Skessuhorn - 05.09.2007, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER
Unnið við lagfæringu á gangstéttum
við Kjartansgötu í Borgarnesi. Allar
veiturnar, þ.e. Síminn, Rarik og
Orkuveita Reykjavíkur voru að vinna á
sama tíma við sama skurðinn sem íbúa í
Borgarnesi þótti fréttnæmt.
Íbúar við Skúlagötu í
Borgarnesi eru ekki hressir með
umferðarhraðann í götunni þeirra.
Segja þeir að yngri börn sem reyni
að fara yfir götuna geti einfaldlega
verið í stórhættu, sérstaklega
á morgnana þegar umferð um
götuna er mest og hröðust. Þeir
myndu vilja fá þær hraðahindranir
sem stolið var af Skallagrímsgötu í
vikunni og sagt er fá annarsstaðar í
blaðinu.
Ástæðan fyrir þessari miklu
umferð um Skúlagötuna á
morgnana er einkum sú að fólk
ekur börnum sínum í skólann. Þá er
farið upp Bröttugötu, viðkomandi
nemanda hleypt út við skólann
og síðan brunað af stað aftur og
niður Skúlagötu, á töluverðum
hraða, eftir því sem íbúarnir segja.
Þeir skora á sveitarstjórn að koma
upp hraðahindrunum í götunni og
foreldra að hleypa börnunum sínum
úr bílunum við tónlistarskólann eða
sundlaugina þar sem stigar eru upp
að skólahúsnæðinu, í stað þess að
keyra þau alla leið upp í skóla. Þá
myndi umferð snarlega minnka í
götunni.
bgk
Í síðustu viku hófst vegagerð
við Varmaland í Borgarfirði. Um
er að ræða gerð neðri götunnar af
tveimur sem á að leggja á staðnum,
en ekki er búið að setja efri götuna
í útboð. Gatan sem byrjað er á
mun hýsa par og raðhús en í efri
götunni er fyrirhugað að komi
einbýlishúsabyggð. Að sögn Páls
S. Brynjarssonar, sveitarstjóra
hefur verið töluverð eftirspurn
eftir einbýlishúsum á þessu
svæði þannig að í skoðun er hjá
sveitarfélaginu hvort einnig verði
farið af stað með framkvæmdir við
einbýlishúsagötuna. Um það hefur
þó engin ákvörðun verið tekin. Það
er Borgarverk sem bauð lægst í
gerð neðri götunnar.
bgk
Tilgangur Evrópska menningar
minjadagsins er að vekja
athygli alls almennings á gildi
menningararfsins og að skapa
vettvang til þess að almenningur
geti kynnst sögulegu umhverfi sínu.
Dagurinn hér á landi verður haldinn
föstudaginn 7. september. Í ár er
menningarminjadagurinn haldinn
í samvinnu Fornleifaverndar
ríkisins og Húsafriðunarnefndar
ríkisins. Efni ársins hér á landi er
Gömul híbýli og íbúar þeirra. Á
Vesturlandi hefur Bólstaður við
Álftafjörð í Helgafellssveit, orðið
fyrir valinu. Hist verður við brúnna
yfir Úlfarsfellsá í Álftafirði klukkan
18.00, föstudaginn 7. september
næstkomandi, þar sem Magnús
A. Sigurðsson, minjavörður
Vesturlands, mun kynna minjarnar
um Bólstað og fyrrum ábúenda
hans, Arnkel góða. Allir eru
velkomnir. (fréttatilkynning)
Sparisjóður Mýrasýslu hefur birt
niðurstöðu samstæðureiknings fyrir
fyrstu 6 mánuði ársins. Þar kemur
fram að sjóðurinn skilaði 2.899,7
milljóna kr. hagnaði fyrir skatta
fyrstu sex mánuði ársins miðað
við 1.099,7 millj. kr. fyrir sama
tímabil árið 2006. Að
teknu tilliti til reiknaðra
skatta er hagnaður
samstæðunnar 2.409,8
millj. kr. samanborið við
921,0 millj. kr. fyrri hluta
ársins 2006. Aukning á
hagnaði milli tímabila er
því 161,6%. Vart þarf að
taka fram að sjóðurinn
hefur aldrei hagnast
svo mikið áður. Eigið fé
SPM var 7.787,1 millj.
kr. 30. júní 2007 en var
5.380,5 millj. kr. í árslok 2006, þar
af er hlutdeild minnihluta 54,0.
Aukningin er 44,7%. Arðsemi
eiginfjár er 89,5% á ársgrundvelli.
Eiginfjárhlutfall samstæðunnar
samkvæmt CADreglum er 11,1%
þann 30. júní 2007.
Heildareignir samstæðunnar eru
42,6 milljarðar króna þann 30. júní
síðastliðinn miðað við 36,4 milljarða
í lok árs 2006. Hafa þær því vaxið
um 17,0% fyrstu sex mánuði ársins.
Útlán samstæðunnar hafa aukist um
12,9% á árinu og innlán um 10,4%
fyrstu sex mánuði ársins.
Vaxtatekjur námu 1.941,0 millj.
kr. fyrstu sex mánuði ársins en það
er 17,4% hækkun frá sama tímabili
ársins 2006. Þá hækkuð vaxtagjöld
um 17,0% miðað við fyrri hluta
ársins í fyrra og námu nú 1.552,6
millj. kr. Hreinar vaxtatekjur námu
388,4 millj. kr. sem er 18,8%
hækkun. Hreinar rekstrartekjur
voru 3.042,4 millj. kr. á móti
1.196,0 millj. kr. fyrir fyrstu sex
mánuði ársins 2006. Hreinar
rekstrartekjur hafa hækkað um
154,4% frá fyrri hluta
ársins 2006. Framlag
í afskriftarreikning
útlána nam 142,7
millj. kr. Rekstrargjöld
sparisjóðsins voru
564,5 millj. kr. á fyrri
hluta ársins en voru
395,6 millj. kr. fyrir
sama tímabil árið 2006.
Rekstrarkostnaður sem
hlutfall af hreinum
rekstrartekjum er
15,7% miðað við
24,9% fyrir fyrri hluta ársins 2006.
Rekstrarkostnaður sem hlutfall af
eignum er nú 1,3% en var 1,1%
fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2006.
mm
Ríkiskaup hefur auglýst ríflega 18
hektara lands til sölu í Hvalfirði. Um
er að ræða eignir innan girðingar, svo
sem olíutanka, uppskipunarbryggju
fyrir olíu, svefnskála og ýmsar aðrar
byggingar tengdar fyrrum rekstri
Olíustöðvarinnar auk búnaðar sem
er í stöðinni og tilheyrði rekstri
hennar. Tilboðum skal skila fyrir
10. október næstkomandi. Í samtali
við sveitarstjóra kom fram að
Hvalfjarðarsveit hyggst ekki falast
eftir eignunum.
Það er fjármálaráðuneytið sem
hefur umsjón með eignunum en
utanríkisráðuneytið tók við þeim
þegar varnarliðið hvarf af landinu
í haust. Einar Örn Thorlacius
sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar
sagði í samtali við Skessuhorn að
sveitarstjórn hefði átt fund með
ráðuneytismönnum í síðustu viku.
„Við vorum einungis að ræða
við þá um hvaða áform væru í
gangi um þessar eignir. Okkur
er auðvitað ekki alveg sama um
hvaða starfsemi verður innan
okkar sveitar.“ Aðspurður svaraði
Einar að Hvalfjarðarsveit hefði
ekki í hyggju að kaupa eignirnar,
enda væru þær líklega ekki falar
fyrir neina smáaura. „Það var búið
að eyða miklum fjármunum í að
endurbæta olíutankana en síðan
hefur ekki komið í þá dropi af olíu.
Svo skilst okkur að bryggjan sé í
góðu ásigkomulagi og yfirleitt þær
eignir sem varnarliðið var með.
Þarna er aðdjúpt svo svæðið er
tilvalið til geymslu á eldsneyti hvað
þetta varðar. Einhverjir hafa þegar
sýnt svæðinu áhuga en hver hreppir
hnossið kemur ekki í ljós fyrr en í
október,“ sagði Einar Örn.
bgk
Vegagerð við par- og raðhúsagötu í Varmalandi í Borgarfirði.
Vegagerð hafin í
Varmalandi
Íbúar við Skúlagötu
óhressir með hraðakstur
Skúlagata í Borgarnesi þar sem umferðin er mikil og hröð að mati íbúanna.
Unnið við
gangstéttalagfæringar
Í Borgarnesi er verið að vinna að
lagfæringu gangstétta um þessar
mundir. Eins og fram hefur komið
í fréttum Skessuhorns samþykkti
sveitarstjórn Borgarbyggðar að
auka fjármagn til lagfæringa á
gangstéttum í bænum, enda fannst
mörgum íbúum ekki vanþörf á.
Í rigningunni undanfarna daga
hafa menn frá veitufyrirtækjum
verið að vinna við lagnavinnu,
jafnhliða gangstéttaviðgerðum.
Íbúi í Borgarnesi vakti athygli
blaðamanns á því að í þetta sinn
væru allar veiturnar að vinna í sama
skurðinum í einu, ekki eins og
stundum hefði tíðkast, að hver veita
græfi sinn skurð og lokaði aftur.
Síðan kæmu starfsmenn næstu
veitu og skemmdu jafnvel eitthvað
af því sem hinir voru nýlega búnir
að gera. Ef þetta er rétt er batnandi
mönnum sannarlega best að lifa.
bgk
Eignir í Hvalfirði til sölu
Hagnaður SPM var 2,4
milljarðar fyrri hluta ársins
Gengið um Bólstað á
menningarminjadeginum á
föstudaginn