Akureyri - 11.12.2014, Qupperneq 16
16 46. tölublað 4. árgangur 11. desember 2014
Glerárgata 34b v/ Hvannavelli · 600 Akureyri
Sími: 461 1092 · asco@asco.is
BÍLARAFMAGN - Fljót
og örugg þjónusta
BÍLARAFMAGN · VAR
AHLUTIR · RAFGEYM
AR · ALPINE · HLJÓM
FLUTNINGSTÆKI
ÓKEYPIS
RAFGEYMAMÆLING!
Eigum allar stærðir
rafgeyma á lager
Steinsmiðja Akureyrar
Glerárgata 36, S: 466 2800
Opið mán.-föst. kl. 13-17
Lampar frá:
4.900-
Kertastjakar:
1.900-
Falleg lýsing í skammdeginu
Einstök og hlýleg jólagjöf
NÝ SKAGFIRSK PLATA
Út er komin platan Ýlfur eftir Gísla Þór Ólafsson, tónlistarmann sem búsettur
er á Sauðárkróki og starfar á Héraðsskjalasafni Skagfirðingaþ Hann segir
um að ræða þriðju sólóplötuna en áður hafi komið út plöturnar Nætur-
gárun (undir flytjandanafninu Gillon, 2012) og Bláar raddir (lög við ljóð
Geirlaugs Magnússonar, úr bók hans Þrítengt, 2013). Einnig hafi komið út
5 ljóðabækur á árunum 2006-2010.
„Ýlfur er safn 10 laga og má rekja til samnefndrar kassettu sem gefin var
út í örfáum eintökum árið 1998.
Öll lög eru eftir mig auk fimm
texta, en fjórir eru eftir Geirlaug
Magnússon og einn eftir Gyrði
Elíasson.
Platan var tekin upp í Stúd-
íó Benmen á Sauðárkróki og var
upptökustjórn í höndum Sigfúsar
Arnars Benediktssonar. Mynd á
umslagi gerði Auður Eyleif Einars-
son.
Setja upp sín eigin
týndu jól
Átta krakkar á aldrinum 12-15
ára, Englahópurinn, hafa skrifað
leikritið Týndu jólin. Krakkarnir
hafa sjálf séð um leikstjórn, lýs-
ingu, sviðsmynd og annað sem þarf
og verður leikritið sýnt í Rýminu á
Akureyri. Sýnt verður í tvígang á
morgun, 12. desember, klukkan 17
og 19. Allur aðgangseyrir rennur
óskiptur til Leikfélags Akureyrar.
Leikritið fjallar um börn sem
fá ekki í skóinn og lenda í ýmsum
ævintýrum í kjölfarið. Sjón er sögu
ríkari þar sem leikur og söngur fær
að njóta sín hjá þessum hæfileika-
ríku krökkum.
Leikhópurinn tók þátt í Gullna
hliðinu sýningu Leikfélags Akur-
eyrar bæði á Akureyri og í Borg-
arleikhúsinu. Allur aðgangseyrir
rennur óskiptur til Leikfélags Ak-
ureyrar sem þeim þykir svo vænt
um.
Aðgangseyri er stillt í hóf 1000
kr.- fyrir 16 ára og eldri en 500 kr.
fyrir börn og eldri borgara.
Aðeins tvær sýningar 12. desem-
ber, klukkan 17:00 og 19:00. a
Vísindaskóli verður
að veruleika
Úthlutun úr Menningar- og viður-
kenningarsjóði KEA fór fram 27.
nóvember í Hofi, menningarhúsi
Akureyrar. Vísindaskóli Háskól-
ans á Akureyri hlaut
styrk að upphæð
500.000 kr. vegna þátt-
tökuverkefnis á sviði
menningarmála. Akur-
eyrarbær hefur heitið
svipuðu fjármagni til
verkefnisins. Einnig
hefur fengist framlag
frá Raftákni ehf. Vís-
indaskólinn er nýjung í
starfi Háskólans á Ak-
ureyri. Tilvist skólans
byggist á framlögum
frá einkaaðilum og fyr-
irtækjum en heildar-
kostnaður er áætlaður
um fjórar milljónir
króna.
Vísindaskóli HA er ætlaður
ungu fólki á aldrinum 11-13 ára.
Tilgangurinn er eftir því sem kem-
ur fram á heimasíðu Háskólans á
Akureyri annars vegar að auka val-
möguleika þegar formlegu skóla-
starfi lýkur að vori. Hins vegar að
kynna háskólann fyrir
ungmennum á svæðinu
og færa hann nær norð-
lenskum heimilum.
Boðið verður upp á
fjölbreytt námskeið sem
tengjast hefðbundnu
námsframboði skól-
ans. Munu kennarar
og nemendur HA sjá
um kennsluna. Hluti
starfsins fer fram innan
veggja skólans. Einnig
fara nemendur hjólandi
í vettvangsferðir og
hitta sérfræðinga í
ólíkum störfum, meðal
annars í sjávarútvegi
og fjölmiðlum. Vísinda-
skólinn verður starfræktur í fyrsta
sinn í júní 2015 og verður framvegis
árlegur viðburður. a
Veittir voru 34 styrkir úr
Menningar- og viðkur-
kenningasjóði KEA og
tók Sigrún Stefánsdóttir
forseti hug- og félagsvís-
indasviðs HA við styrk
Vísindaskólans.
Eyþór Ingi Jónsson