Gaflari - 27.11.2014, Side 12

Gaflari - 27.11.2014, Side 12
12 - gafl ari.is Þórey Anna Ásgeirsdóttir Þórey Anna er 17 ára gömul hand- boltastelpa úr Hafnarfirði sem æfir og stundar nám við bestu íþrótta- akademíu Norðmanna í Kongsvinger. Þ Í síðustu viku var Þórey Anna valin í A- landslið kvenna sem undirbýr sig fyrir leiki í forkeppni HM 2015. Þórey Anna er frábær stelpa og yndisleg vinkona. Hún er sjálfstæð, metnað- arfull og allt sem hún tekur sér fyrir hendur gerir hún vel. Það er löngu vitað að hún ætlaði sér að ná langt í handboltanum og komast í lands- liðið. Hún er mikil keppnismanneskja og ef maður er að spila við hagræðir hún frekar úrslitunum en að tapa. Hún stendur virkilega fyrir sínu. Þórey er algjör snillingur og á svo sannarlega framtíðina fyrir sér. Vigdís Ólöf Theodórsdóttir, vin- kona Þóreyjar Önnu Þórey Anna er samviskusöm og gerir miklar kröfur til sjálfrar sín. Ég þarf stundum að segja henni að taka því rólega og slappa af. Stundum grínumst við með það að hún sé eins og mamma mín og segi mér til. Hún er mikill húmoristi og stutt í stríðnina hjá henni. Hún hefur reyndar alltaf verið óþolandi stressuð með tíma, hún veit ekkert verra en að mæta of seint eða vera í tímaþröng. Ég hef aldrei þurft að hafa stórar áhyggjur af henni enda er hún heilsteypt og dugleg stelpa sem er með markmiðin sín á hreinu. Gunnur Sveinsdóttir, mamma Þóeyjar Önnu. STENDUR UPP ÚR Elías Þór Rafnsson, sjúkraþjálfari og kennari í íþróttafræð- um við HR: Fyrstu helgina í aðventu höfum við fjölskyldan skapað okkur þá hefð að fara sumarbústaðarferð og halda þar Litlu jólin. Að þessu sinni verður förinni heitið, líkt og síðastliðin tvö ár, í bústað í nágrenni Flúða. Við höfum það fyrir vana að spila, baka piparkökur, njóta lífsins í göngu- ferðum úti í náttúrunni og ekki síst að elda góðan mat. Að þessu sinni verðum við með hreindýr sem ég veiddi í sumar í „austfirsku ölpunum.“ Svo er upplagt að enda daginn með kósýheitum í heita pottinum. Sunnudagskvöldið fer svo í að fara yfir próf. Brimrún Björgólfsdóttir, blakþjálfari Hafnar- fjarðar: Helgarnar byrja alltaf á morgunkaffi á föstudögum í vinnunni sem lúkkar meira eins og fermingarveisla frekar en morgunkaffi. Eftir vinnu er kósýkvöld með strákunum mínum fyrir framan TV- ið. Laugardagurinn verður síðan tekinn með trompi, fer með Haukaskvísum að keppa á sínu fyrsta blakmóti, loksins er komin blakdeild í Hafnarfirði og vonandi gengur vel. Við byrjum svo að skreyta, eldri strákurinn minn er búinn að bíða spenntur enda á hann afmæli í desember. Á sunnudaginn förum við í fjölskyldubadminton hjá BH, sem við elskum. Um kvöldið náum við vonandi að fara í laufabrauðsgerð, það er hefð frá elskulegri ömmu minni sem er ný- fallin frá og náði 93 ára aldri. Svo er það bara að njóta aðventunarkransins . HELGIN MÍN Við minnum á nýjan möguleika í mat og gistingu sem vert er að kynna sér. Hlið á Álftanesi Jólahlaðborð Fjörukráarinnar Hefst 21. nóvember og stendur til 21. desember Bjóðum einnig uppá Jólapakka fyrir einstaklinga sem og hópa, Sælkerapakka, Þorrapakka og Árshátíðarpakka. farðu inn á www.fjorukrain.is og skoðaðu hvað við getum gert fyrir þig. w w w . f j o r u k r a i n . i s P ö n t u n a r s . 5 6 5 1 2 1 3 Sem endranær verðum við með það sem við erum þekktust fyrir, að hafa þetta þjóðlegt með stórkostlegum söngvurum sem eru eitt af því sem hafa gert okkur svo sérstök. Öll hafa þau skemmt hér í áraraðir og því heimavön og nú labba þau á milli borða og syngja lög sem tengjast jólunum. Eftir borðhald tekur svo Hörður G. Ólafsson við og spilar frameftir kvöldi Minnum á skötuveisluna á Þorláksmessu frá kl. 11:30 og frameftir kvöldi. Söngsveitina okkar skipa þau Kjartan Ólafsson, Elín Ósk, Svava Kristín Ingólfsdóttir og Ólafur Árni Bjarnason. Þau munu ásamt öðrum sem skipa Víkingasveitina okkar sjá um að halda uppi jólaskapinu meðan á borðhaldi stendur. Verð á jólahlaðborði er 7.900 krónur á mann Gerum einnig tilboð fyrir hópa í gistingu og mat.

x

Gaflari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gaflari
https://timarit.is/publication/1097

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.