Gaflari - 27.11.2014, Page 6

Gaflari - 27.11.2014, Page 6
6 - gafl ari.is Þá varð ekki aftur snúið og enn í dag brenn ég fyrir þennan málaflokk Þann 1. október síðastliðinn tók Alda Hrönn Jóhannsdóttir við embætti aðstoðarlögreglustjóra hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Alda sem er borinn og barnfæddur gaflari settist niður með Helgu Kristínu Gilsdóttur og sagði henni upp og ofan af þessu nýja starfi sínu. Alda er yfirveguð í fasi þegar við hittu- mst og með henni í för er elsta dóttir hennar sem hún sótti á dansæfingu um leið og hún hitti mig í kvöldkaffi. Dóttirin lætur masið í okkur ekki trufla sig og heldur sig við samfélagsmiðl- ana í símanum sínum eins og sönnum íslenskum unglingi sæmir, á meðan við sem eldri erum ræðum landsins gagn og nauðsynjar. Þegar við Alda hittumst er leka- málið svokallaða í hámæli og án þess að vera nokkuð pólitísk þá hefur Alda skoðun á þessu máli, kannski eins og flestir Íslendingar. „Mér finnst þetta mál bara löngu komið út í vitleysu og jafnvel svo mikla vitleysu að fólk er búið að gleyma um hvað það snerist í upphafi. En það er ljóst að yfirmað- ur getur ekki borið ábyrgð á annarri manneskju og lögbroti hennar.“ Hefðbundin lögfræðistörf áttu ekki við mig Alda er fædd og uppalin í Hafnarfirði, í norðurbænum nánar tiltekið. Hún er næstyngst fjögurra systkina en bara sjö mínútum eldri en tvíburasystir hennar. Alda gekk í Víðistaðaskóla, Flensborg og svo lá leiðin í lögfræði í Háskóla Íslands. Tvö sumur vann Alda í lögreglunni í Hafnarfirði en á þriðja ári í lögfræðinni varð vendipunktur þegar Alda sat í námskeiði sem kallast Refsi- réttur „já, þá má segja að ekki hafi ver- ið aftur snúið og enn í dag brenn ég fyrir þennan málaflokk.“ Eftir útskrift úr lagadeildinni 2001 hóf Alda störf hjá Sýslumanninum í Hafnarfirði og starfaði þar sleitu- laust til ársins 2007 þegar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var sameinuð. Starfaði hún hjá sameinuðu embætti til september sama ár en þá lá leiðin á Suðurnesin þar sem hún varð árið 2009 yfirlögfræðingur hjá lögreglu- stjóranum þar. Hún tók sér ársleyfi frá störfum þar árið 2010 „mér bauðst starf í Seðlabankanum við hefðbundin lögfræðistörf og langaði að prófa. Ég var nokkuð fljót að finna að það átti ekki sérstaklega vel við mig og var því gott þegar mér var stuttu seinna boð- in staða saksóknara efnahagsbrota sem ég þáði.“ Alda sneri þó að loknu ársleyfinu aftur til starfa á Suðurnesj- unum þar sem störf hennar og sam- starfsfólks hennar undanfarin misseri hafa vakið verðskuldaða athygli. Alda hefur allt frá árinu 2009 starfað við hlið Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæð- inu, en hún var áður lögreglustjóri í Suðurnesjum. „Sigríður Björk er besti yfirmaður sem ég hef haft og við náum mjög vel saman. Hún veitir starfsmönnum sínum mikið rými og traust og vinnur í anda þjónandi for- ystu, fyrst og fremst fyrir skattborg- ana og þjóðina og það er í forgrunni í öllum hennar störfum.“ Aukið samstarf lögreglu og félagsþjónustu nauðsynlegt En forsaga þess að markvissri vinnu í garð heimilisofbeldis var hrint í fram- kvæmd á Suðurnesjum er sú að árið 2011 tóku gildi ný lög um nálgunarbann og brottvísun af heimili. „Í framhaldi af því var sett á laggirnar svokölluð „Suðurnesjavakt“ af Velferðarráðu- neytinu. Þá var lögreglan með til skoðunar hvers vegna svo fá mál tengd heimilisofbeldi kæmust til dómstóla á Suðurnesjum. Öll þessi vinna hófst í kjölfar tveggja sýknudóma á málum sem okkur í lögreglunni þótti sann- að að hefðu gerst en við náðum ekki milliliðalausri sönnun, þ.e. við fengum ætlaða þolendur í málunum ekki til að bera vitni fyrir dómstólum.“ Og það verður einmitt eitt af ver- kefnum Öldu hjá Lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu að innleiða nýjar verklagsreglur varðandi heimilisof- beldi ásamt stefnubreytingum um mansal og vændi og í útlendingamál- um. En um hvað snýst þessi verklags- breyting sem nú þegar hefur verið innleidd á Suðurnesjum? „Í meginat- PI PA R \ TB W A • SÍ A • 14 38 01

x

Gaflari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gaflari
https://timarit.is/publication/1097

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.