Gaflari - 27.11.2014, Blaðsíða 4
4 - gafl ari.is
Útgefandi: Bæjarfréttir ehf. - Kt. 521113-0300 • Ritstjórn og ábyrgðarmenn: Alda Áskelsdóttir, Erla Ragnarsdóttir, Helga Kristín Gilsdóttir (ritstjorn@gaflari.is) • Umbrot & hönnun: Prentun.is • Prentun: Prentun.is - Bæjarhrauni 22
Ljósmyndari: Helga Laufey Guðmundsdóttir • Upplag: 10.500 eintök Auglýsingar: Ólafur Guðlaugsson, sími: 544 2100, netfang: auglysingar@gaflari.is
Í dag halda Bandaríkjamenn þakkargjörðarhátíð. Það er nú dá-
lítið skondið að ég sem er alls ekki svo Ameríkusinnuð skuli gera
þakkargjörðarhátíð þeirra í Vestur-hreppum að umtalsefni, ég
sem hvorki elda kalkún né fer til Ameríku til að kaupa jólagjafir,
samt hafa jólin alltaf komið hjá mér og verið mér og mínum
gleðileg. En það er nú svo að á þessum árstíma sem nú gengur í garð gefum við okk-
ur oft meiri tíma til að vera með okkar nánustu og við höldum í hefðir, já við erum nú
vön að gera þetta svona… og hvernig gerðum við þetta síðast? eru setningar sem
hljóma e.t.v. á mörgum heimilum.
Á sunnudaginn er fyrsti í aðventu og það þýðir að það eru sirka fjórar vikur til jóla.
Jólin sem megnið af haustinu snýst um að undirbúa. Eftir því sem ég eldist hefur
undirbúningurinn minnkað og þetta verður allt einhvern veginn áreynslulausara.
Einu sinni hélt ég að jólin kæmu ekki nema það væri búið að fægja silfrið, baka
þrettán sortir af smákökum sem nóta bene voru settar í box og lokið límt niður svo
heimilisfólkið væri ekki búið að klára þær fyrir jól, jólaklipping, jólaskór og jólaföt
voru líka eitthvað sem þurfti að vera búið að græja og svona mætti áfram telja. Það
sem árin og reynslan hafa hins vegar kennt mér er að jólin koma alltaf á sama tíma
á ári, hvort sem ég hef bakað eða ekki, þrifið hátt og lágt eða ekki.
Ég er ekki búin að skreyta húsið, ekki búin að ákveða litinn á aðventukertunum
og ekki búin að fara á neitt námskeið til læra að búa til eitthvert jólagóðgæti.
Ég gerði samt tilraun til að kaupa kerti með jólailmi í Ikea um daginn. Sú tilraun
var árangurslaus þar sem kertin virtust uppseld. Sonur minn á þrettánda ári var
með í för og lýsti ég undrun minni yfir kertaleysinu við hann. Hann var svo sem
með svarið á reiðum höndum „mamma, þú misstir af þessu, jólin byrjuðu í Ikea í
október.“
En það er eitt sem er víst að verður gert á mínu heimili og það er að baka þriggja
laga lagköku með súkkulaðikremi á milli eftir gamalli fjölskylduuppskrift. Einstök
kaka sem kannski verður búin fyrir jól eða ekki. Þessa köku bökum við mæðgurnar
saman ásamt börnum og öðrum fylgihlutum og allir hafa sitt hlutverk, ekki síst
amma sem er á tíræðisaldri, hún segir sögurnar. Ég ætla bara að vona að hún fái
ekki glóðurauga núna eins og í fyrra þegar hún datt um leikföng barnanna.
En hvernig sem þið farið að, njótið aðventunnar – hver með sínu lagi, það ætla ég
svo sannarlega að gera með þakklæti í huga.
Helga Kristín Gilsdottir
Skyldi amma fá glóðurauga?
Leiðari ritstjórnar Gaflarans
B
ra
n
de
n
bu
rg
Í SPILARANUM
Hvað er í spilaranum
hjá Hirti Hinrikssyni?
Magnús Sigmundsson hand-
boltaþjálfari með
meiru skoraði í
síðasta blaði á
Hjört Hinriksson,
félaga sinn úr
boltanum. Hjörtur
er starfsmaður
Arion Banka, á
upplýsinga- og
tæknisviði, en hann þjálfar
einnig yngri flokka í handbolta
hjá Fimleikafélagi Hafnarfjarð-
ar. Hinrik er alæta á tónlist. „Það
sem myndi kallast klassík hjá
mér og heyrist mjög reglulega í
eru til að mynda Led Zeppelin,
gusgus, Incubus
og Suede. Ég skora
svo á StYkkið, aka.
Gussi Klussi, aka.
Gaui Kálfi, Guðjón Óskar Guð-
mundsson fyrir næsta blað.“
Auglýsingasími
691 7030
auglysingar@gaflari.is
gaflari.is
Skiptar skoðanir um
nýjan skóla í Hafnarfirði
FRÉTTIR Kynningu á hugmynd um nýj-
an einkarekinn grunnskóla fyrir nem-
endur á unglingastigi í Hafnarfirði er nú
lokið í Fræðsluráði. Það er skólafélagið
Framsýn ehf sem hyggst stofna nýjan
grunnskóla á Völlunum, en séreinkenni
skólans verða íþróttir og hreyfing, heil-
brigður lífsstíll og mataræði og nýting
tölvutækninnar til náms. Fræðslusvið
bæjarins stefnir að því að kanna áhuga
meðal nemenda og foreldra í bæjarfé-
laginu áður en lengra er haldið. Stefnt
er að því að skólinn, ef leyfi fást til þ.á.m
hjá Mennta- og menningarmálaráðu-
neytinu, hefji störf í ágúst á næsta ári.
Skiptar skoðanir eru um nýjan skóla
í fræðsluráði Hafnarfjarðar. Elva Dögg
Ásudóttir Kristinsdóttir er fulltrúi VG í
fræðsluráði og segir hún að í grunninn
lítist henni ekki vel á hugmyndina um
nýjan einkaskóla í bænum og að alltof
mörgum spurningum sé ósvarað. „Mér
líst ekki vel á þessa hugmynd,“ segir Elva
Dögg. „Að mínu mati eiga sveitarfélög
að reka skóla fyrir alla og best væri
að það yrði gert þannig að fjölbreytni
rúmist innan grunskólanna. Mér skilst
að stefnt sé að því að skólinn verði
með áherslu á upplýsingatækni, heilsu
og hreyfingu og að öllum nemendum
verði gert að stunda hreyfingu hvern
dag. Er hér verið að stefna að sérstök-
um íþróttaskóla? Ef svo er, þá velti ég
því fyrir mér hvort ekki sé gert ráð fyrir
að allir nemendur á unglingastigi eigi
þess kost á að sækja skólann? Verða
þá mögulega sett skilyrði fyrir inntöku
í skólann, að unglingarnir stundi íþróttir
og þá kannski að þeir séu afreksmenn á
því sviði?“ Elva Dögg bendir einnig á að
undirbúningur sé skammt á veg kominn
því erfitt sé að átta sig á hvernig Fram-
sýn ehf sjái þetta fyrir sér. „Of mörgum
spurningum er einfaldlega ósvarað.“
Rósa Guðbjartsdóttir, oddviti
Sjálfstæðisflokkisins og formaður
fræðsluráðs er á öðru máli. „Ég styð
fjölbreytni í skólastarfi og að nem-
endur og forráðamenn þeirra hafi sem
mest val í þeim efnum. Þetta gæti líka
verið áhugaverður kostur fyrir kennara.
Við eigum eftir að taka erindið til
nánari umræðu og óska eftir frekari
gögnum og upplýsingum um fyrirhug-
aða starfsemi. Nýr skóli af þessu tagi
þarf einnig að fara í gegnum nálarauga
menntamálaráðuneytisins áður en til
starfsleyfis kæmi.“
Skólafélagið Framsýn stendur fyrir
ráðstefnu í Flensborgarskólanum í
kvöld kl. 20:00 um skólamál og kynnir í
leiðinni áform sín um stofnun nýs skóla
í Hafnarfirði.
Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir Rósa Guðbjartsdóttir