Gaflari - 27.11.2014, Síða 9
gafl ari.is - 9
FRÉTTIR „Það eru að sjálfsögðu allir glaðir yfir
að verkfallinu sé lokið og að kennsla geti hafist að
nýju. Ljóst er samt að kennarar eru ekki mjög sáttir
yfir því að hafa þurft að vera í 5 vikur í verkfalli til
að ná fram sanngjörnum kjarabótum, þ.e. að vera á
svipuðum launum og grunn- og leikskólakennarar,“
segir skólastjóri Tónlistarskólans í Hafnarfirði.
„Þetta verkfall hefur haft töluverð áhrif á allt
skólastarfið á haustönn. Það er t.a.m. ljóst að
hinn annasami desembermánuður í skólanum, þar
sem jólatónleikar hafa verið á hverjum degi, verð-
ur ekkert í líkingu við það sem áður hefur þekkst í
skólanum,“ segir Gunnar Gunnarsson, skólastjóri
Tónlistarskólans.
Tónlistarkennarar samþykktu nýjan kjarasamning
aðfararnótt þriðjudags og mættu því aftur til starfa
í gær. Fræðsluráð Hafnarfjarðar samþykkti á dögun-
um að felld verði niður skólagjöld sem nemur þeim
tímafjölda féllu niður vegna verkfallsins. Tónlistar-
skólinn er í eigu Hafnarfjarðar og er rekinn eins og
grunnskólar bæjarins. Skólagjöld hans renna í bæj-
arsjóð, en ekki beint til skólans og því verður endur-
greiðsla skólagjalda greidd úr bæjarsjóði.
„Það á eftir að koma í ljós hvort verkfallið hafi
haft einhver áhrif á fjölda nemenda við skólann.“
segir Gunnar. „Brottfall nemenda er mjög vont mál.
Í fyrsta lagi fyrir nemandann sjálfan. Verkfallið
getur orðið til þess að einhverjir nemendur missa
taktinn og hætt í námi, sem þeir hefðu aldrei gert
ef verkfallið hefði ekki komið til. Fækki nemendum
umtalsvert hjá okkur í skólanum fer það að koma
niður á tímafjölda kennara og launum þeirra. Von-
andi kemst öflugt skólastarf í Tónlistarskólanum í
eðlilegt horf sem allra fyrst.“
Vonandi kemst öflugt skólastarf
af stað sem fyrst
Ragnheiður Harpa
Stundum þegar
maður á að vera
gera eitthvað alveg
ótrúlega mikilvægt
reikar hugurinn
eitthvert allt annað.
Akkúrat á því augnabliki sem þú ætt-
ir að vera að leysa verkefni lífs þíns
leitar þankinn á önnur mið. Stundum
algjörlega ómerkileg en á öðrum tím-
um eru hugarefnin dýpri en maður
kannski óskar sér.
Ég átti eitt svoleiðis augnablik um
daginn.
Ég sat í tíma þar sem kennd var
þjóðsagnafræði og kennarinn var að
ræða góðan endi ævintýra. Sagan
byrjar á einfaldri lýsingu og jafnvel þó
það gerist eitthvað alveg hræðilegt
endar hún alltaf vel. Þeir hryllilegu at-
burðir sem geta átt sér stað í sögunni
eru oft algjörlega tilfinningalausir
og maður kippir sér ekkert upp við
það að tærnar og hælarnir hafi verið
skornir af stjúpsystrum Öskubusku
því maður veit að á endanum mun
þetta allt koma saman í fallegan endi.
Hafa ævintýrin sem við höfum
hlustað á og lesið í æsku skapað hjá
okkur eitthvað tilfinningaleysi gagn-
vart slæmum atburðum? Við vitum jú
að lokum mun allt fara vel. Þegar við
heyrum fréttir um stríð og fjöldamorð
í fjarlægum löndum þá sitjum við að-
gerðarlaus og sýnum litlar sem engar
tilfinningar stundum ekki einu sinni
svipbrigði. Við erum orðin ónæm fyr-
ir harmi og sorg annarra, sársauka og
kvöl sem hinir fjarlægu þurf að þola.
Gæti það verið vegna þess að við
trúum því að, að lokum fari þetta bara
allt vel og til þess þurfi ekki aðgerðir
né sé okkar þörf? Stríðið í Sýrlandi
mun enda fallega, við þurfum bara að
bíða aðeins og sjá, það gerðist alla-
vega þannig þegar ég horfði á Mulan.
Kvöldfréttir eru gott dæmi. Þær
gefa okkur þessa hugmynd, þetta
módel um fallegan endi. Í byrjun er
skemmtilegt lag, hresst stef og alveg
sama hvaða hörmungar fréttatíminn
hefur að geyma þá er oftast endað á
einhverri þægilegri frétt. Jafnvel um
pandabjörn sem fæddist í dýragarði
í Kína. Eitthvað alveg passlegt svo
við hin förum nú örugglega öll glöð
að sofa. Ekki með neinar myndir eða
hugsanir um ljóta hluti í draumaheim-
inn.
Hefur lífið, það sem við teljum vera
raunveruleikann verið matreitt fyrir
okkur á þægilegan máta? Er lífið eitt
ævintýri sem getur ekki annað en
endað vel? Þolinmæði þrautir vinnur
allar?
Engar áhyggjur, slakaðu bara á.
Þetta reddast...
FINNDU ÞÍNA FRAMTÍÐ
Í SKEMMTILEGUM OG
PERSÓNULEGUM SKÓLA
Opið er fyrir innritun
frá 1. nóv. til 20. des.
í gegnum menntagatt.is
Flatahrauni 12 220 Hafnarfirði sími 585 3600 www.idnskolinn.is
Eftirfarandi námsleiðir í boði:
Almennt nám
Grunnnám bíliðna
Grunnnám rafiðna
Grunnnám bygg. og mannvirkja
Hársnyrtibraut 2. 3. 4. og 5. önn
Húsasmíði
Húsgagnasmíði
Listnám hönnun og handverk
Málmiðngreinar fyrri hluti
Pípulagnir
Rafvirkjun
Rennismíði
Stálsmíði
Tækniteiknun
Vélvirkjun
ALLIR ALDURSHÓPAR
ERU VELKOMNIR
VILT ÞÚ ÖÐLAST
STARFSRÉTTINDI ?
Í fréttum er þetta
helst…