Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.06.1993, Side 10

Fréttir - Eyjafréttir - 16.06.1993, Side 10
10 Miðvikudagur 16. júní 1993 Sextíu og þrír í vinnu hjá Áhaldahúsinu Hafa aldrei veríð fleiri ✓ segir Elías Baldvinsson, forstöðumaður Ahaldahússins. Hjá Áhaldahúsinu vinna nú 63 og hafa þeir aldrei verið fleiri að sögn Elíasar Baldvinssonar for- stöðumanns. Flestir eru að vinna við hreinsun og fegrun Heimaeyjar sem á að vera eins og kornabarn nýkomið úr baði að henni lokinni að sögn Elíasar. „Flestir eru að vinna í kringum Eldfellið, að sá og hreinsa, taka niður trönur og koma spírunum upp í fjallið og gera ýmsar aðrar aðgerðir til að verja okkur vikurfoki næsta vetur. Þá er unnið af krafti að undirbúa mal- bikun, lagningu og viðgerð á gang- stéttum, mála umferðarmerki og lengja holræsið út af Eióinu þannig að það verði undir sjávarmáli," sagði Elías. Hreinsun er í fullum gangi út um alla eyju og í Herjólfsdal er unnið að því að endurbæta tjaldstæói og að- búnað fyrir tjaldgesti. „Þetta er svona þaó helsta og þegar þessu lýkur á Heimaey að verða eins og komabam nýkomið úr baói. Þannig viljum vió hafa eyjuna okkar og þannig skal hún verða.“ Þegar flugvélar lenda til austurs blasir svæðið í kringum Norðurgarð við farþegum. Þar er mikið af allskyns drasli sem stingur í augu á annars fallegum stað. Enn brotnar rúður í Barnaskólanum: Orðið mjög alvarlegt mál -segir Jóhannes Olafsson settur yfirlögregluþjónn. Helgin var mjög róleg að mati lögreglu og töldu þeir það eðlilegt að allt væri á rólegri nótunum helgina eftir Sjó- mannadag. Þaó eina sem skyggði á yoru rúðubrot í Bamaskólanum. Á að- faramótt laugardagsins uppgvötvaóist að fimm rúður voru brotnar í skólanum. „Þctta mál er enn óupplýst en nienn hljóta að fara að líta það mjög alvarlegum augum þcgar rúður eru brotnar um hverja hclgi. Sér- staklega eru það Barnaskólinn og íþróttamiðstöðin sem hafa orðið fyrir barðinu á skemmdar- vörgunum. Rúðumar skipta orðið tugum og tjónið má mæla í tugum ef ekki hundruðum þúsunda króna. Það verður að bregðast við þessu með einhver- jum hætti svo þessu linni," sagói Jóhannes Olafsson scttur yfirlög- regluþjónn í samtali við FRÉTTIR. Nýjung í skcninitanalífi Eyjanna: Ákveðið hcfur verið að Herjólfur fari i kvöldsiglingu laugardaginn 3. júlí n.k. í tilefni af goslokaafmælinu. Áætlað er að farið verði frá Bása- skersbryggju á milli 7 til 8 um kvöldið. Um borö verður boðið upp á siglingu með skipinu út á hafió bláa og verður framreiddur sérstakur Frainhaldsskólinn í Vcstmannacyjum: Endurbótum á núverandi húsnæði á að ljúka fyrir haustið -gert er ráð fyrir að bjóða verknámsálfuna út í haust. Næstu daga verður boðin út lagning á nýju hitakerfi í Fram- haldsskólann og endurbætur á neðstu hæð skólahússins. Á þessum framkvæmdum að Ijúka áður en skólastarf hefst í haust. Þá er gert ráð fyrir að í haust verði boðin út nýja verknámsálfan og er gert ráð fyrir að hún verði steypt upp næsta sumar. Olafur Hreinn Sigurjónsson, skóla- meistari, segir að ekki veiti af að fara byrja á því sem gera á í sumar. „Það er ekkert farið að gera ennþá, en tíminn líður og helst vildi ég hafa hita á þegar skólinn byrjar í haust. En vonandi gengur verkið rösklega þannig að breytingum á neðstu hæðinni og lagningu á nýju hitakerfi ljúki áður en skólinn byrjar í haust,“ sagði Olafur. Ekki liggur fyrir hvenær verk- námsálman verður tekin í notkun en hún verur boðin út í haust. „Hún veróur steypt upp næsta sumar og kannski verður hægt að taka véla- salinn í notkun haustið 1994, en hvort það tekst verður samt að koma í ljós,“ sagði Olafur að lokum. kvöldverður með tilheyrandi veigum. Um borð verður hljómsveit og veróur slegið upp dansleik að kvöldverði loknum. Aætlað er að Ijúka herleg- heitunum milli klukkan 1- og 2 um nóttina. Magnús Jónasson, framkvæmda- stjóri, segir að um miðja næstu viku verði farið að selja miða í siglinguna og er miðafjöldi takmarkaður. „Af hálfu útgerðar Herjólfs er þetta gert til reynslu og ef vél tekst til er hug- myndin sú að oftar verði efnt til slíkra ferða,“ sagði Magnús. * Oskar ljósmyndari: Myndirnar voru komnar þegar greinin birtist Ijós- myndari, var langt frá því að vera ánægður með skrif, Guðmundar Tómassonar í síðustu viku. Segir hann að þar hafi verið vegið að atvinnuhciðri sínum og sér finnist miður að hafa ekki fengið að bera hönd fyrir höfuð sér. Óskar segir það rétt vera að vegna bilunar hjá sér hafi orðið seinkun á því að hann afgreiddi myndimar og við því hefði hann ekkert getað gert. „Guðmundur kom til mín á föstudaginn 4. júní og þá sagði ég honum að ég færi til Reykjavíkur á mánudaginn í síðustu viku og kæmi til baka meó mynd- imar á miðvikudaginn. Það stóðst og vom þær því tilbúnar til af- hendingar þegar greinin kom í blaðinu," sagði Óskar. Það er rétt hjá Óskari, að hann er borinn mjög alvarlegum ásökunum í greininni og verður Guðmundur að standa fyrir máli sínu sjálfur. A FRÉTTUM er sú regla höfð í heiðri að birta aðsendar greinar, svo framarlega sem þær birtast undir nafni. Þaó verður þó að viðurkenn- ast, vegna umræddrar greinar, að skilyrðislaust hefði blaðið átt aó hafa samband við Óskar og bera efni hennar undir hann. Þá hefói komið í Ijós að birting hennar var óþörf. Það fórst því miður fyrir og er Óskar beðinn velvirðingar á því. O.G. NÝTT BÍLAUMBOÐ Hafnareyri hf. tók við umboði fyrir Toyota bifreiðar fyrir skömmu. Leifur Leifsson og Jóna Björgvinsdóttir keyptu fyrsta bílinn og fengu blóm við það tækifæri frá Sigþóru Björgvinsdóttur og Kristbjörgu Grcttisdóttur, eigendum Hafnareyrar.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.