Gaflari - 03.07.2014, Blaðsíða 10

Gaflari - 03.07.2014, Blaðsíða 10
10 - gafl ari.is HIPP OG KÚL Tón- listarhátíðir eru allt annar heimur en það sem með- almaðurinn á að venjast. Tónlistin, maturinn, andrúmsloftið og stemn- ingin er öðruvísi og það sem virðist mest breytast á milli ára er fatnaður- inn. Það er alveg óhætt að fullyrða að það hefur myndast viss hátíðatíska (e. festival fashion). Ég fór á eina slík hátíð sem var haldin í fyrsta skipti og heppnaðist að mestu mjög vel. Þetta var auðvitað Secret solstice sem var haldin í Laugardalnum og var svæð- inu gjörbreytt í ævintýraheim með snilldartónlist. Löngu plönuð eitt- dressádag biðu mín á föstudeginum þegar ég lagði af stað á hátíðina en þau nýttust ekkert sökum leiðinda- veðurs og ég endaði í lopapeysu undir Burberry kápunni minni og með trefil. Jebb. Í júní... Lopapeysa og trefill ganga hins- vegar ekki á þeim tónlistarhátíðum sem fara fram erlendis. Áhugavert er að fylgjast með myndum frá öll- um heimshornum og skoða hátíða- tískuna og það sem virðist vera mest áberandi nú í ár eru gallastuttbuxur og stuttur bolur eða einhver sætur sumarkjóll og stígvél. Bolirnir og kjól- arnir eru oft með blómamunstri, með svokölluðu “fringe” eða gegnsæir og þá er lykilatriði að eiga fallega toppa til að vera í undir. Svo er fallegt að vera í Kimono eða með fallega stóra slæðu yfir sig og svo auðvitað punkturinn yfir i-ið, fallegt hárskraut. Fallegt hárskraut, s.s. blóm í hárið, blómakransar og fal- leg hárbönd, hafa tröllriðið festivöl- um að undanförnu og verið að færast yfir á barlíferni miðbæjarrottanna. Síðasta erlenda hátíðin sem ég fór á var Rock Wercther 2012. Þang- að mætti ég með tvö dress á dag, fullan H&M poka af skarti og pakka af neon líkamsmálningu. Sólbrennd og sæl með rautt hárband, sem ég komst að þegar heim var komið að væri stuttermabolur, lærði ég nokk- ur mikilvæg og skemmtileg ráð sem ég hef ákveðið að deila með ykkur: 1. Mætið með líkamsmálningu eða annað sem gleður allan hópinn, ekki bara þig. 2. Hafðu með þér tissjú pakka í veskinu, það er oft skortur á klósettpappír. 3. Ekki sleppa því að kaupa dýru hallærislegu festival peysuna. Hún mun nýtast vel þegar köld nóttin færist yfir. 4. Notið linsur! Ekki vera með gleraugu ef þið notið gleraugu dagsdaglega eins og ég. Mað- ur endar með gleraugnafar.. 5. Síðast en ekki síst, ekki gleyma sólarvörn og góða skapinu! UNDIR GAFLINUM Skemmtilegir pennar leggja Gafl ara lið.Þeir fj alla um ólík málefni og áhugamál, s.s. heilsu, dýramál, tísku og lífstíl, mat, sögu og Hafnfi rðinga í útlöndum skrifa heim. Á gafl ari.is birtist svo í hverri viku nýr og skemmtilegur pistill eft ir hvern þeirra. Milla Lopapeysan virkar... bara á Íslandi Hvað gerir æskulýðs- og forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar? FJÖLMIÐLAHÓPURINN Geir Bjarnason ólst upp í Norðurbænum í Hafnarfirði. Hann útskrifaðist úr Flensborg með stúdenstpróf. Þaðan fór hann í Kennara- skólann og varð kennari með meistara- gráðu í stjórnun og svo varð hann skóla- stjórnandi. Árið 1988 hóf Geir að starfa sem æskulýðs- og forvarnarfulltrúi Hafnar- fjarðar. Starf hans felst í því að bera ábyrgð á félagsmiðstöðum, vinnuskól- um og öllu sem er rekið í Hafnarfjarðar- bæ. Það sem fékk Geir í þessa vinnu var að þegar hann var ungur var hann að vinna í félagsmiðstöðvum og hann var að vinna mikið með ungu fólki. En honum finnst vinnan sín fyrst og fremst skemmtileg og gefandi. Við báðum Geir um að lýsa starfi sínu í nokkrum orðum. „Ég vinn aðallega á skrifstofu þar sem ég sé um laun, ráðn- ingar, áætlunargerð og að ganga frá rekstri. Hefðbundinn vinnudagur hjá mér er á þá leið að ég mæti sprækur klukkan átta og fer að vinna í tölvunni, ég fer á fjölda funda og því fer ég ekki mikið út úr húsinu, svo skapa ég vettvang til að ungt fólk geti gert góða hluti.“ Hvað er það erfiðasta við vinnuna? „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka er að segja fólki upp.“ Hvernig bæjarstjóri myndir þú vera? „Ef sá dagur kæmi að ég yrði bæjarstjóri myndi ég vilja færa valdið nær bæjarbú- um og efla unglingalýðræði.“ Áttu einhver áhugamál? „Þegar ég er ekki á fullu í vinnunni fer ég að veiða en ég er forfallinn veiðimaður. Ég hef gaman að því að skjóta fugla og ferðast með fjölskyldunni minni. Ég elska að borða mat með góðu fólki og uppáhalds maturinn minn er sjávarfang og villibráð. Ég er mikill Haukamaður enda er uppáhaldsliturinn minn rauður. Ég held samt með FH í fótbolta. Umfram allt held ég með því að allir krakkar hafi tækifæri til þess að taka þátt í íþróttum óháð í hvaða félagi þau eru. Mitt starf felst í því að allir krakkar geti komist í íþróttir.” Eitthvað að lokum? „Ef þú ert með tillögu að breytingum í Hafnarfjarðarbæ ráðleggur ég fólki að skrifa bréf til bæjarins, sem fer til ÍTH, annars er hægt að fara inn á vefsíðuna betrihafnarfjordur.is” ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS ðurh 5, Rv 5 1 00 t n Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hinrik Valsson Tíska á tónlistarhátíðum:

x

Gaflari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gaflari
https://timarit.is/publication/1097

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.