Gaflari - 02.10.2014, Qupperneq 11

Gaflari - 02.10.2014, Qupperneq 11
gafl ari.is - 11 Frétta- og mannlífsvefurinn Við minnum á nýjan möguleika í mat og gistingu sem vert er að kynna sér. Hlið á Álftanesi Jólahlaðborð Fjörukráarinnar Hefst 21. nóvember og stendur til 21. desember Söngsveitina okkar skipa þau Kjartan Ólafsson, Elín Ósk, Svava Kristín Ingólfsdóttir og Ólafur Árni Bjarnason. Þau munu ásamt öðrum sem skipa Víkingasveitina okkar sjá um að halda uppi jólaskapinu meðan á borðhaldi stendur. Bjóðum einnig uppá Jólapakka fyrir einstaklinga sem og hópa, Sælkerapakka, Þorrapakka og Árshátíðarpakka. farðu inn á www.fjorukrain.is og og skoðaðu hvað við getum gert fyrir þig. Verð á jólahlaðborði er 7.900 krónur á mann Gerum einnig tilboð fyrir hópa í gistingu og mat. w w w . f j o r u k r a i n . i s P ö n t u n a r s . 5 6 5 1 2 1 3 Sem endranær verðum við með það sem við erum þekktust fyrir, að hafa þetta þjóðlegt með stórkostlegum söngvurum sem eru eitt af því sem hafa gert okkur svo sérstök. Öll hafa þau skemmt hér í áraraðir og því heimavön og nú labba þau á milli borða og syngja lög sem tengjast jólunum. Eftir borðhald tekur svo Hörður G. Ólafsson við og spilar frameftir kvöldi Minnum á skötuveisluna á Þorláksmessu frá kl. 11:30 og frameftir kvöldi. Í íþróttahúsinu í Kaplakrika má segja að dagurinn hefjist snemma því kl. 6.10 á mánudaga, miðvikudaga og föstudaga er hægt að mæta á æfingu í Metabolic. Gaflaranum lék forvitni á að vita hvað Metabolic er og hitti Jónas Grana Garðarsson, sjúkraþjálf- ara, sem leiðbeinir á æfingunum. „Metabolic er æfingakerfi kennt í formi hópþrektíma, fyrir alla sem vilja minnka fitu og auka vöðvamassa, styrk, kraft, hraða og þol. Í tímunum taka allir 100% á því, hvort sem  þeir koma inn í góðu formi eða sem byrj- endur og þátttakendur stjórna álaginu sjálfir.“ Jónas Grani segir að í kerfinu séu engar tilviljanir, hvorki í æfingavali né uppröðun, allar æfingar eru hannaðar út frá því að meðlimir nái hámarks ár- angri með sem minnstri meiðslahættu og sem mestu  skemmtanagildi. Þannig fari æfingarnar í fjögurra vikna ákefðarbylgjur og séð er til þess að þátttakendur keyri sig vel út en hvílist líka reglulega því líkaminn þarf á því að halda. Þá segir Jónas Grani að í boði séu yfir  100 mismunandi Metabolic- tímar þannig að þú getur verið nokkuð viss um að þú fáir ekki leið á þessu. Hvað er Metabolic? „Metabolic þýðir í raun efnaskipti, sem er rauði þráðurinn í gegnum þjálfunina hjá okkur er að auka efnaskiptahrað- ann eða grunnbrennsluna eins og það er gjarnan kallað. Við vinnum mikið í styrktaræfingum fyrir stóru vöðvana okkar og vinnum með marga vöðva- hópa saman til að fá sem mest út úr þjálfuninni á sem skemmstum tíma. Hver Metabolictími er ekki nema 45 mínútur með upphitun og niðurlagi og við erum bara í ca. 25 mínútur und- ir miklu álagi. Það er bara alveg nóg og fólk klárar sig alveg á þeim tíma. Tímarnir eru mjög fjölbreyttir og ýmist áhersla á fitubrennslu, vöðva- stækkun, úthaldsaukningu og kraft en margir þekkja það frá því að vera sjálf- ir í salnum að þá höfum við tilhneig- ingu til að gera bara það sem okkur Metabolic í Kaplakrika finnst skemmtilegt eða þægilegt og lendum þá gjarnan í stöðnun. Það gerist ekki í Metabolic. Við leggjum gríðarlega áherslu á að fólk fái góða upplifun af þjálfuninni og hlakki til að koma aftur og það er mikill metnaður hjá okkur fyrir því að fólk meiðist ekki í þjálfuninni eða fari fram úr sér“, segir Jónas Grani. Hvernig ganga Metabolic æfingar fyrir sig? „Við byrjum alltaf á góðri upphitun. Fyrst liðkum við okkur með stöð- ugum teygjum, færum okkur svo í leiðréttingaræfingar með áherslu á að styrkja og liðka axlir og bak þar  sem gjarnan myndast stífleiki og verkjavandamál. Því næst för- um við í dýnamíska upphitun sem sýnt hefur verið fram á að lágmarki meiðslahættu og hámarki afköst. Að upphitun lokinni tekur við stöðva- þjálfun í allri mögulegri fjölbreytni sem hún býður upp á. Almennt æfum við með 4-6 æfingar í 20 mínútur, ýmist með áherslu á styrk, kraft eða úthald. Í lok tímans er það sem við köllum finisher. Þá gefum við okkur nokkrar mínútur í að keyra púlsinn vel upp eða einblínum á djúpvöðvakerfið (core). Í blálokin teygjum við og spjöllum. Þátttakendur í Metabolic stjórna álaginu sjálfir sem þýðir að æfingarn- ar henta byrendum jafnt sem þeim sem eru í toppformi. Þjálfarar hjálpa til við að finna rétt erfiðleikastig svo þú náir þínum  markmiðum á markvissan hátt“ segir Jónas Grani að lokum. Jónas Grani Garðarsson

x

Gaflari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gaflari
https://timarit.is/publication/1097

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.