páll. En bæói vildu þau koma á framfæri kæru þakklæti til allra sem létt hafa þeim róðurinn síðustu átta mánuðina. Auðvitað er baráttunni ekki lokið. Daði Þór er orðinn 5 kíló og vantar ennþá rúm 3 kíló til að ná jafnöldrum sínum en hann dafnar vel. Hann fær reglulega sjö meðul en þeim fækkar smám saman en stóra spumingin er hvað mikla sjón hann fær? Daði I>ór Pálsson var aðcins rúmar þrjár merkur þegar hann fæddist þremur mánuðum fyrir tímann. * Aðalfundur Isfélagsins á föstudag: Hagnaður fyrstu fjóra mánuði ársins Aðalfundur ísfélags Vcstmannaeyja hf. verður haldinn á föstu- daginn og þá verða lagðir fram reikningar félagsins fyrir árið 1992. Sigurður Einarsson, forstjóri Isfélagsins, vildi ekkert tjá sig um út- komuna á síðasta ári. Sagói að hún upplýstist á aðalfundinum. Blaóið hefur fyrir því áreiðanlegar heimildir að hagnaður hafi verið af rekstri Isfélagsins fyrstu fjóra mánuði þessa árs. Sigurður sagði þetta rétt vera en á móti kæmi að haustið hefði verið fyrirtækinu þungt í skauti. S UMARÞANKAR Stefnumörkun skortir Það er ekkert sem jafnast á við sumar í Eyjum, það er yndislegur tími. A meóan flest önnur bæjarfélög lcggjast í dvala yfir sumarið, blómstrar þessi fallega grænkollótta eyja okkar. Það er með ólíkindum þvílíkunt stakkaskiptum bærinn tekur þessa fjóra niánuói. Hingaó flykkjast skólakrakkar, hér er Pæjumót, Shellmót, árgangsmót og Guð má vita hvað, og svo auðvitað allir túristamir. Það er skammt stórra högga á milli hjá íþróttafélögunum. Pæjumót Þórs fór fram með glæsibrag um helgina, Flugleióamótið í goifi er ný afstaðið og Shellmót Týs fer fram í næstu viku. Svo styttist í lunda- veiðina (ég missi nú reyndar alltaf af henni sökum lofthræðslu) og að sjálfsögðu hápunkt sumarsins, Þjóðhá- tíðina, sem allt stefnir í að verði stór í sniðum (en henni missi ég aldrei af). Lykillinn að öllum þessum ferðamanna- iðnaði eru góðar samgöngur, sem aldrei hafa verið betri. Er hægt að biðja um meira? Jú, kannski aðeins meiri sól, takk fyrir. I fyrra varð nokkur umræða um ferðamannaþjónustu í bænum, en hér er vinnur hver höndin upp á móti annarri og hér skortir algjörlega stefnu- mörkum af hálfu bæjaryfir- valda. Það er sannfæring mín að það væri hægt að standa miklu betur að þessum mál- um, en þá þarf að slíðra sverð- in og vinna saman. Það er ekki hægt að fóma miklu betri ferðamannaþjónustu á altari sundrungar og samvinnu- leysis. Hér þurfa bæjaryfir- völd að taka af skarið. Vís-undur Almenningur í Eyjum er hættur að nenna að fylgjast með bæjarpólitíkinni. Þaó virðist vera afskaplega tíð- indalaust á þeim vígstöðum. Bæjarstjómarfundir ekki einu sinni auglýstir í bæjarblöð- unum, fundimir renna í gegn án nokkurra átaka og það telst undantekning að sjá bæjarfull- trúa rita pólitískar greinar. Hins vegar má búast við því að Eyjólfur hressist því nú er tæpt ár í næstu bæjarstjómar- kosningar. Það fer ekki á milli mála að þeir bæjarfulltrúar sem hafa staðið hvað lengst í þessu, virðast vera orðnir afskaplega leiðir á pólitískum þrætu- 2 2eplum, og því má fastlega búast við nokkurri upp- stokkum hjá fiestum fiokk-unum í hæstu kos- ningum. Þorsteinn Gunnarsson.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.