Akureyri


Akureyri - 29.03.2012, Síða 7

Akureyri - 29.03.2012, Síða 7
8 29. MARS 2012 AÐSEND GREIN (Ó)löglegt niðurhal Ólöglegt niðurhal á veraldarvefnum hefur verið nokkuð í umræðunni upp á síðkastið. Ég tel mig vita ágæt- lega um hvað málið snýst þar sem ég hef sjálfur nokkra reynslu af því að „download-a“ eða niðurhala efni af netinu. Mín skoðun er að ekki eigi að vera neitt á netinu sem heitir ólög- legt niðurhal. Tökum dæmi: Jón langar að sjá kvikmynd en tímir ekki að kaupa hana í búð. Hann niðurhalar henni af netinu og finnst hún góð. Vegna þess ákveður hann að fara í búðina til að kaupa myndina. Ef hins vegar hann hefði ekki getað niðurhalað myndinni hefði möguleikinn á að kaupa myndina augljóslega aldrei verið til staðar. Báðir aðilar græða, kaupandi og seljandi. Svo kemur kannski mynd númer tvö í sömu ser- íu og Jón ákveður að kaupa hana líka. Vegna niðurhalsins stóð seljandinn uppi með tvö seld eintök sem annars hefðu endað á lager. Ólöglegt niðurhal er lögbrot. Staðreyndin er samt sú að margir stunda þessa iðju. En þá finnst mér skipta máli frá hverjum verið er að niðurhala. Fyrirtæki og einstak- lingar sem búa til efni í þágu góðs málefnis og ná kannski varla end- um saman fjárhagslega eiga kannski ekki skilið að verið sé að hafa af þeim tekjur með ólöglegu niðurhali. Þarna er kannski bara venjulegt fólk að reyna að vinna heiðarlega vinnu og afla tekna. Það er annað að niðurhala efni frá stóru fyrirtækj- unum sem eiga nóg af peningum og eru ekki að hugsa um neitt annað en græða meiri peninga þó það geti haft skaðleg áhrif á notendur. Margir segja að það sé þjófnað- ur að niðurhala. Hugsum okkur að Nonni eigi epli. Hann leggur það frá sér. Manna tekst að klóna eplið hans Nonna án þess að taka það. Manni stendur uppi með nákvæmlega eins eintak án þess svo mikið sem snerta frumeintakið. Er Manni að stela frá Nonna? Í það minnsta set ég spurn- ingamerki við það. Af hverju er ekki einfaldlega lok- að fyrir niðurhalið með einhverjum hætti ef þetta er ólöglegt? Það er ekki hægt að stoppa ólöglegt niðurhal. Þetta er veruleikinn sem blasir við, heimur án landamæra og ákveðið samfélag þar sem allir standa saman. Þeir sem lifa í þessum heimi, og þeir eru ófáir, trúa á frjálst flæði efnis á netinu. Þess vegna er ómögulegt að koma í veg fyrir ólöglegt niðurhal án þess hreinlega að loka bara fyrir alla netnotkun. Þá myndi fólk sennilega finna aðrar leiðir til að fá ódýrara efni eða án þess að greiða nokkuð fyrir það. Gabríel Snær Jóhannesson Á SLÓÐUM VEST- UR ÍSLENDINGA Í MANITOBA Þjóðræknisfélagið og utanrík- isráðuneytið munu halda kynn- ingarfund í Amtbókasafninu á Ak- ureyri laugardaginn 31. mars n.k. kl. 14.00. Atli Ásmundsson, a ð a l r æ ð i s - maður Íslands í Winnipeg, mun á fundin- um halda er- indi í máli og myndum sem hann kallar Á slóðum Vest- ur-Íslendinga í Manitoba. Atli hefur kynnst fjölda af áhuga- verðu fólki af íslenskum ættum í Manitoba á þeim átta árum sem hann hefur starfað sem aðal- ræðismaður þar. Þá mun Almar Grímsson, fyrrverandi forseti ÞFÍ kynna starfsemi og hlutverk Þjóðræknisfélagsins. Kvennakór Akureyrar, sem áformar söngferð á slóðir Íslendinga í Vesturheimi, mun syngja við upphaf og lok fundarins. Allir Akureyringar, áhugasamir um tengsl,sögu og menningu vestur - Íslendinga í Kanada eru hvattir til að mæta. Aðgangur er ókeypis. ATLI ÁSMUNDSSON MATARGATIÐ ALLSKONAR.IS Nýstárleg svínasteik og ofnbakað meðlæti SVÍNASTEIK MEÐ ENGIFER » 1.5-2 kg Svínakjöt með pöru » 4 hvítlauksrif » 4 cm bútur engiferrót » 4 msk ólífuolía » 4 msk hvítvínsedik » 450ml grænmetissoð » 10 svört piparkorn » 4 stjörnuanís Hitaðu ofninn í 220°C. Í matvinnsluvél eða mortéli maukarðu saman hvítlaukinn, engi- ferinn, olíuna og edikið. Skerðu í pöruna og nuddaðu maukinu vel inn í skurðinn og á allt kjötið. Settu kjötið í ofnpott, með pöruna upp. Ekki setja lok á pottinn strax. Steiktu kjötið í 30 mínútur, þú ert fyrst og fremst að fá pöruna stökka. Eftir 30 mínútur lækkarðu hitann niður í 160°C, setur steikina á hliðina, hellir soðinu í botninn og bætir pip- arkornunum og stjörnuanísnum við og lokar pottinum, annaðhvort með loki eða álpappír. Kjötið á að steikj- ast við þennan hita í 2.5 klst, hvorki meira né minna. Ef þú vilt extra stökka pöru, þá steikirðu kjötið í 15 mínútur í viðbót. Snýrð því þannig að paran sé upp, hækkar hitann í 220C og fylgist vel með! Láttu kjötið standa í 10-15 mín- útur áður en það er borið fram. Helga Kvam matargat OFNBAKAÐ RÓTARGRÆNMETI » 1 fennell » 2 rauðrófur » 1 sellerírót » 1 steinseljurót » 4 skallottulaukar » 4 hvítlauksrif » 2 msk þurrkaðar kryddjurtir (timian, rósmarín) » 2 msk rauðvínsedik » 2 msk olía » salt og pipar Hitaðu ofninn í 180°C. Þvoðu grænmetið eins vel og þú getur, flysjaðu það sem ekki er hægt að þvo nægilega vel. Skerðu í frekar stór stykki; fennel, steinseljurót og rauðrófur í 4 bita, sellerírót í 8-10 bita, flysjaðu skallottulaukana og hvítlauksrifin og settu heil út í eldfast mót ásamt öllu rótargrænmetinu. Blandaðu saman í skál ediki, olíu, smá salti og kryddjurtunum og helltu yfir. Notaðu hendurnar til að velta grænmetinu vel upp úr olíublöndunni. Bakaðu í 30-40 mínútur. FLJÓTLEG SINNEPSSÓSA » 1 msk smjör » 1 skallottulaukur, fínsaxaður » 2 msk gróft sinnep » 1 tsk andarkraftur (eða villikraftur) » 250 ml rjómi » salt og pipar Steiktu laukinn í smjörinu þar til hann er glær. Settu þá sinnepið út í og andarkraftinn og hrærðu vel. Helltu því næst rjómanum út í og láttu suðuna koma upp. Í þessa sósu getur þú sett steikta sveppi og / eða soðið af kjötinu til að bragðbæta hana. Athugaðu að yfirgnæfa ekki sinnepsbragðið, en það er einmitt svo frábært bragð með svínakjötinu. Þú getur þykkt sósuna með hveiti eða kartöflumjöli. Smakkaðu til með salti og pipar. a

x

Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.