Akureyri


Akureyri - 11.12.2014, Page 24

Akureyri - 11.12.2014, Page 24
AUGLÝSINGAR 578 1190 & AUGLYSINGAR@FOTSPOR.IS | RITSTJÓRN 862 0856 & BJORN@AKUREYRIVIKUBLAD.IS 14.500 EINTÖK FRÍTT UM ALLT NORÐURLAND Á HVERJUM FIMMTUDEGI UM DAGINN OG VEGINN HRAFNDÍS BÁRA SKRIFAR Límbands­ jól Jæja. Þá gerist það. Jólin fara að bresta á með öllum sínum hefðum og dyntum. Þegar þetta er ritað er húsmóðirin á heimilinu á barmi taugaáfalls þar sem hún hefur ekki farið í tilhlýðilegar tiltektir í geymslum og búri né edikþrifið eld- húsinnréttinguna hátt og lágt. Eina jólaskrautið sem upp er komið er tilgerðarlega stór jólastjarna með ljósi og búið að leiða snúrur, fram- lengingar og fjöltengi um stofuna þvers og kruss. Það er reyndar fátt jólalegra en leiðslur og snúrur um allt hús. Þessi dásamlega birtingarmynd þess að senn fari hátíð í hönd. Snúrurnar má líma niður með brúnu límbandi, sem sannarlega gefur heimilinu þennan skemmtilega mínímalíska brag og minnir þig á æskuheimil- ið og rafvirkjahæfileika föður þíns. Nú eða látið liggja og lafa með frjálsri aðferð og leyfir gestum að sjá hvað þú ert í raun frjálsleg og andlega þenkjandi. Fólk gæti jafn- vel haldið að þú stundaðir jóga og innhverfa íhugun. Jólaskreytingar eru hinsvegar ekki til neins ef ekki á að fylgja hinum aldagömlu og bráðnauðsyn- legum hefðum um jólaþrif. Það hefur sýnt sig og sannað í gegnum tíðina að hvorki almáttugur guð og eða sonur hans, nú eða Þór, Óð- inn og allir hinir eða hver svo sem andinn er, lætur ekki sjá sig inn- an um rykugar hillur eða kámugt postulín. En hvað er til ráða fyrir hugmyndafræðilega önnum kafna húsmóðurina? Alveg eins og Bjössi, gamli kennarinn minn í grunnskóla, kenndi okkur að örlítið WD40 í miðstöðina gæfi bílnum þessa góðu nýjabílalykt og myndi tryggja sölu hvaða skrjóðs sem er þá hef ég fulla trú á ajaxblöndu á ofnana. Annars er alltaf hægt að hringja í ISS. a Ve ru m gá fu ð og bo rð um fi sk Kv eð ja G rím ur k ok ku r ww w. gr im ur ko kk ur .is Pl ok kf is ku r - H ol lu r k os tu r t ilb úi nn á 5 m ín .

x

Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.