Gaflari - 02.10.2014, Blaðsíða 8

Gaflari - 02.10.2014, Blaðsíða 8
8 - gafl ari.is „Mín fyrsta spurning var hvort ég væri að fara að deyja“ Sigríður Margrét Einarsdóttir hefur gengið í gegnum ýmsa erfiðleika á síðustu árum. Hún sér nú fram á bjartari tíma og er farin að styðja við bakið á þeim sem eru að ganga í gegn- um það sem hún hefur reynt. Helga Kristín Gilsdóttir hitti Sirrý á fallegum haustdegi og hún sagði henni frá áföllum og sigrum síðustu ára. Sigríður Margrét Einarsdóttir, Sirrý, er fædd og uppalin í Hafnarfirði. Hún bjó í Norðurbænum með foreldrum sínum þeim Helgu Bjarnadóttur og Einari Þorgeirssyni og yngri tvíbura- bræðrum þeim Bjarna Þór og Einari Geir. Sirrý gekk í Engidalsskóla og Víðstaðaskóla og þaðan lá leiðin í Fjöl- brautarskólann í Garðabæ. Framan af voru einu áhyggjur Sirrýjar prakkara- strik bræðranna, en þeir voru oft á tíð- um ansi uppátækjasamir, og kom það oftar en ekki í hlut Sirrýjar að gæta þeirra í fjarveru foreldranna. Það var svo vorið 1990 að tiltölu- lega áhyggjulaus æskuár þeirra systk- ina tóku snöggan endi þegar faðir þeirra lést í bílslysi á Vesturlandsvegi. Móðir þeirra var stödd erlendis og því mæddi mikið á Sirrý og ljóst var að líf fjölskyldunnar yrði aldei samt eftir þennan missi. Hárgreiðslan sigraði að lokum Á þessum tíma ákvað Sirrý að gera hlé á námi sínu í FG og hóf störf á hár- greiðslustofu móður sinnar, Carmen á Miðvangi, sem hún hafði rekið við góð- an orðstír í mörg ár. „Ég byrjaði að vinna hjá mömmu að sópa gólfið bara svona á meðan ég væri að finna mér eitthvað betra“ segir Sirrý brosandi. „ Það var náttúr- lega alltaf verið að spyrja mig hvort ég ætlaði ekki að feta í fótspor mömmu og fara að læra hárgreiðslu en ég þrjóskaðist við mjög lengi. Þegar ég var svo farin að vinna á stofunni hjá henni fann ég að þetta átti ágætlega við mig og ég byrjaði í Iðnskólanum í hárgreiðslu og varð svo nemi hjá mömmu eiginlega bara óvart.“ Á með- an hárgreiðslunáminu stóð tók Sirrý þátt í nokkrum nemakeppnum og varð tvisvar sinnum Íslandsmeistari nema í hárgreiðslu. „Það var vissu- lega mjög hvetjandi og skemmtilegt að taka þátt í þessum keppnum, hvað þá að sigra. Og ég fann vel að ég var á réttri hillu. Eftir útskrift hélt ég áfram að vinna hjá mömmu, var valin í landsliðið í hárgreiðslu og tók þátt í keppnum erlendis sem var mjög skemmtilegt enda gaman að fá viðurkenningu á því sem þú ert að gera. Þannig að áður en ég vissi af var ég bara alveg komin á kaf í faginu og kunni bara vel við mig. Samstarf okk- ar mömmu gekk alltaf rosalega vel og við urðum góðar vinkonur. Við náðum að aðskilja vinnuna og fjölskylduna nokkuð vel og oftast kallaði ég hana Helgu í vinnunni en ekki mömmu. Í dag er minningin um þennan tíma afar dýrmæt.“ Árið 1996 fluttist Sirrý til Kaup- mannahafnar og freistaði gæfunnar á virtum hárgreiðslustofum þar í borg. „Þetta var mjög skemmtilegur og lærdómsríkur tími og eitthvað sem ég hefði alls ekki viljað sleppa enda frábært að fá tækifæri í öðru landi. En það var samt alltaf eitthvað sem tog- aði í mig hér heima.“ Sirrý kom heim árið 2000 með frumburðinn Einar Örn nýfæddan og 2003 fæddist Emilía Ósk. Við tók barnauppeldi og daglegt amstur ásamt áframhaldandi vinnu á hárgreiðslustofunni Carmen sem þær mæðgur endurnýjuðu og breyttu. Eitthvað meira en járnskortur á meðgöngu Sumarið 2008 var Sirrý gengin 10 vikur með sitt þriðja barn, nýkomin úr sumarfríi ásamt manninum sínum, Einari Rögnvaldssyni, þegar móðir hennar greinist með krabbamein í brisi. „Þetta var mikið áfall enda erfitt að ráða við þessa tegund krabbameins.“ Nokkrum dögum síðar tekur Sirrý eftir að hún er með óvenju marga marbletti, er móð og að auki var hún með lítilsháttar sár sem ekki greri og var orðin langþreytt á. Hún ákvað því að fara á heilsugæsluna og leita ráða ekki síst vegna þess að hún var þunguð og hélt að þetta gæti verið þess vegna. „Á heilsugæslunni hitti ég nýútskrifaðan lækni í sumar- afleysingu sem greinilega sá að ekki var allt með felldu því hann sendi mig á Borgarspítalann í frekari rann- sókn. Þar var tekið úr mér blóðsýni og þegar niðurstaðan kom var ég send á Landspítalann við Hringbraut þar sem tekið var beinmergssýni. Þá fór manninn minn nú að gruna að þetta væri eitthvað meira en járnskortur sem gæti fylgt óléttunni. Um kvöldið var svo kallaður út læknir sem til- kynnti mér að ég væri með bráða- hvítblæði. Og í fyrsta skipti á ævinni fannst mér eins og kalt vatn rynni á milli skinns og hörunds.“ Mín fyrsta spurning var hvort ég væri að deyja Í framhaldinu var Sirrý lögð inn á blóðlækningadeild þar sem hún var höfð í einangrun enda ónæmiskerfið orðið mjög veikt og sýkingarhætta þ.a.l. mikil. Tegund hvítblæðisins sem Sirrý greindist með greinist yfirleitt hjá eldra fólk og að því leyti var hún heppin hversu ung hún var, 36 ára,

x

Gaflari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gaflari
https://timarit.is/publication/1097

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.