Akureyri


Akureyri - 11.12.2014, Qupperneq 20

Akureyri - 11.12.2014, Qupperneq 20
20 46. tölublað 4. árgangur 11. desember 2014 Það var mjög góð ákvörðun að flytja hingað norður Guðrún Karítas Garðarsdóttir, verslunarstjóri bóka- búðarinnar Eymundsson við Hafnarstræti á Akureyri, er sennilega betur inni í bóksölu á Norðurlandi en flest- ir aðrir. Hún metur stöðu bókarinnar sumpart sterka hér á landi en telur að ógnir steðji að. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu verður virðisaukaskattur á bækur hækkaður. Lýsir Guðrún Karítas áhyggjum af þeirri fyrirætlan. Þá segist hún andsnúin því að bækur séu seldar í stórmörkuðum fyrir jólin. Við tyllum okkur niður á kaffihúsi í miðbæ Akureyrar til að ræða ýmsar spurningar sem varða stöðu bókarinnar í menningu okkar Ís- lendinga. En fyrst langar mann að kynnast persónunni. Fram kemur fljótlega í spjalli okkar að það má þakka Verkmenntaskólanum á Ak- ureyri að Guðrún Karítas býr hér fyrir norðan. „Reykjavík er frábær en ég kann betur við mig hér fyrir norðan þótt allt mitt fólk sé í Reykjavík. Það urðu tímamót hjá mér áramótin 2009-2010. Þá vildi ég byrja nýtt líf og dætur mínar sem þá voru 12 og 16 ára gamlar tóku vel í nýtt upphaf – breytingar. Af því að sú eldri hafði greinst með einhverfu kom starfsbraut VMA afar sterkt inn þegar við fórum að velta fyrir okkur menntamöguleikum hennar. Ég bar starfsbraut VMA saman við aðrar námsleiðir í öðrum skólum í Reykjavík. VMA virtist einfaldlega henta betur dóttur minni en nokkur annar skóli og það gerði útslagið.“ VMA stórkostlegur skóli Hún segist ekki sjá eftir þessari ákvörðun. „Dóttir mín hefur nú útskrifast eftir 4 ára nám á starfs- braut VMA og ég verð bara að segja að okkur finnst VMA stórkostlegur skóli, starfsmenn brautarinnar eiga mikinn heiður skilið. Hún er núna komin í nám við Húsmæðraskólann í Hallormsstað og kemur flott heim í jólafríið til að hjálpa mömmu að baka! Það verður mjög gott að fá hana heim. Dætur mínar eru dug- legar stelpur, þær bjarga mér oft. Þær vilja báðar búa hérna sem seg- ir mér að hér líður okkur vel og að það var mjög góð ákvörðun að flytj- ast hingað norður.“ Fjölskyldan er blönduð fjöl- skylda eða samsett fjölskylda eins og það kallast líka. Hún sam- anstendur af Guðrúnu Karítas og fyrrnefndum dætrum, Védísi Elvu og Ásdísi Eir. Eiginmaður Guðrún- ar Karítasar er Böðvar Kristjáns- son. Hann á tvö börn, Kristbjörgu og Jón „...og svo er það samein- ingarbarnið okkar, kötturinn Leó,“ segir Guðrún Karítas og hlær. Ólst upp í Bókabílnum Ég spyr hvort hún hafi séð fyrir sér sem barn að hún ætti eftir að vinna í bókabúð. „Nei, ég hugleiddi það nú aldrei. En ég hafði lengi átt mér draum að starfa við eitthvað skapandi, en þrátt fyrir það valdi ég aðra menntun sem þó nýtist mér vel í dag þannig að þetta kemur allt heim og saman.“ Varstu bókaormur sem barn? „Já, ég var bókaormur, varð læs fjögurra ára gömul og lifði fyrir bókabílinn í Reykjavík. Bókabíll- inn kom tvisvar í viku, það var hrópað og kallað þegar hann kom í hverfin. Ég man enn lyktina inni í honum, svo valdi maður rétti af hlaðborðinu og fór heim með full- an poka. Legið í bókum þangað til hann kom næst.“ Í ljós kemur að Astrid Lindgren er sá höfundur sem Guðrún Karít- as hreifst mest af sem barn. Emil í Kattholti var í sérstöku uppáhaldi en hún nefnir einnig Fimm fræknu, Öddu bækurnar og Frank og Jóa. Af innlendum höfundum var Guðrún Helgadóttir í uppáhaldi. Mikil áskorun að stýra búðinni Þegar Guðrún Karítas hóf störf sem verslunarstjóri Eymundsson á Akureyri segir hún að umfang reskstrar búðarinnar hafi komið henni mest á óvart. Hún sé rekstr- arfræðingur að mennt og hafi bæði unnið hjá fjármálafyrirtækjum og í endurskoðun þegar tæki- færið gafst árið 2011 að kúvenda starfsferlinum. „Ég bara stökk út í djúpu laugina og er enn að læra. Sem dæmi hafði ég áður aldrei haft forræði yfir fólki en í bókabúðinni starfa um 30 starfsmenn þegar mest er þannig að þetta hefur verið mikil áskorun. Það fer mikill tími í starfsmannamál, alls konar mál Guðrún Karítas Garðarsdóttir, verslunarstjóri í Eymundsson á Akureyri. Þakkar VMA búsetu sína, botnar lítið í forgangsröðun stjórnvalda og vill bækur burt úr matvörubúðum. MESTUR VERÐMUNUR Á ORÐBRAGÐI Samkvæmt verðkönnun ASÍ á jólabókum í 7 bókabúðum og matvöru- verslunum víðsvegar um landið nýverið er mestur verðmunur milli búða á fræðibókinni Orðbragð. Bókin var á lægsta verðinu hjá Bóksölu stúdenta á 3.595 kr. en dýrust hjá Forlaginu á 5.390 kr. sem er 1.795 kr. verðmunur eða 50%. Minnstur verðmunur í könnuninni var á barnabókinni Gula spjaldið í Gautaborg eftir Gunnar Helgason sem var ódýrust hjá Bónus á 2.959 kr. en dýrust hjá Bóksölu stúdenta á 3.495 kr. sem er 536 kr. verðmunur eða 18%. OFTAST 25-50% VERÐMUNUR Sem dæmi um mikinn verðmun á vinsælum titlum fyrir jólin má nefna að bókin DNA eftir Yrsu Sigurðardóttur var ódýrust á 3.998 kr. hjá Bónus en dýrust á 5.690 kr. hjá Forlaginu, sem er 42% verðmunur. Einnig var mikill verðmunur á prjónabókinni Litlu skrímslin – skemmtilegt dýraprjón á yngstu börnin sem var ódýrust á 3.079 kr. hjá Bónus en dýrust á 3.995 kr. hjá Bóksölu stúdenta sem er 30% verðmunur. Að lokum má benda á að Kamp Knox eftir Arnald Indriðason var ódýrust á 3.999 kr. hjá Krónunni en dýrust á 5.690 kr. hjá Forlaginu sem er 42% verðmunur.

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.