Gaflari - 27.11.2014, Qupperneq 10
10 - gafl ari.is
TILVERAN Auglýsingasími Gaflara
544 2100
auglysingar@gaflari.is
Fjölskylduhagir? Maðurinn minn
heitir Guðmundur Óli Gunnarsson og
samtals eigum við fimm börn, þrjá
tengdasyni og þrjú barnabörn.
Hvaða bók er á náttborðinu?
Náðarkraftur eftir Hönnu Kent.
Eftirlætismaturinn? Úff það fer
bara eftir hvaða dagur er!
Best með morgunkaffinu?
Rúllur og hárblásari.
Leiðinlegasta heimilisverkið?
Hreinsa niðurfallið í sturtunni, enda
er ég með mann í því!
Helstu áhugamál? Lífið og tilveran
held ég.
Það sem gefur lífinu gildi? Fólkið
KÍKT Í KAFFI Gaflarinn kíkti í kaffi til Margrétar Blöndal, fjölmiðlakonu. Margrét hefur starfað sem dagskrár-
gerðamaður á Rás 2 síðustu ár en einnig komið að viðburðastjórnun og bókaskrifum. Um jólin 2012 kom út
bók hennar um söngkonuna Ellý Vilhjálms. Margrét er nýráðinn verkefnastjóri hins eina sanna Jólaþorps sem
opnar með pomp og prakt nú um helgina. Jólaþorpið rís nú í 12. sinn, en það hefur markað sér fastan sess í
hugum bæjarbúa frá árinu 2003. Í ár verður bryddað upp á nokkrum nýjungum. Hafnfirska jólatréð verður t.d.
sett niður við Strandgötuna heimamenn geta komið og hengt á það heimatilbúið jólskraut og sett um leið
mynd af skrautinu inn á Facebooksíðu Jólaþorpsins. Ævintýraferð verður farin í Hellisgerði og er hún ætluð
þeim sem vita að jólasveinar eru til. Margrét segir þó að fyrst og fremst langi hana að búa til stemningu sem
gleður augu, eyru og nef þeirra sem heimsækja jólaþorpið.
Rúllur og hárblásari með morgunkaffinu
mitt er sannarlega í fyrsta sæti.
Hversu mikið jólabarn ertu í þér (á
skalanum 1-10)?
Ég er mikið jólabarn, svona upp á níu!
En sem betur fer hefur íhaldssemin
minnkað með árunum. Ég er búin að
sannreyna að jólin koma og eru alveg
dásamleg þó þau séu ekki alveg eins
jólin mín voru þegar ég var lítil.
Uppáhaldsjólasveinninn? Stúfur
kom í mörg ár í heimsókn til okkar á
aðfangadag (Þorgeir Ástvaldsson)
og var ómissandi í jólahaldi okkar
mæðgna.
Heillar Hafnarfjörður? Já svo
sannarlega. Ég kolféll fyrir Hafnarf-
irði árið 1995 og sú ást hefur ekkert
minnkað. Ég féll fyrst fyrir fólkinu.
Mér fannst ég svo velkomin þegar ég
flutti hingað, bæjarbragurinn heill-
andi, sagan og stemningin og svo er
bærinn yndislega fallegur.
Mesta áskorun vetrarins? Tja, ætli
það sé ekki Jólaþorpið. Eftir ára-
mótin bíður svo nýtt ævintýri sem
er aðeins of snemmt að segja frá. En
það verður heilmikil áskorun líka.
Síðasta sms-ið og frá hverjum?
„Frábært viðtal- knús og kossar úr
Víðihlíð“ Hildur Blöndal frænka mín
að hlusta á Bergsson og Blöndal á
laugardagsmorguninn.
Á laugardagskvöldið var ég? Að
taka upp úr kössum, enda nýflutt.
Ég mæli með? Jólaþorpinu.