Gaflari - 03.07.2014, Blaðsíða 7
gafl ari.is - 7
GAFLARAR VIKUNNAR
„En þær eru líka frábærar alveg
eins og strákar, kynin eru bara ólík
og mér finnst að við eigum að bera
virðingu fyrir því.“
alls ekki,“ svara þeir í kór. „Við skiljum þær
alls ekki, ef t.d. stelpa segist vera að fara
inn í herbergi að horfa á þátt þýðir það
bara eitthvað allt annað og miklu meira
en ef strákur segist vera að fara að horfa
á þátt þá er hann bara að fara að horfa á
þátt,“ segir Arnór. „Og okkur finnst þær
ekkert óskiljanlegar þær ERU óskiljan-
legar,“ bætir Óli við og Arnór segir: „En
þær eru líka frábærar alveg eins og strák-
ar, kynin eru bara ólík og mér finnst að við
eigum að bera virðingu fyrir því.“ Nú getur
Óli ekki orða bundist og segir: „En strák-
ar eru miklu „fattlegri“ en stelpur flækja
meira.“
Og þeim er greinilega jafnrétti hugleik-
ið og að allir fái að njóta sín eins og þeir
eru. „Ég er ekki femínisti, frekar jafnréttis-
sinni,“ segir Arnór og Óli tekur undir það og
svo tölum við um trúarbrögð, enda er Óli
að spá í að gerast búddisti en er fljótur að
átta sig á að hann þarf að kynna sér það
betur áður en hann tekur ákvörðun og
við förum út í heimspekilegar umræðum
um sinn, Dalai Lama og Ghandi sem þeir
frændur hafa miklar mætur á enda friðar-
sinnar miklir báðir tveir.
Eftir gott spjall við þessa flottu stráka
er ekki úr vegi að spyrja hvernig þeir fari að
þessu öllu saman?
„Við gætum þetta náttúrulega aldrei
nema af því við eigum frábæra fjölskyldu
sem styður okkur í þessu öllu saman,
skilningsríka kennara og svo er fullt af
fólki sem er alltaf til í að ráðleggja okkur
og standa við bakið á okkur og svo þarf
að muna að vera glaður, kurteis, jákvæður
og opinn fyrir nýjum hugmyndum, t.d. að
segja frekar já takk en nei takk. En fyrst
og fremst viljum við báðir þakka íslensk-
um unglingum og óska þeim til hamingju,
þakka þeim fyrir að gefa okkur þessa góðu
hugmynd og óska þeim til hamingju með
að vera svona flottir eins og þeir eru, segir
Arnór. „ Og svo skiptir náttúrulega öllu máli
að smæla framan í heiminn því þá smælar
heimurinn framan í þig,“ segir Óli og brosir.
Og þar með kveð ég þessa hamingjusömu
frændur sem hjóla út í sólina sem gladdi
okkur Hafnfirðinga þann daginn.