Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 22.07.1993, Síða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 22.07.1993, Síða 11
Fimmtudagurinn 22. júlí 1993 7 S'K'TPl') /t 'ISJl/t'WD'í ‘Tfáe&tc&at&an' £éott<ast 'te^*tá£c£ast ^cittast foft&t ^fécíá&ttcícetct. SmtaÁm PjÁÍ- (tÁiÁÁmmhddl þá pktudeji. Seum yiía mðtil oy áeíwi /4 Cauyamfap: Std&teíátun Cccttdt mmnmm éantötCurtt Ccx^é ]SAc\Acx Skólavegi 1 Ragnar Óskarsson og Ólafur Lárusson fá svör við spurningum sínurn: Guðjón ódýrari en Arnaldur Ragnar Óskarsson (G) og Ólafur Lárusson (D) lögu fram fyrir- spurnir um ýmsa kostnaðarliöi í stjórnunarkostnaði bæjarins og samaburð á honum á þessu og síðasta kjörtímabili. Fyrirspurn Ragnars tengist tillögu sjálfstæðis- manna um að fækka bæjarfulltrúm úr níu í sjö, sem hann telur aðför að lýðræði í stjórnarháttum bæjarfélagsins. Vill Ragnar fara aðrar leiðir í spar- naði og eru fyrirspurnir hans í tengslum við þær. Fyrirspurnir Ólafs koma svo í framhaldi af fyrirspurnum Ragnars. Fyrirspum Ragnars var í fjórum liðum. í fyrsta lagi hvað starfsmenn bæjarsjóðs, sem hvorki eru kjömir bæjarfulltrúar né nefndarmenn höfðu í nefndarlaun fyrstu sex mánuði þessa árs. Svarið er 238.247 krónur. Hann vildi fá að vita hvað starfsmenn bæjarins hafa haft í bílastyrk á sama tíma og reyndist hann tæplega 3,6 milljónir. I þriója lagi vildi Ragnar fá að vita hver laun bæjarstjóra voru umfram föst laun og voru þau 19.409 kr. Að síðustu vildi hann fá að vita hvað það hefur kostað bæjarsjóð að reka sérstaka stjóm Sorpeyðingar- stöðvar og reyndist hann 63.546 frá september 1992 til júníloka 1993. Ólafur bað um svör við sex spumingum. Fyrsta spumingin var hver nefndarlaun allra erribættis- manna bæjarins eru, hvort sem um bæjarfulltrúa er að ræða eða ekki og reyndust þau vera 663.032 krónur. Þessi spuming Ólfas beinist sennilega að Guðmundi Þ.B. Ólafssyni (A), tómstunda- og íþróttafulltrúa bæjarins og bæjarfulltrúa og skýrir að hluta mismuninn á svömnum sem hann og Ragnar fá við fyrstu spum- ingunum. Þá vill Ólafur fá samanburð á nefndarsetu Amaldar Bjamasonar, fyrrum bæjarstjóra á ámnum 1988 til 1990 og GuðjónsHjörleifssonar, nú- verenda bæjarstjóra á árunum F990 til 1992. Þar hefur Amaldur vin- ninginn með 210 fundi á móti 68’ fundum Guðjóns. Á núvirði er mis- munur í nefndarlaunum bæjarstjór- anna 346.717 krónur. Ólafur vildi fá nánari upplýsingar um kostnað við stjómun bæjarins á síðasta kjörtíma- bili. Þá vom hcildarlaun bæjarfulltrúa 43,6 milljónir og Ragnar Öskarsson þáði 2,4 milljónir í laun sem á- heymarfulltrúi í bæjarráði. Síðasta spumingin var, hver spamaður væri með fækkun stjóma og nefnda og er hann áætlaður 1,8 til 2,9 milljónir á ári. Þessum fyrirspumum var svarað í bæjarráði á mánudaginn en umræða um þær fer fram í bæjarstjóm í dag og þá kemur tillaga sjálfstæðismanna um fækkun bæjarfulltrúa til seinni umræðu. Viltu fá FRÉTTIR sendar heim fyrir hádegi á fimmtudögum? Ef svo er þá er kjörið að gerast áskrifandi. - Blaðið fer í útburð kl. 10:00 á firfimtudagsmorgnum og er komið heim til fólks fyrir hádegi. Og hvað er betra en FRÉTTIR með hádegismatnum. - Áskriftarsíminn er 13310. Áskriftarverð er það sama, hvar á landinu sem fólk býr - 800 kr. og innheimtist annan hvern mánuð. Æskilegasti greiðslumáti áskriftargjalda er greiðslukort. Léttið blaðburðarbörnunum lífið og greiðið með korti. Einnig fæst blaðið í lausasölu á eftirtöldum stöðum: Turninum, Kletti, Eyjakaup, Novu, Skýlinu, Söluskálanum í Goðahrauni, Eyjakjör, Kránni, Pinnanum, Tvistinum, Vöruval, Betri bónus, Búrinu, í Herjólfi og í versluninni í Flugstöðinni. SMA- augiýsingar íbúð óskast 3ja herbergja íbúð óskast á leigu fyrir mánaðamótin ágúst/sépt ember n.k. Úpplýsingar í sima 13042. Barnapössun Óska eftir stúlku til að gæta tveggja barna yfir Þjóðhátíðar næturnar. Upplýsingar í síma 12608. íbúð óskast í Reykjavík 3ja - 4ra herbergja íbúð Reykjavík, óskast á leigu frá og með 1. september. Helst í vest- urbænum. Upplýsingar í síma 11333 eða 11860. Bíll til sölu Ford Bronco árgerð 1973 til sölu. Góð vél. Selst hæstbjóðanda. Upplýsingar í síma 12354 og 13104. Til sölu Yamaha Seca 400 götuhjól til sölu. Keyrt aðeins 22 mílur. Staðgreiðsluverð kr. 195 þúsund. Upplýsingar í síma 13021. Barnavagn Til sölu Marmed barnavagn, hvítur og blár. Einnig Britax burðar- og bílstóll fyrir börn undir 10 kg. Upplýsingar í sima 12838. Barnavagn tll sölu Silver cross barnavagn til sölu Selst ódýrt. Upplýsingar í sima 13126. Toyota, kettlingar Toyota Cellca árgerð 1985 tll sölu. Skiptl eða skuldabréf möguleg. Einnig fást gefins 5 fallegir kettlingar, 6 vlkna gamlir. Upplýsingar f sfma 13017. Barnagæsla á Þjóðhátfð Tökum börn í pössun yfir Þjóð- hátíðarnæturnar. Sími 12536 eða 12440. Erla og Gaui. fbúð til leigu Tveggja herbergja íbúð við ugagötu til leigu. Upplýsingar í síma 12348. Kerruvagn til sölu Til sölu grár Silver cross kerru- vagn með burðarrúmi og poka. Einnig systkinasæti. Upplýsingar I sfma 12465 fyrir hádegi eða eftir kl. 17:00. Þjóðhátfðartjald Óska eftir að kaupa Þjóðhátíðar tjaldi. Upplýsingar í síma 11583 efti kl. 18:00. , l i I

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.