Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.06.1993, Qupperneq 7

Fréttir - Eyjafréttir - 16.06.1993, Qupperneq 7
Miðvikudagur 16. júní 1993 7 ORÐSPOR Páll Helgason varö sextugur 14. júní síöastliðinn. Og eins og hans var von og vísa gerði hann eitthvað óvenjulegt í tilefni dagsins. Hann skrapp til Honul- ulu á Hawai ásamt bróður sínum, Sigtryggi, til að halda uppá afmælis- daginn. Ástæðuna fyrir því að Páll fór þangað í tilefni þessara tímamóta, fyrir utan faliegar konur, er sú að sögn Sigtryggs, að 10 kiukkústunda tímamunur er á Vestmannaeyjum og Honul- ulu og Páll varð því 59 ára 10 tímum lengur. Martin hæstur. Martin Harris Avery, Ástralíumaður sem búsettur er í Eyjum og lauk II. stig við Stýrimannaskólann i Vestmannaeyjum í fyrra með miklum glæsibrag, lauk III. stigi við Stýrimannaskólann í Reykj- avík nú í vor með hæstu eink- unn, 8,68. Og það sem meira er. hann hlaut einkunina 10 í íslensku. Flugleiðir til Barcelona. Síðastaliðinn laugardag hófu Flugleiðir áætlunarflug til Barce- lónu á Spáni. Halldór Blöndal samgönguráðherra opnaði flug- leiðina formlega þar á flugvellin- um. Flugleiðamenn segja vax- andi áhuga efnaðra Spánverja á ferðum til norðurslóða og þessi áfangastaður þvi bæði heppileg- ur gagnvart þeim, einnig sé Bar- celóna mjög miðsvæðis, steinsnar til margra áhugaverðra ferðamannastaða, auk þess sem borgin sjálf iðar af lífi og sé auðveld ferðamannaborg. Flug til Barcelónu kostar frá kr. 30.900 fyrir mann og er þá gert ráð fyrir 21 dags bókunarfyrir- vara, 6 daga lágmarksdvöl og mánaðar hámarksdvöl. Slæmur fjarhagur. Það hefur ekki farið fram hjá neinum sem með íþróttum fylgjast, að fiár- hagsstaða handboltadeildar IBV er bág. Stefán Jónsson fyrrver- andi formaður ráðsins upplýsti í viðtali við Fréttir fyrir skömmu að skuldir ráðsins væru um 7 mill- jónir króna. Nú er að koma á daginn að þær eru nær því að vera helmingi meiri. Hásteinsvöllur. Fyrsti leikur- inn sem fram fer á nýendurbætt- um Hásteinsvelli, verður leikur ÍBV og Þórs fimmtudaginn 24. júní. Tómstundaráð hefur ákveðið að knattspyrnulið IBV karla og kvenna fái að leika alla sína heimaleiki á vellinum það sem eftir er sumars, auk þess sem liðin fái einnig eina æfingu á vellinum fyrir leik. Knattspyrnu- ráð karla er ekki ánægt með þessa úthlutun, finnst að kven- fólkið geti notað Helgafellsvöll- inn, svo karlaliðið geti þeirfengið fleiri æfingar á Hásteinsvellinum. Verkakvennafélagið Snót felldi sem kunnugt er kjarasamn- inga ASÍ og VSl á dögunum. Félagið hefur nú leitað til Bæjar- stjórnar um viðræður um gerð nýs kjarasamnings. Var bæjar- stjóra og bæjarritara falið að leggja fram drög að samkomu- lagi fyrir næsta bæjarstjórnarf- und. Áfengisvarnaráð sem skipað er Ólafi Gránz, Birgi Guðjóns- syni, Jennýu Jóhannsdóttur og Ævari Þórissyni, tók nýlega fyrir erindi frá Inga B. Erlingssyni um leyfi til vínveitinga að Bárustíg 1, undir nafninu Muninn. Nefhdin gat fyrir sitt leyti fallist á leyf- isveitinguna, enda verði það í samræmi við breytingu á reglu- gerð um sölu áfengis og í sam- ræmi við önnur útgefin leyfi. i auglýsingar \ Tapað fundið Blár gallajakki tapaðist á Shell þvottaplaninu í síðustu viku. Finnandi vinsamlega hafi sam- band í síma 13075, Hrund. Til leigu eða sölu 3ja herbergja íbúð á góðum stað i bænum til leigu eða sölu. Sjón er sögu ríkari. Laus innan viku. Upplýsingar í síma 12702. Barnarimlarúm Til sölu nýlegt barnarimla- rúm. Einnig göngugrind. Upplýsingar í síma 12695, Lóa. Til sölu Til sölu Diamond Excplosive fjal- lahjól, 21. gíra. Selst ódýrt. Upplýsingar í síma 12325. Bíll til sölu Til sölu Oldsmobile Cutler Sutr- eme Grougham, árgerð 1980. Hvítur að lit. Mjög vel með farinn. Ekinn 119 þúsund kíló- metra. Upplýsingar í síma 11586, ívar, eftir klukkan 18:00. ATHUGIÐ ATHUGIÐ ATHUGIÐ Reglubundnir flutningar milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur. Vörumóttaka okkar í Reykjavík er hjá LANDFLUTNINGUM H.F. SKUTUVOGI8 REYKJAVIK, SIMI91 - 685400. HenryÁ. Erlendsson, s:98-12217 og 985-32465, SigmarPálmason, s:98-11919 og 985-34485 Hörður Ingvarsson, s: 11136 og 985-22136 FLUTNINGAR FLJOT OG GOÐ ÞJÓNUSTA LfíNDFLUTN/NGfíR % FLUTNINGAR Skútuvogl 8 Sírnk685400 tlKSH Jíátíðardagskrá kpe nrí ttindadagsins 19.júnL HL CaugarcCag, 19. júní IjL 17.00 stencíur Jafnréttisnefnd Vestmannaeyja fyrir hátíðardagskrá í ‘JéCagsheimiíinu. Zlnnur (Dís Sfaptadóttir mannfrceðingur, fjaCCar um Cíf og störf fvenna í ísCensfum sjávarpCássum auf þess semfjöCBreytt tónCistaratriði verða í boði. SíCCir veCkomnir jafnréttisnefnd Jestmannaeyja. í'KoCrassa króíjríðandi og MSert. JónCeikar verða fiaCdnir í JéCó nk. Caugardag kf. 21.00 - 23.30. Zlm tóntistarfCutning sjá hinar geysivinsceCu fcCjómsveitir dfpCrassa kjókjíðandi og ClCbert. Ströng gcesCa verður á staðnum og að sjáCfsögðu aCgert áfengisbann. Jððgangseyrir kj- 300,-. JáCdurstakmarki 13 ára og eCdri. Jafnréttisnefnd Vestmannaeyja. ‘KvennahCaup. ‘Kvennaf.Caupið verður 19. júní og fefst við íþróttamiðstöðina kf. 14.00. ‘ÞátttökugjaCd er 300 kj. og eru boCur og verðCaunapeningur innifaCdir í þátttökugjaCdinu. Skjáning fer fram Bjá ‘Bimu í síma 12687 og Oddnýju í síma 12633. ZUMj'Óðinn stendur fyrir BCaupinu. Tómstunda- og íþróttafuCCtrúi. Margt hefur veríð reynt til að koma grasi í hlíðar Eldfellsins. Ein aðferðin var sú að nota spírurnar úr trönunum á Haugasvæðinu, festa þær niður í fellið, spírurnar halda síðan í sér raka sem grasið fær að njóta og skýla veik- burða nýgræðingnum í uppvextinum. Þegar þær morkna verða þær að jarð- vegi. Eins og myndin sýnir er gras þegar tekið að spretta á milli spíranna og gefur vonir um að takast megi að græða Eldfellið upp. ELIZABETH ARDEN kynnir: ! Föstudaginn 18. júní verður kynning á ELIZABETH ARDEN snyrtivörum í MIÐBÆ. ; Kynntar verða ýmsar nýjungar, m.a. nýja CERAMIDE rakkremið og nýir augnskuggar og kinnalitir. ! Kynningartilboð: 50% afsláttur aföllum ELIZABETH ARDEN augnskuggum og kinnalitum. ! Peir sem kaupa fyrir 3.000,- kr. fá \ ELIZABETH ARDEN augnskugga ; eða kinnalit í kaupbæti. ! Líttu við og fáðu ! leiðbeiningar og sýnishorn. i Verslunin jmm&R \ Miðstrœti 14 Vestmannaeyjum

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.