Akureyri - 11.12.2014, Síða 18
18 46. tölublað 4. árgangur 11. desember 2014
Komdu í Brimborg
- ALLT FYRIR BÍLINN -
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Margverðlaunuð finnsk gæðadekk.
Öruggustu dekkin samkvæmt FÍB Endingargóðir og kraftmiklir
rafgeymar sem gefa þér öruggt
start jafnvel í mesta frosti
Við skiptum líka um
þurrkublöð og perur ásamt
því að fylla á rúðuvökva
Bell Add vélahreinsiefni og
eldsneytisbætiefni hreinsa
vélina, minnka eyðslu og
auka kraft
Opið virka daga frá kl. 8-17
Opið laugardaga frá kl. 12-16
Veldu Nokian gæðadekk
Exide rafgeymar
Sjáðu betur!
Minni eyðsla - aukinn kraftur
Þú finnur gæða bónvörur
frá Sonax hjá okkur
Ritstjórar rífast - aukin
harka færst í byggðamál
Leiðari Fréttablaðsins í síðustu
viku þar sem Sigurjón Magnús Eg-
ilsson ritstjóri gagnrýndi afstöðu
íbúa utan höfuðborgarsvæðisins,
þeirra sem héldu fram sjálfhygli
íbúa suðvesturhornsins, hefur
vakið mikil viðbrögð og umræð-
ur. Á þræði um byggðamál á face-
book hefur verið rætt um herská
skrif og aukna pólaríseringu milli
landsbyggða og höfuðborgarsvæðis.
Virðist sem aukin harka hafi færst
í byggðaumræðu, enda er bitist um
fé og tækifæri milli landsbyggða
og höfuðborgarsvæðis. Annar rit-
stjóri, Kristinn H. Gunnarsson
fyrrum þingmaður, kveður sér
meðal annarra hljóðs í umræðunni.
Kristinn fer hörðum orðum um
kollega sinn Sigurjón ritstjóra
Fréttablaðsins og telur skrif hans
„afskaplega vond“.
Leiðarahöfundur Fréttablaðsins
skrifaði eftirfarandi klausu: „Trú-
lega hefur fólk sem býr utan mesta
þéttbýlisins sjaldan verið eins her-
skátt og nú, í baráttu við ímyndaða
óvini. Lengst hafa þingmenn Fram-
sóknarflokksins gengið, en þeir
telja fullvíst að Alþingi samþykki
vilja þeirra um að ríkið fari fram-
vegis með skipulag á flugvallar-
svæðinu í Reykjavík. Framsóknar-
mennirnir treysta ekki núráðandi
borgaryfirvöldum. Þeir hrifsa til
sín skipulagsvaldið af Reykjavík,
ímynduðum óvini sínum.“
Einnig: „Þau sem stríða við
vindmyllurnar verða að átta sig á
að það er enginn andstæðingur í
stríðinu. Þess vegna er ekkert stríð.“
Ekki eru allir sammála því að
stríðið sé ímyndað. Er sem dæmi
bent á að stórfellda eignaupptöku
fólks sem hefur á sumum land-
svæðum þuft að þola hrun fast-
eignaverðs.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson,
framkvæmdastjóri AFE, beitir háði
þegar hann bregst við: „...fólkið úti
á landi eru meinlausir karakter-
ar með furðuleg viðfangsefni eins
og við sjáum gjarnan í Landanum
og það er vitanlega sú mynd sem
borgríkisbörnin og fjölmiðlungar
hafa og birta. Skoðanir út-á-landi
“hyskisins” eru auk þess ekki “réttar”,
nema í samþykktum undantekn-
ingartilvikum, eins og leiðarinn
leiðir fram.“ -BÞ
Boðar fjölgun starfs-
manna Rúv úti á landi
Stefnt að því að ráða starfsmenn
víðs vegar um landið til að sinna
fréttaskrifum fyrir Ríkisútvarp-
ið. Þetta kom fram í erindi Freyju
Daggar Frímannsdóttur, svæðis-
stjóra Rúv, á fundi sem Samtök
atvinnurekenda á Akureyri héldu í
síðustu viku. Hún boðaði sókn Rúv
á vefnum en útilokaði að aftur yrði
blásið lífi í svæðisútvarpið.
Ummæli Freyju Daggar vöktu
athygli á fundinum í ljósi þess að
fjárhagsvandi Rúv er nú mjög til um-
ræðu. Freyja Dögg sagði að sýnileiki
starfsemi Rúv á Akureyri hefði
minnkað með niðurlagningu svæðis-
útvarpsins. Jafnvel hefði sú goðsögn
orðið lífseig að öllu hefði verið skellt
í lás fyrir norðan. Íbúum hafi fund-
ist þeir afskiptir fyrir vikið en fram
undan væru bjartari tímar. Unnið
væri að því að endurvekja miðlun á
staðbundnu efni á ákveðnum svæð-
um. Væri fyrst og fremst horft á
vef-framleiðslu. Gert væri ráð fyrir
landshlutasíðum á nýjum vef Rúv
sem senn verður tekinn í notkun. a
Þurfum að móta
okkur stefnu
Kristín Sóley Björnsdóttir hefur
verið ráðin í tímabundið starf sem
forstöðumaður Rannsóknamið-
stöðvar ferðamála (RMF). Krist-
ín Sóley er með meistaragráðu í
menningarlandfræði með áherslu
á ferðamál frá Viðskiptaháskól-
anum í Gautaborg. Hún hefur
víðtæka reynslu í verkefna- og
viðburðastjórnun og hefur gegnt
ýmsum trúnaðarstörfum á sviði
menningarmála og ferðaþjónustu.
„Starfið leggst afskaplega vel í
mig og ég hlakka til að takast á við
þetta verkefni á nýju ári. Mín fyrstu
verk verða auðvitað að kynnast
RMF á ný, starfsfólkinu sem þar
vinnur og öflugum stjórnarmeð-
limum, og að tengjast greininni á
ný með auknum krafti. Verkefn-
in sem taka við í þessu nýja starfi
mínu eru mörg, áhugaverð, ögrandi
og afar spennandi. Ferðaþjónustan
hérlendis er ung atvinnugrein og
rannsóknir tengdar henni hafa að
undanförnu fengið byr undir báða
vængi. Það er einmitt það sem gerir
starfið svo spennandi,“ segir Krist-
ín Sóley.
„Mitt hlutverk á RMF verður
meðal annars að tengja ferðaþjón-
ustuaðila og aðra hagsmunaðila
enn betur við rannsóknamiðstöðina
með því markmiði að stuðla að gerð
hagnýtra rannsókna og opins sam-
tals til að styrkja íslenska ferða-
þjónustu.“
Fráfarandi forstöðumaður, dr.
Edward H. Huijbens, hefur sinnt
starfi forstöðumanns í hálfri stöðu
samhliða kennslu og öðrum verk-
efnum við Háskólann á Akureyri
frá árinu 2006. Edward mun áfram
sinna rannsóknum í þágu ferða-
þjónustu við RMF. Spurð hvort þörf
sé á auknum rannsóknum í ferða-
þjónustu og fleiri stöðugildum í
ferðavísindum segir Kristín Sóley:
„Ísland er vinsæll áfangastaður
meðal ferðafólks og ferðaþjónust-
an hér er ung atvinnugrein sem
hefur stækkað ört. Við þurfum
því auknar rannsóknir samfara
þessari hröðu þróun. Bæði til að
fylgjast með henni en einnig til að
læra af niðurstöðunum, móta okk-
ur stefnu svo hún t.d. geti þrifist í
sátt og samlyndi við okkur sem hér
búum og auðvitað náttúruna. Auk-
in stöðugildi í fræðastörfum eru
því mikils virði. RMF mun gera sitt
eins og hingað til svo að af því megi
verða með því að benda m.a. á mik-
ilvægi þess að auka fjármagn til
rannsókna. Nú hefur RMF hert róð-
urinn bæði í fræðimennskunni og í
samskiptum við hagsmunaðila með
því að auka hlutfall starfandi rann-
sakanda við miðstöðina og ráða
forstöðumann í fullt starf. Ég horfi
björtum augum á framtíðina hvað
varðar bæði kennslu og rannsóknir
í ferðaþjónustunni og skilning hins
opinbera á mikilvægi þeirra.“ a
Svæðisstjóri flytur erindi sitt.