Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 22.07.1993, Qupperneq 8

Fréttir - Eyjafréttir - 22.07.1993, Qupperneq 8
Mcistaramót Golfklíibbs Vestmannacyja: Þorsteinn og Jakóbína sigruðu með glæsibrag Jakóbína var öruggur sigurvcgari í meistaraflokki kvenna. iMrstcinn Hallgrímsson stóð svo sannarlcga undir væntingum á Mcistaramóti Golfklúhbsins scm stóð frá miðvikudcgi til laugardags í síðustu viku. Var hann 17 höggum á undan næstu mönnum í meistaraflokki og Jakóbína Guð- laugsdóttir var öruggur Bogart gallafatnaður Á Þ J ÓÐHÁTÍ ÐINNI Gallabuxur, (11o^ 1nið.°^ Htir Barnagallabuxur ■ útvíðar kr. 3.400,- ■ Ókeypis bolir fylgja öllum Bogart gallafatnaði VERSLUNIN Miðbær iMIÐSTRÆTI ■ * Fríða Dóra, Asta og Sigrún, þreyttar en ánægðar að loknu mótinu. sigurvcgari í meistaraflokki kvcnna. 11. flokki karla vann Haf- liði Ingason, í 2. flokki, Birkir I. Guðmundsson og í 3. Gylfi Harðar- son. I 1. flokki kvcnna varð Fríða Dóra Jóhannsdóttir öruggur sigur- vegar og hafði 8 högg á næsta mann. Veðrið hafði sín áhrif á árangur á mótinu. Fyrsta daginn var mjög gott veður en á fimmtudag og föstudag blés hann hraustlega á austan og hafði það sín áhrif á spilamennskuna en á laugardaginn voru aðstæður eins og best verður á kosið, léttur andvari og bjart. Veðrið lék Þorstein grátt en fyrsta og síðasta daginn lék hann eins og engill. Fór hann 18 holumar á 69 höggum báða dagana sem er höggi undir pari vallarins.sem er 70. Annan daginn fór Þorsteinn á 78 höggum en vegna veðurs var erfiðleikamat vall- arins 73 og þriðja daginn 74 en þá þurfti hann 75 högg til að komast hringinn, en samanlagður höggafjöldi hjá honum var 291 högg. Keppmn um 2. sætið var æsi- spennandi. Síðasta daginn hafði Júlíus Hallgrímsson eitt högg á Sig- þór Oskarsson en Sigþóri tókst að vinna það upp og vom þeir jafnir á 308 höggum. í bráðabana hafði Sig- þór betur og hafnaði í öðm sæti en Júlíus varð að sætta sig við þriðja sætið. Jakóbína náði að tryggja sér sigur t meistaraflokki kvenna með góðum endaspretti. Sanitals sló hún 348 högg en Sjöfn Guðjónsdóttir varð önnur á 352 höggum og Sigurbjörg Guðnadóttir þriðja á 374 höggum. í 1. flokki karla komu Sigurjón Adolfsson og Hafliði Ingason inn á jafnmörgum höggum, 316 og hafði Sigurjón betur í bráóabana. Sævar Guðjónsson varð 3. á 325 höggum. I 1. flokki kvenna var Fríða Dóra ótvíræðursigurvegari. Lék hún á 416 höggum, Sigrún Oskarsdóttir varð önnur á 424 höggum og Asta Finnbogadóttir þriðja á 439 höggum. í 2. flokki vakti athygli árangur Birkis Guðmundssonar sem er aðeins 17 ára. Hann sigraði örugglcga á 333 höggum, Jóhann Pétursson var annar á 337 höggum og Haraldur Oskars- son þriðji á 340. Gylfi Harðarson sigraði í 3. flokki á 363 höggum, Andrés Sigmundsson annar á 370 höggum og Guðjón Agúst Gústafsson þriðji á 372 höggum. Ef miðað er við meistaramótið í fyrra er skorið núna lélegt og á veðrið sinn þátt í því. I fyrra vannst mcistaraflokkur karla á 293 högg og þurfti bráðabana til að skera úr um I. sætið og sá sem var í 3. sæti fór á 294 höggum. I’orstcinn Hallgrímsson Vcstmannacyjamcistari í golfi: / Stefni á Islandsmeistaratitilinn „I>að sem cinkcnndi Vestmanna- cyjamcistarmótið að þcssu sinni var óvenju lélegt skor, enda var veður slæmt á 2. og 3. degi en ég get ckki verið annað en ánægður með minn árangur og það er gaman að ná því að verða Vestmannaeyja- meistari,“ sagði Þorsteinn Hall- grímsson eftir mótið. Næsta vcrkefni er landsmótið sem hefst á þriójudaginn og lýkur á föstu- daginn og þar á hann góða möguleika á að komast á verðlaunapall. Hann er í I. til 2. sæti í stigakeppninni ásamt Sigurjóni Amarssyni frá Reykjavík með 233 stig en sá í þriðja sæti er með 216 stig. Arangur Þorsteins í stigamótunum er frábær, af fimm mótum hefur hann unnið tvö, tvisvar verið í þriója sæti og einu sinni í 4. „Ég á góóa möguleika á að verða stigameistari en ég stefni á Islands- meistaratitilinn. Landsmótið klárast á föstudaginn og vonast ég til að komast heim um kvöldið og ná brenn unni á Þjóðhátíðinni. En ég er á- kveðinn í að láta þjóhátíðina ekki trufla mig eins og stundum áður, ein- beita mér að því að spila og ná sem bestum árangri. Næsta verkefni þar á eftir er Norðurlandameistaramótið í Finnlandi, 14. og 15. ágúy og þar höfum við titil að verja,“ sagði Þor- steinn Hallgrímsson sem er að leika sitt langbesta timabil til þessa. Hann er orðinn fastamaður í landsliðinu og er með 0 í forgjöf sem er langbesti árangur sem Eyjamaður hefur náð í golfíþróttinni til þessa. Þorsteinn Hallgrímsson lék á einum undir pari vallarins, tvo daga í Vestmannaeyjameistara- mótinu. Hér horfir hann á eftir boltanum á 7. braut síðasta keppn- isdaginn. - /

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.