Akureyri - 29.03.2012, Síða 1
V I K U B L A Ð29. MARS 201213. tölublað 2. árgangur
Sími 856 3451 • www.vilji.is
Stuðnin
gs
stöngin
vilji.is
...léttir þér lífið
Stuðningsstöngin er hjálpar- og öryggistæki sem auðveldar fólki að vera virkt og athafnasamt við daglegt líf án þess að þurfa að reiða sig
á aðra. Margir Iðjuþjálfarar, sjúkraþjálfarar og læknar hafa mælt með stuðningsstöngunum fyrir sína skjólstæðinga.
• Auðveld í uppsetningu.
• Engar skrúfur eða boltar.
• Tjakkast milli lofts og gólfs.
• Hægt að nota við hallandi loft, 0 – 45°
timbur/gifsloft.
Stuðningsstangirnar hafa fengið verðlaun fyrir notagildi, öryggi og hönnun á alþjóðlegum hjálpartækjasýningum í USA.
• Margir aukahlutir í boði.
• Falleg og nútímanleg hönnun.
• Passar allstaðar og tekur lítið pláss.
• Stillanleg frá 225 – 307 cm lofthæð,
togátak allt að 205 kg.
Yfir 500
0 noten
dur
á Ísland
i síðan
1999
Eineltismál innan slökkviliðsins
Eineltisvandi er í gangi innan Slökkvi-
liðsins á Akureyri. Ófullnægjandi
starfsandi bitnar á öllum liðsmönnum
og hefur milljónum verið varið í sál-
fræðikostnað slökkviliðsmanna í þeim
tilgangi að leysa deilur. Eiríkur Björn
Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri,
segir að lausna sé leitað. Vandinn hafi
grasserað í nokkur ár.
Þorbjörn Guðrúnarson sem tók við
starfi slökkviliðsstjóra árið 2006 vill
ekki tjá sig um málið en dæmi um
starfsandavandamál innan liðsins röt-
uðu í fjölmiðla og urðu opinber áður en
hann varð slökkviliðsstjóri. Virðist því
sem um staðbundið mein innan liðsins
sé að ræða sem illa gengur að vinna á.
Blaðið spurði Eirík Björn bæjarstjóra
hvað honum fyndist um að milljón-
ir af skattfé þyrfti til að stoppa upp í
starfsandagöt slökkviliðsmanna. Hann
sagði mestu máli skipta að leysa vandann
og lausnir kostuðu peninga. Málið væri á
viðkvæmu stigi og þess vegna vildi hann
sem minnst tjá sig í fjölmiðlum á þessum
tímapunkti. Slökkviliðsmaður sem ekki
vildi láta nafns síns getið sagði „hörm-
ungarmóral“ innan liðsins og að um það
yrði að fjalla. Annars yrðu engar úrbætur.
Akureyrarbær rekur nú alfarið
slökkvilið Akureyrar en liðið er einnig
með stóran verktakasamning við ríkið.
Allir sem blaðið ræddi við voru sammála
um að þótt málið væri erfitt stafaði al-
mannaheill ekki hætta af því ástandi
sem nú ríkir. Í neyð settu menn deilur
til hliðar.
„Hins vegar bitnar svona ástand á
öllum hópnum, ekki bara þeim sem í
hlut eiga og þess vegna verður að leysa
vandann sem fyrst,“ segir Eiríkur Björn
Björgvinsson bæjarstjóri. a
KRISTINN E. HRAFNSSON opnaði áhugaverða sýningu í Sjónlistamiðstöðinni síðasta laugardag. Daníel Starrason myndaði Kristin og túlkaði sýn-
inguna með linsunni. Daníel birtir ljósmyndir af bæjarlífinu á fésbókarsíðunni „Augnablik á Akureyri“. sem allir ættu að líta á.