Gaflari - 27.11.2014, Side 7

Gaflari - 27.11.2014, Side 7
gafl ari.is - 7 Lindu suðus úkkulaði fullk omnar baks turinn PI PA R \ TB W A • S ÍA • 1 4 38 01 Börn eiga oft erfitt með að koma orðum að hlutum eins og heimilisofbeldi. Þetta nýja verklag léttir ábyrgðinni af þolendum og börnum en það á ekki að þvinga fólk til að leggja fram kæru. riðum snýst þetta um aukið sam- starf við félagsþjónustuna, t.d. þegar lögreglan er kölluð á vettvang vegna heimilsofbeldis þá kemur starfs- maður félagsþjónustunnar á vett- vang. Þetta verklag auðveldar alla rannsókn á vettvangi og t.d. eru nú teknar myndir á vettvangi af áverk- um þolandans. Fórnarlambið hefur að sjálfsögðu alltaf ákvörðunarvald um það hvort það vill leggja fram kæru en það er alveg ljóst að það er auðveldara fyrir fórnarlambið að fara í fylgd starfsmanns félagsþjón- ustunnar á bráðamóttöku heldur en í lögreglufylgd.“ Þetta verklag var tilraunastarfsemi á Suðurnesjum frá 1. febrúar 2013 til 1. febrúar 2014. Að þeim tíma liðnum var ákveðið að gera þetta að varanlegu verklaglagi og sömu reglur munu taka gildi á höfuðborgarsvæðinu 1. janúar 2015. Hlutverk okkar fullorðnu að vernda börn Alda sem hefur lifað og hrærst í þess- um málaflokki í hart nær fjórtán ár, komið að mörgum málum og heyrt margar sögur segir að rannsóknir sýni að um 70% ofbeldismanna komi frá ofbeldisheimilum og að börn sem hafi þurft að horfa upp á eða þola ofbeldi megi líkja við börn sem alist hafa upp á stríðshrjáðum svæðum. „Það er því gríðarlega mikilvægt að þessi mál séu tekin föstum tökum og að þessi mál séu uppi á borðum. Það er hlutverk okkar sem erum fullorðin að vernda börnin, börn eiga oft erfitt með að koma orðum að hlutum eins og heim- ilisofbeldi. Þetta nýja verklag léttir ábyrgðinni af þolendum og börnum um að taka ábyrgð á málunum en það á ekki að þvinga fólk til að leggja fram kæru.“ Á þessu eina ári sem verið var að þróa þetta nýja verklag voru 56 útköll vegna heimilisofbeldis á Suðurnesj- um, í þessum málum komu 84 börn við sögu. „Enn í dag er mikill ótti við það að tilkynna um heimilisofbeldi og rjúfa þögnina, en í þessum 56 málum vakti það einnig athygli mína að í 39 mál- um af 56 voru þolendur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Það sýnir okkur ef til vill að fólk er að deyfa tilfinningar og sársauka og það bindur ekki enda á þessa vanlíðan nema að talað sé um þetta. Að 84 börn komi við sögu er afskaplega sorglegt og fólk glímir við afleiðingar ofbeldis og van- rækslu alla ævi.“ Sækir frið og ró á Vestfirðina Þrátt fyrir að sinna ábyrgðarmiklu starfi á Alda stóra og samheldna fjöl- skyldu og líður hvergi betur en í faðmi hennar. Alda á þrjú börn á aldrinum þriggja til þrettán ára og eins og geng- ur er mikið umstang sem fylgir því, það þarf að skutla hingað og þangað. „Ég er svo heppin að foreldrar mínir eru hættir að vinna og hreinlega krefj- ast þess að fá að taka þátt í uppeldi barnanna, það léttir því heilmikið á okkur foreldrunum og mér finnst það forréttindi fyrir börnin mín að fá að umgangast ömmu sína og afa svona mikið.“ Alda kynntist manni sínum í lög- reglunni og honum fylgdi ofurhress tengdafjölskylda eins og Alda orðar það sjálf. Eiginmaðurinn á ættir að rekja til Bolungarvíkur og þangað þykir fjölskyldunni gott að koma. „Við förum oftast vestur á sumrin og þá eru Vestfirðirnir paradís líkastir. Fjölskyldan á hús á Hesteyri og þegar þangað er komið ferðast maður aftur í tímann sem er dásamlegt, ekkert símasamband eða neitt sem truflar. Okkur hefur líka þótt gaman að fara á „Aldrei fór ég suður“ og einu sinni þurftum við að fara vestur til að vera við jarðarför milli jóla og nýárs. Sú ferð var eftirminnileg, svo mikill snjór, kyrrð og einangrun sem var alveg sér- stök upplifun fyrir mig borgarbarnið.“ Og þar sem síminn hjá dótturinni er að verða batteríislaus er mál að halda út í myrkrið sem lúrir yfir á ný. Það verður án efa athyglisvert að fylgjast með störfum Öldu og samstarfsfólks hennar á komandi misserum enda hafa margar af þeim breytingum sem í vændum eru forvarnargildi og allar eru þær hugsaðar með hag almenn- ings í fyrirrúmi.

x

Gaflari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gaflari
https://timarit.is/publication/1097

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.