Gaflari - 02.10.2014, Síða 2

Gaflari - 02.10.2014, Síða 2
2 - gafl ari.is FRÉTTIR 324 eru á biðlista eftir fé- lagslegu húsnæði í Hafnarfirði og þar af eru 216 taldir í verulegri þörf fyrir húsnæði. Þeir sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður eiga rétt á að sækja um fé- lagslegt húsnæði. Þegar umsókn berst um slíkt húsnæði er farið yfir hana og lagt mat á það hversu brýn þörfin er. Við matið er notast við stigakerfi og vega tekjur og búseta þar þyngst. Rannveig Einarssdóttir, sviðsstjóri fjölskylduþjónustu, segir að það séu fyrst og fremst tekjulágar fjölskyldur og einstaklingar sem þurfi félagslegt húsnæði. Flestir þeirra sem eru á biðlista eftir íbúð eru einstæðar mæð- ur eða 41,2%. Næst stærsti hópurinn, 34,3% eru hins vegar einstæðir karlar. Rannveig segir erfitt að svara til um hversu lengi fólk þurfi að bíða eftir íbúð en samkvæmt gögnum sem Kolbrún Oddgeirsdóttir og Steinunn Gísladóttir tóku saman fyrir fjölskylduráð, kemur fram að flestir hafi verið á listanum í 2 – 4 ár eða 146 og þar af eru 95 taldir í brýnni þörf . Í samstarfssáttmála núverandi meirihluta er miðað við að rekstur Tæplega 60 milljónum velt yfir á bæinn með einu pennastriki FRÉTTIR Hafnarfjarðarbær situr uppi með kostnaðarauka upp á 57 milljónir verði fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar, um að stytta hámarksbótatíma þeirra sem eru án atvinnu úr þremur árum í tvö og hálft ár, að veruleika. Í alvarlegri athugasemd sem Fjölskylduráð Hafnarfjarðar gerði vegna þessa máls kemur fram að ekkert samráð hafi verið haft við sveitarfélögin auk þess sem fyrirvarinn sé nær enginn. Beinn kostnaður Hafnarfjarðarbæjar af þessum aðgerðum er áætlaður 57 milljónir á næsta ári þar sem talið er að um 30 – 40 manns leiti til fé- lagsþjónusturnar í byrjun janúar. Fjölskylduráð leggur því áherslu á að ríkisvaldið leggi til mótvægisaðgerðir vegna þessara aðgerða og fjármagni þær m.a. í formi virkniúrræða fyrir þenn- an hóp eða að öðrum kosti dragi þessi áform til baka. 324 á biðlista eftir félagslegu húsnæði félagslega húsnæðiskerfisins verði endurskoðaður á tímabilinu og íbúðum fjölgað. Helga Ingólfsdóttir, varaformaður fjölskylduráðs, segir að nú sé verið að fara yfir stöðuna. „Við gerum okkur ljóst að brýnt er að bregðast við uppsöfnuðum vanda og löngum biðlista og erum einnmitt að hefja þá vinnu. Hér í Hafnarfirði hefur félagslegum íbúðum ekki fjölgað á undanförnum árum og ég tel að fjölga þurfi þeim í það minnsta tímabundið til þess að bregðast við vanda þeirra sem ekki eiga kost á öðrum búsetuúr- ræðum.“ FRÉTTIR Ákveðið var að hækka laun Guðrúnar Ágústu Guðmunds- dóttur, fráfarandi bæjarstjóra, um 6% í lok sumars. Kristján Sturluson, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, segir að hækkunin sé í samræmi við ákvæði í ráðningarsamningi sem gerður var við Guðrúnu Ágústu þegar hún tók við bæjarstjórastarfinu. Launin hækka afturvirkt um hálft ár og segir Kristján eðlilegar skýr- ingar á því. „Launabreytingin er aft- Laun fráfarandi bæjarstóra hækkuð urvirk til sama tíma og hækkun launa hjá starfsmönnum bæjarins sem eru félagsmenn í BHM.“ Kristján segir að bæjarstjóri taki ákvörðun um breytingar á FRÉTTIR Aðalfundur Vinstri grænna í Hafnarfirði var haldinn á dögunum. Á dagskrá voru hefð- bundin aðalfundarstörf, kosning nýrrar stjórnar og samþykkt árs- reikninga. Júlíus Andri Þórðarson var kjörinn formaður og með hon- um í stjórn sitja þau Valgerður Blá- Unnið gegn kyn- ferðislegri mis- notkun FRÉTTIR Í Hafnarfirði er mark- visst unnið að forvörnum gegn kynferðislegri misnotkun á börn- um. Fimm ár í röð hefur starfsfólki bæjarins sem starfa með börnum og unglingum verið boðið að sækja námskeiðið, Verndarar barna, sem haldið er í samvinnu við samtökin Blátt áfram. Markmiðið með nám- skeiðinu er að starfsmennirnir verði hæfari í að vinna að forvörn- um gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum og unglingum. Nú þegar hafa hafa rúmlega 700 manns fengið þessa þjálfun. Niðurstöður rannsókna sýna að þekking og viðhorf þátttakenda á ýmsu er viðkemur kynferðislegu of- beldi eykst og breytist í kjölfar þess að hafa hlotið þjálfun. Þátttakendur telja einnig líklegt að þeir muni í framtíðinni grípa til fleiri forvarnar- aðgerða til verndar börnum gegn kynferðislegu ofbeldi en þeir gerðu áður. Álykta má að námskeiðið auki árvekni þeirra sem það sækja og virkni þeirra í að ræða við börn um kynferðislegt ofbeldi. launum sviðsstjóra hjá bænum. „Þau laun breytast í samræmi við launabreytingar í kjarasamningum og í þessu tilviki í samræmi við kostnaðarmat Sambands íslenskra sveitarfélaga á kjarasamningi BHM.“ Heildarlaun bæjarstjórans frá- farandi fyrir utan laun fyrir setu í bæjarstjórn voru 1.125.813 krónur og sé miðað við 6% hækkun eru þau nú 1.193.362 krrónur og nemur hækkunin því 67.549  krónum. Ný stjórn VG í Hafnarfirði klukka Fjölnisdóttir, varaformaður, Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir, Sigurbergur Árnason og Árni Stef- án Jónsson. Júlíus Andri Þórðarson formaður VG og Valgerður Bláklukka Fjölnisdóttir, varaformaður VG.

x

Gaflari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gaflari
https://timarit.is/publication/1097

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.