Akureyri - 11.12.2014, Blaðsíða 12
12 46. tölublað 4. árgangur 11. desember 2014
Kanónur koma norður
Á sama tíma og aðeins einn starfs-
maður Fiskistofu hefur lýst áhuga
á að flytja með stofnuninni norð-
ur horfir í liðsauka í menningar-
málum bæjarins þar sem hvert
stórstirnið á fætur öðru sækir um
og fær stöðu á Akureyri. Í síðustu
viku var upplýst um ráðningar ný-
stofnaðs Menningarfélags Akur-
eyrar á þremur nýjum sviðsstjórum
og tveimur verkefnastjórum en alls
sóttu 44 um störfin fimm. Fengu þeir
nafnleynd sem óskuðu og er um-
deilt. Menningarfélagið hefur þó
sem sjálfseignarstofnun ekki laga-
skyldu til að hafa ráðningarferli
fullkomlega gagnsætt. Félaginu
ber ekki að kalla alla í viðtöl sem
uppfylla hæfisskyldur. Eigi að síður
koma framlög að mestu úr opiber-
um sjóðum, frá almennngi í formi
gjalda. Hefur því skapast nokkur
titringur um ráðningar félagsins.
Fyrst ber að telja þau tíðindi að
Jón Páll Eyjólfsson leikari og leik-
stjóri hefur verið ráðinn leikhús-
stjóri á Akureyri. Hann útskrifaðist
úr East 15 Acting School í London
árið 2000 sem leikari en hefur auk
leikstarfa leikstýrt og sett saman
sviðsverk hjá Þjóðleikhúsinu, Borg-
arleikhúsinu, Leikfélagi Akureyrar
og með sjálfstæðum sviðslistahóp-
um á Íslandi og í Danmörku. Hann
er einn af stofnendum Mindgroup
en uppsetningar þeirra hafa vakið
mikla athygli hér heima og erlend-
is og verið sýndar víða um Evrópu,
nú síðast á Norrænum sviðslista-
dögum í Danmörku. Einnig hefur
Jón Páll verið stundakennari við
í Listaháskóla Íslands og haldið
vinnustofur hér heima og víða á
Norðurlöndunum. „Hann hefur
í gegnum störf sín hjá Leikfélagi
Akureyrar og sem einn af listræn-
um stjórnendum Borgarleikhússins
og verkefnaráðinn leikstjóri sýnt
hæfni sína og þekkingu til þess
setja saman hóp sviðslistamanna
og listrænna stjórnenda og laðað
fram það besta úr hverjum og ein-
um þannig að úr hafa orðið metn-
aðarfullar leiksýningar sem hafa
snert við áhorfendum,“ segir í til-
kynningu Menningarfélags Akur-
eyrar.
Á NORÐURLEIÐ MEÐ TVO
KETTI OG HUND
Í samtali við Akureyri Vikublað
staðfestir Jón Páll að hann muni
flytjast norður vegna nýja starfs-
ins. Enn sé þó of snemmt að segja
hvenær. „Jú, ég mun flytja norður
með fjölskyldu, tvo inniketti og
einn hund,“ segir Jón Páll Eyjólfs-
son glaðhlakkalegur, maðurinn sem
m.a. lék skúrkinn eftirminnilega í
Hrauninu sem sýnt var í sjónvarp-
inu nýverið.
„Ég tek við stöðunni 1. janúar
en það tekur okkur tíma að losa
okkur undan skuldbindingum hér
í Reykjavík þannig að ég verð með
annan fótinn fyrir norðan fyrstu
mánuðina. Betri fótinn,“ segir Jón
Páll.
Umræða hefur orðið á opin-
berum vettvangi um hvort áskilið
ætti að vera vegna ráðninganna
að þeir sem nú hafa fengið störf á
Akureyri verði að hafa lögheimili
á Akureyri og beri að greiða útsvar
til Akureyrar líkt og hefði orðið ef
„heimafólk“ hefði verið ráðið. Þor-
valdur Bjarni Þorvaldsson stendur
í svipaðri stöðu og Jón Páll, flutn-
ingar virðast fram undan hjá hon-
um norður. Þorvaldur Bjarni hefur
verið ráðinn tónlistastjóri Menn-
ingarfélags Akureyrar og er óum-
deilt í hópi þekktustu og hæfileik-
aríkustu tónlistarmanna landsins.
Hann hefur starfað sem tónlistar-
stjóri, hljómsveitarstjóri, tónskáld,
upptökustjóri, útsetjari og gítar-
leikari með fjölmörgum listamönn-
um á Íslandi og erlendis. Hann er
með einleikarapróf á klassískan
gítar og burtfararpróf í tónsmíð-
um. Hann stofnaði hljómsveitina
Todmobile og hefur samið tónlist
við marga söngleiki og leiksýn-
ingar, t.d. Ávaxtakörfuna, Benedikt
Búálf, Gosa og Gulleyjuna. Einnig
hefur hann samið og útsett tón-
list fyrir kvikmyndir, auglýsingar,
vefsíður og sjónvarpsþætti. Hann
hefur unnið sem tónlistarstjóri í
öllum helstu menningarstofnun-
um Íslands eins og Þjóðleikhúsinu,
Borgarleikhúsinu, Leikfélagi Akur-
eyrar, RÚV, Stöð 2 og einnig unnið
mikið með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Þorvaldur var í hópi þeirra
sem nutu nafnleyndar. Bárust fyrst
upplýsingar um að hann hefði sótt
um stöðuna þegar tilkynnt var að
hann hefði fengið hana. Einn heim-
ildarmaður blaðsins sá Þorvald í
Hofi fyrir skemmstu og segist þá
hafa lagt saman tvo og tvo.
SPRENGLÆRÐUR VIÐ-
BURÐARSTJÓRI
Þriðji sviðsstjórinn er Akureyring-
um að góðu kunnur vegna ýmissa
starfa undanfarið. Sólveig Elín
Þórhallsdóttir hefur verið ráðin
viðburðastjóri hjá Menningarfé-
lagi Akureyrar. Hún lærði m.a. sýn-
ingarstjórn í Royal Central School
of Speech and Drama í London.
Hún starfaði sem sýningarstjóri um
árabil, m.a. hjá Leikfélagi Akureyr-
ar, Borgarleikhúsinu og Íslensku
óperunni. Þá stundaði Sólveig tón-
listarnám og lauk áttunda stigi í
klassískum söng frá Nýja tónlistar-
skólanum í Reykjavík. Undanfarin
sex ár hefur Sólveig verið búsett
á Akureyri. Hún lauk ML gráðu í
lögfræði við Háskólann á Akureyri
í ágúst sl. og hefur verið í starfs-
námi við Héraðsdóm Norðurlands
eystra undanfarinn mánuð. Sólveig
hefur verið viðloðandi Menningar-
húsið Hof allt frá opnun þess og
hefur starfað þar tímabundið við
sýningarstjórn, miðasölu og verk-
efnastjórn. Þá má geta þess að Sól-
veig hefur skrifað leikdóma fyrir
Akureyri Vikublað.
Jafnframt hefur verið gengið
frá ráðningu á tveimur nýjum ver-
kefnastjórum. Þórunn Geirsdóttir
hefur verið ráðin verkefnastjóri við
skipulags- og sýningastjórn.
Þórunn hefur starfað á höfuð-
borgarsvæðinu, lengst af í Þjóð-
leikhúsinu sem skipulags- og sýn-
ingastjóri. Hún lærði sýningastjórn
í The Bristol Old Vic Theatre School
og hefur unnið í flestum svið-
listastofnunum á Íslandi.
Anna Bergljót Thorarensen hef-
ur verið ráðin verkefnastjóri um
markaðsmál. Anna Bergljót er
lærður viskiptafræðingur frá Há-
skólanum á Bifröst. Þá er hún að
leggja lokahönd á nám við menn-
ingarstjórnun frá sama skóla. Frá
árinu 2007 hefur hún starfað sem
framkvæmdastjóri Leikhópsins
Lottu og umboðsskrifstofunnar
Kraðaks. Þá hefur hún sinnt hlut-
verki markaðs- og kynningarfull-
trúa í Þjóðleikhúsinu frá árinu
2012. Anna Bergljót hefur áður
Þorvaldur Bjarni. Á norðurleið.
Jón Páll. Þarf tímasvigrúm fyrir flutn-
ing fjölskyldunnar, tvo ketti og einn
hund.
Sólveig Elín Þórhallsdóttir. Sú eina í
hópi nýrra sviðsstjóra sem hefur viða-
mikla reynslu af störfum á Akureyri.
STÖÐUGREINING
Björn Þorláksson