Akureyri


Akureyri - 11.12.2014, Side 2

Akureyri - 11.12.2014, Side 2
2 46. tölublað 4. árgangur 11. desember 2014 Gagnrýnir bæinn Í umræðu um stöðu fjölmiðlunar á Akureyri á facebook í síðustu viku ræddu margir málsmetandi aðilar hvaða áhrif hefðu orðið af brott- hvarfi Ríkisútvarpsins á svæðis- bundna vísu í útvarpi og hvort það hefði skapað tækifæri fyrir einkarekna fjölmiðla til að „fylla í gatið“. Sýnist sitt hverjum. Birgir Gudmundsson, dós- ent í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri, seg- ir í umræðu um málið að vandi Norðlendinga varð- andi staðarmiðlun felist að hans mati ekki síst í að ekki sé fyrir hendi dagleg fréttamiðlun þar sem frétta-og tíð- indaflutningi og umræðu sé haldið úti. „Allir þessir miðlar sem við höf- um lepja dauðann úr skel enda nær- ast þeir á frekar líflitlum auglýsinga- markaði hér á svæðinu. Fyrirtækin hér eru útibú og þau sem ekki eru það eru tiltölulega lítil og hafa lítið fé í auglýsingar. Útgáfur hafa lagað sig að þessu og auglýsingaverð er mjög lágt og miðast yfirleitt við að borga beinharðan framleiðslukostn- að - prent, hönnun og dreifingu.“ Birgir skrifar svo eftirfarandi innan sviga: (Bærinn ýtir undir þetta með stefnuleysi í fjölmiðlamálum og með því að styrkja kaup- menn og aðra í að niður- greiða auglýsingaverð með sérstökum auglýsinga- blöðum með keyptu efni eins og dreift var í gær). Með sneiðinni til Akur- eyrarbæjar á Birgir við auglýsingarit sem dreift var í síðustu viku inn á öll heimili á Akureyri eins og mörg undangengin ár og ber nafnið „Akureyri“. Sú útgáfa tengist í engu Akureyri Viku- blaði svo því sé haldið til haga. Birgir segir um skrif sín að vandi þess að halda úti daglegri fjölmið- lun á Akureyri sé ekki sá einn að bærinn styrki þetta auglýsingablað eða sé stefnulaus, heldur sé fyrst og fremst um að kenna slökum aug- lýsingamarkaði og hvernig auglýs- ingavettvangurinn hafi þróast. –BÞ Forstöðumaður fyrirgerði rétti sínum samkvæmt dómi Málarekstur Davíðs Búa Halldórs- sonar forsvarsmanns og löggilts endurskoðanda Enor ehf á Akur- eyri og Pricewatherhouse Coopers (PWC) fyrir dómstólum hefur leitt til þeirrar dómsniðurstöðu að Dav- íð Búi sem áður starfaði hjá PWC þarf að greiða fyrrum vinnuveit- anda sínum milljónir í bætur og málskostnað fyrir Hæstarétti. Dav- íð Búi sem áður stýrði starfstöð PWC á Akureyri ákvað að áfrýja dómi undirréttar til Hæstaréttar. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt að honum bæri að greiða fyrrum vinnuveitanda sínum 2,5 milljónir króna í bætur. Litið er á dóminn sem prófmál. Davíð Búi og PWC deildu í mál- inu svo vitnað sé í skjöl Hæsta- réttar „hvort D [Davíð Búa] bæri að greiða félaginu bætur vegna yfirtöku viðskiptavina félagsins“ og hvort Davíð Búi ætti inni bæt- ur eftir að hann hætti störfum hjá PWC. Að sögn vitnis, samstarfs- manns sem gaf skýrslu fyrir dómi, tók Davíð Búi þátt í stofnun nýs fyrirtækis og nýtti sér aðstöðu sína til að taka með sér viðskiptavini inn í nýjan samkeppnisrekstur á meðan hann var enn að störfum hjá PWC. Þrír samstarfsmenn sögðu upp störfum í því skyni að vinna hjá hinu nýja félagi sem Davíð Búi stofnaði og varð keppinautur PWC um þjónustu og viðskiptavini. Að þessu samanlögðu taldi undirréttur að PWC hefði verið heimilt að víkja Davíð Búa úr starfi vegna brots á samningi hans við PWC, aukin- heldur með þeim hætti að kallaði á bótaskyldu Davíðs Búa. Davíð Búi var ekki bara for- stöðumaður starfstöðvar PWC á Akureyri þegar allt varð vitlaust heldur einnig hluthafi í PWC. Hann sagði starfi sínu lausu í lok maí árið 2012 með sex mánaða uppsagnar- fresti en var vikið frá störfum 8. júní sama ár. Í samningi hans og PWC er ákvæði sem segir að starfsmaður fyrirgeri rétti sínum ef hann hefji undirbúning samkeppnisrekstrar meðan hann sé að störfum. Segir orðrétt í samningnum: „Ef hlut- hafi hættir störfum hjá félaginu en heldur áfram störfum á sama sviði og tekur með sér viðskiptamenn frá félaginu, innan þriggja ára frá út- göngu, eða verði uppvís að því að valda félaginu tjóni við útgöngu úr félaginu t.d. með því að beina viðskiptavinum þess til samkeppn- isaðila, er hann skaðabótaskyldur gagnvart félaginu og getur félag- ið krafist bóta sem nema tekjum síðustu 12 mánaða vegna vinnu félagsins fyrir viðskiptamanninn.“ Davíð Búi bar við að hann hefði sett fyrirvara við þetta. Aukinheldur væri klásúlan sem hann hafði áður samþykkt brot á atvinnufrelsi sem tryggja bæri í stjórnarskrá. Fleiri málsbætur taldi hann sig eiga sem dómstólar höfðu þó að engu. Fram kemur í skjölum málsins að PWC fékk ekki veður af uppsögn Davíðs Búa fyrr en eftir að hann hafði haldið starfsmannafund á Ak- ureyri og tjáði þar samstarfsmönn- um ákvörðun sína. Þá fór hann einnig til Húsavíkur til að ræða við samstarfsmann þar. Sú ferð átti eftir að verða örlagarík, því sá starfsmaður sem Davíð Búi hitti á Húsavík bar vitni gegn honum fyr- ir dómi og sagði að Davíð Búi hefði sagt að flestir samstarfsmanna ætl- uðu að hætta störfum með honum og vinna í nýja fyrirtækinu. Daginn eftir sögðu þrír starfsmenn upp starfi sínu hjá PWC og fylgdu Dav- íð Búa til nýrrar framtíðar. Kemur fram í málskjölum að nú sé þorri fyrrum viðskiptamanna í PWC eins og hópurinn stóð í maí 2012 í við- skiptum við annars vegar einka- hlutafélag Davíðs Búa, Enor, en hins vegar HB. Því félagi stýrir Hermann Brynjarsson, fyrrum samstarfsmað- ur Davíðs Búa, sem hætti störfum um svipað leyti og hann. Staðhæf- ir Hæstiréttur að náið samstarf sé milli þessara tveggja fyrirtækja í dag, Enor og HB. Í dómsorði Hæstaréttar segir eftirfarandi: „Héraðsdómur skal vera óraskaður. Áfrýjandi, Dav- íð Búi Halldórsson, greiði stefnda, Pricewaterhouse Coopers ehf. 1.000.000 krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti.“ -BÞ Guðni Ágústsson segist orðinn femínisti Von er á Guðna Ágústssyni norð- ur yfir heiðar um helgina. Hann mun lesa upp og kynna Hallgerði sem hann segir vera mannréttindabók. Í samtali við Akur- eyri Vikublað segir Guðni að hann hafi skrifað bókina, sem byggir á Njálu, fyrst og fremst fyrir Hall- gerði sjálfa. Hann hafi rannsakað Njálu í þaula og hafi tekið eftir því sem enginn hafi áður tekið eftir að Hall- gerður hafi verið lögð í einelti auk þess sem hún hafi mátt þola kynferðislega misnotkun af hálfu fóstra hennar. „Hallgerður er barn nútímans, ég skrifa þessa bók á okkar máli og hef heyrt að lesend- um líki hún vel sem spennusaga,“ segir Guðni. „Svo er nú ekki verra hvað varðar innsýn mína að ég hitti Hallgerði reglu- lega, segir Guðni tví- ræður í röddu. En hver var kveikja skrifanna? „Ég dáði Gunnar og lék hann oft sem strákur. Ég hataði Hallgerði. Svo fór ég að átta mig á þessu kvenmannsofbeldi sem hún varð fyrir og þá fór ég að sjá hana í nýju ljósi, Mér fannst ég verða að koma þessu frá mér.“ Frægt varð þegar haft var eftir Guðna að staður konunnar væri aftan við eldavélina. Í ljósi þess hvernig hann ræðir nú konur og Hallgerði blasir við að spyrja: Ertu þá orðinn femínisti núna, Guðni? „Já, ég er með bleika bók því til vitnisburðar. Ég er gagnkynhneigð- ur karlmaður með konu og börn en ég er ekki sú karlremba sem ég er sagður vera.“ Guðni mun lesa upp um helgina á stöðum eins og Pottinum Restaurant á Blönduósi næstkom- andi laugardag , síðar sama dag mun hann kynna bók sína í Skag- firðingabúð. Þá verður hann á Kaffi Kú í Eyjafirði um kvöldið. Hann segist einnig reikna með að kynna bókina næstkomandi sunnudag á ýmsum stöðum á Akureyri. -BÞ Undrast alvarlegar villur Hafnarfjarðarbæjar „Alvarlegar ásakanir bæjaryfirvalda í Hafnarfirði um að Byggðastofnun og Hagfræðistofnun hafi sent frá sér kolrangar upplýsingar um þróun ríkisstarfa vöktu verðskuldaða athygli landsmiðla. Sem formaður stjórn- ar Byggðastofnunar fagna ég því vitaskuld að þessar ásakanir hafi verið hraktar. Ég undrast það vitaskuld að greining Hafnarfjarðarbæjar og áskorun bæjar- stjórnarinnar um að ríkisstjórnin hætti við flutning Fiskistofu skuli byggja á svo mörgum og alvarlegum villum,“ segir Þóroddur Bjarnason, formaður stjórnar Byggðastofnunar í samtali við Akureyri Vikublað. Byggðastofnun hefur brugðist við samantekt Hafnarfjarðarbæjar á dögunum um fjölda starfs- manna ríkisins á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstaðan er að Hafnarfjarðarbær hafi gert sig sekan um alvar- legar villur. „Þannig eru starfsmenn iðnaðar ráðuneytis, sjávarútvegsráðu neytis, landbúnaðarráðu neytis, sam- gönguráðuneytis, dóms- og kirkju mála ráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og heilbrigðis- og trygg inga- málaráðuneytis tilgreindir í tölum Hafnarfjarðar- bæjar frá 2007. Þessi ráðuneyti voru síðar sameinuð í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, innanríkis- ráðuneyti og velferðarráðuneyti en starfsmanna þeirra er ekki getið í tölum fyrir árið 2013. Þá eru starfsmenn Skipulagsstofnunar taldir árið 2007 en ekki árið 2013. Fleira orkar tvímælis í gögnum Hafnarfjarðarbæjar og má þar nefna að greiningin nær aðeins til valinna opinberra hlutafélaga en starfsmönnum Landsvirkj- unar, Rarik, Landsnets og Íslandspósts er til dæmis af einhverjum ástæðum sleppt,“ segir í viðbragði frá Byggðastofnun sem hefur verið birt á heimasíðu stofn- unarinnar. Í tölum Byggðastofnunar kemur fram að í þeim landshlutum sem liggi að höfuðborgarsvæðinu (Suðurnesjum, Vesturlandi og Suðurlandi) séu ríkis- tarfsmenn samtals 801 færri en mannfjöldi segi til um. Á Norðurlandi eystra sem er fjölmennasti landshlutinn utan höfuðborgarsvæðisins hafi ársstörf ríkisins verið 289 færri en mannfjöldi segði til um. a Þóroddur Bjarnason Birgir Guðmundsson

x

Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.