Akureyri - 11.12.2014, Qupperneq 4
4 46. tölublað 4. árgangur 11. desember 2014
Kraftbílar ehf. // Draupnisgötu 6 // 603 Akureyri // Sími 464 0000 // kraftbilar@kraftbilar.is
www.kraftbilar.is
Hjólastillingar á bílum af
öllum stærðum og gerðum
Framrúðuskipti
Allar almennar bíla
og vélaviðgerðir
Vetrarskoðun
Ölvun, afbrýði og hnífstungur
kostuðu 3ja ára fangelsisdóm
Dómur er fallinn í þekktu
hnífstungumáli sem kom upp í
Ólafsfirði í júní 2012. Hlynur Geir
Sigurðsson, sem stakk annan mann
fjórum sinnum með hnífi, hefur
verið dæmdur í þriggja ára fang-
elsi. Þá gerir Héraðsdómur Norð-
urlands eystra honum að greiða
800.000 krónur í miskabætur auk
sakarkostnaðar.
Ákært var fyrir tilraun til mann-
dráps eftir að Hlynur Geir veittist
að manni með hnífi með 12 cm
löngu blaði og stakk hann samtals
fjórum sinnum í vinstri öxl, ofar-
lega hægra megin í brjóstkassa, við
hægri mjaðmaspaða og neðarlega í
hægri síðu í hæð við lifur þar sem
hnífurinn stakkst í gegnum kvið-
vegg og inn í lifrina. Við þessa at-
lögu hlaut þolandi blæðingu á lifur.
Mikil ógæfusaga er rekin í
dóminum. Hlynur Geir, gerandinn,
hafði nokkrum dögum fyrr sjálfur
orðið fyrir barsmíðum og höfuð-
höggum og misst meðvitund þegar
þrír menn ruddust inn í íbúð þar
sem hann hafðist við. Nóttina sem
hnífstungurnar urðu kemur ölvun
og afbrýðisemi við sögu. Lögreglu-
varðstjóri gat þess í frumskýrslu að
sá aðdragandi hafi verið að hnífs-
árásinni að þolandi sem var kunn-
ugur geranda hafi óvart farið inn
í rangt herbergi að lokinni langri
vöku og lagst fyrir í rúmi hjá Hlyni
Geir og unnustu hans. Þá varð allt
vitlaust.
Hlynur Geir neitaði refsiverðri
sök. Hann sagðist hafa beitt lög-
mætri sjálfsvörn, en einnig að um
óhappatilvik eða slys hafi verið
að ræða. Þá byggði hann á því að
hann hafi ekki haft ásetning til
verknaðarins og að ákæruvaldið
hafi ekki sannað hvernig brotaþoli
hlaut áverkana. Því til viðbótar hafi
hnífurinn í raun ekki verið hættu-
legt tæki.
Dómurinn telur að sýkna beri
Hlyn Geir af tilraun til manndráps
eins og ákært var fyrir. Á hinn bóg-
inn þyki lögfull sönnun framkom-
in um að hann hafi gerst sekur um
alvarlega og sérstaklega hættulega
líkamsárás.
Hlynur Geir, sem er 24 ára, hef-
ur áður sætt allmörgum refsing-
um. „Til málsbóta horfir ungur
aldur ákærða, en hann var aðeins
22 ára þegar hann framdi verkn-
aðinn, að hann hefur að undan-
förnu leitað sér aðstoðar vegna
áfengis- og vímuefnavandkvæða,
en einnig að nokkru stundað vinnu,
en hvort tveggja er stutt vottorð-
um. Þá verður ekki fram hjá því
horft að framkoma brotaþola, er
hann fór inn í svefnherbergið þar
sem ákærði var fyrir ásamt unnu-
stu sinni, var til þess fallin að valda
ákærða geðshræringu eins og á stóð.
Loks hefur mál þetta dregist í með-
ferðum lögreglu og ákæruvalds....
Að öllu þessu gættu þykir refsing
ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í
þrjú ár. Eigi þykir fært að skilorðs-
binda refsinguna, en til frádráttar
henni skal koma gæsluvarðhalds-
vist ákærða á tímabilinu frá 1. til 4.
júlí 2012,“ segir í niðurstöðu dóms.
Dóminn kváðu upp héraðsdóm-
ararnir Ólafur Ólafsson dómsfor-
maður, Erlingur Sigtryggsson og
Halldór Halldórsson.
Vel heppnað kertakvöld. Fjöldi fólks sótti miðbæ Akureyrar á svokölluðu kerta-
kvöldi 5. des sl. Var stór hluti kominn langt að til að njóta stemmningarinnar í
miðbænum að sögn aðstandenda. Veðrið lék við gesti miðbæjarins og þótti fal-
legt að sjá hann upplýstan með kertum í nýföllnum jólasnjónum. Kvæðamanna-
félagið Gefjun kvað jólavísur og kvæði í anda liðinna jóla.
Knöpp kjör hjá mörgum
Átta stéttarfélög í Eyjafirði af-
hentu í fyrradag, þriðjudaginn
9. desember, Mæðrastyrksnefnd
Akureyrar, Hjálparstarfi kirkjunn-
ar, Hjálpræðishernum og Rauða
krossinum styrk að upphæð kr.
2.050.000.
Styrkurinn verður notaður í
samstarfsverkefni þessara fjögurra
samtaka. Aðstoð er í boði allan
Eyjafjörð, frá Siglufirði að Grenivík.
„Við erum að sjá meira af eldra
fólki sækja um og eins einstak-
linga á vinnumarkaði en samt í
erfiðri stöðu.“ Það er greinilegt að
húsaleigumarkaðurinn er að sliga
marga,“ segja aðstandendur átaks-
ins.
Félögin átta sem færðu
nefndinni styrk eru Eining-Iðja,
Byggiðn – Félag byggingamanna,
Félag málmiðnaðarmanna Ak-
ureyri, Félag verslunar- og skrif-
stofufólks Akureyri og nágrenni,
Kjölur stéttarfélag starfsmanna í
almannaþjónustu, Sjómannafélag
Eyjafjarðar, Sjómannafélag Ólafs-
fjarðar og Berg félag stjórnenda. a
Heilbrigðismálin
eru stóra málið
Hollvinafélag Sjúkrahússins á
Akureyri hefur gefið spítalanum
augnasteinamælingatæki sem
kostar á fimmtu milljón króna. Jó-
hannes Gunnar Bjarnason, formað-
ur Hollvinafélagsins, segir að þar
af hafi Félag aldraðra stutt gjöfina
með framlagi upp á 1,5 milljónir
króna. „Það er til gríðarlega mikið
af góðu fólki sem hjálpar okkur við
þetta.“
Jóhannes Gunnar segir að fé-
lagið muni halda áfram að gefa
spítalanum gjafir. „Það þarf líka
að vekja athygli á því ástandi sem
er í heilbrigðiskerfinu. Við viljum
hafa þann hátt á að við þurfum
ekki að hafa áhyggjur af því að
almenningur fái fá þjónustu sem
almenningi ber að fá. Þetta er
stóra málið og það þarf að bregð-
ast við strax,“ segir Jóhannes
Gunnar.
Til að vekja athygli á félaginu
og nauðsyn þess að bjarga heil-
brigðiskerfinu munu hollvinasam-
tökin standa næstkomandi laugar-
dag milli klukkan 14 og 16 fyrir
Degi sjúkrahússins á Glerártorgi.
Þar munu 25 hjúkrunarfræðingar
mæla blóðsykur, blóðþrýsting,
súrefnismettun og fleira hjá gest-
um og gangandi. Einnig verður
bangsahorn þar sem krakkar geta
komið og látið kanna heilsufar
bangsa eða annarra tuskudýra.
„Við stjórnarmenn verðum á staðn-
um líka, tilgangurinn er að reyna
að skrá fleiri hollvini en það geng-
ur ótrúlega vel að fá inn nýtt fólk,
það hefur tvöfaldast félagatalið á
tveimur vikum.“ a