Vísbending


Vísbending - 18.07.2011, Blaðsíða 2

Vísbending - 18.07.2011, Blaðsíða 2
2 V í s b e n d i n g • 2 6 . t b l . 2 0 1 1 Íslendingar og fleiri ræða mikið um kosti og galla myntbandalaga og eink-um evrusvæðið. Það er eðlilegur hluti af Evrópusambandsumræðunni. Mynt- bandalög eru ekki ný af nálinni. Banda- ríkin notast öll við sama dalinn og gömlu Sovétríkin notuðu öll sömu rúbluna. Enn sem komið er notar hins vegar ekki nema hluti af Evrópusambandinu evrur, enda hin sameiginlega mynt aðeins 10 ára og ekki sjálfgefið að taka hana upp. Umfjöll- un á Íslandi um Evrópusambandið og hina sameiginlegu mynt - evruna - minnir því miður oft meira á trúarbragðadeilur en fræðimennsku. Margir Íslendingar halda fram að núverandi efnahagsófarir Íslands séu vegna þess að Ísland notar krónuna en ekki evru, meðan aðrir segja að efnahags- ófarir Grikklands séu evrunni að kenna. Það er alltaf gott fyrir sálina að geta kennt öðrum en sjálfum sér um ófarir sínar. Að vísu hefur höfundur ekki enn séð að Kali- forníustjórn kenni Bandaríkjadalnum um skuldir fylkisins, enda ekki líklegt að það myndi verða tekið sem gild afsökun fyrir að hafa eytt um efni fram. Í þessari grein verður fjallað um kosti og galla mynt- bandalaga. Kostir og gallar myntbandalaga Málið er hins vegar ekki alveg eins ein- falt og taflan sýnir. Ef ekki eiga að verða árekstrar í myntbandalagi, þurfa aðildar- ríkin að vera svipuð: Opin hagkerfi1. Auðvelt að flytja vörur, fjármagn og 2. vinnuafl á milli landa, eða a.m.k. að laun og verðlag séu ekki fryst, heldur geti hækkað og lækkað eftir þörfum hagkerfisins Verðbólga og framleiðni sambærileg og 3. vilji til að halda þeim svipuðum Hagvöxtur svipaður innan svæðisins4. Fjármála- og lagaumhverfi líkt í öllum 5. löndunum Ríkisfjármál og skattlagning ekki mjög 6. frábrugðin hvert öðru Hagkerfin fjölhæf en ekki bundin við 7. eina framleiðslugrein Myntbandalög og evruvæðing Takmörkuð þörf fyrir að nota gengis-8. sveiflur í hagstjórn Vilji til þess að vinna saman9. Ísland er Evrópuríki hvort sem skoðað er sögulega, viðskiptalega, menningarlega eða stjórnarfarslega. Um 3/4 hlutar utan- ríkisviðskipta Íslands eru við Evrópska efnahagssvæðið, þar af um helmingur við núverandi evrusvæði. Taki Ísland upp aðra mynt en krónu eru vart önnur myntsvæði sem Ísland á samleið með en Evrópa. Það er ávísun á árekstra að taka upp mynt ríkis sem Ísland á ekki nema sáralítil viðskipti við, þar sem þarfir myntsláttu ríkisins ráða ferðinni og fylgiríkið verður fyrr eða síðar undir. Seðlabankar annarra ríkja verða aldrei eign Íslendinga. Hins vegar er Seðlabanki Evrópu sameign Evrópu- sambandslandanna. Hagfræðingum ber ekki saman um full áhrif myntbandalaga. Flestir eru þó sammála um að sameiginleg mynt auki viðskipti og aukin viðskipti auki almenna velferð. Í fyrstu hefur það nokkurn kostn- að í för með sér að skipta um mynt - og nýju myntinni er réttilega kennt um - en aukin milliríkjaviðskipti munu til langs tíma litið yfirvinna kostnaðinn margfalt, svo framarlega sem nýja myntin er mynt landa sem Ísland á efnahagslega samleið með. Leiða má líkur að því að langtíma- áhrif evruvæðingar á Íslandi leiði til þess að þjóðarframleiðsla verði í kaupmætti mælt nálægt 5% meiri en ef Ísland er utan myntsamstarfs Evrópu. Undirstrika þarf að þetta gerist hægt og sígandi á u.þ.b. tveimur áratugum en ekki á einu bretti. Þjóðarframleiðsla Íslands verður vænt- anlega meiri eftir 20 ár en hún er núna, hvort sem landið er í myndbandalagi eða ekki. Þessi áætluðu 5% bætast ofan á aðra aukningu. Smávægilegur munur er á milli rannsókna, en allar sýna þær aukningu.i Hefði íslensku hagkerfi verið stýrt af sömu alúð og hæfni og t.d. Þjóðverjar hafa gert síðustu 50 ár, væri efnahagslífið hér á landi í lagi. Íslendingum hefur hins vegar ekki tekist vel upp í hagstjórn og þá þarf að gera eitthvað í málinu. Spurning- in er ekki hvort eitthvað skuli gera heldur hvað. Hvað þyrfti Ísland að gera til að taka upp evru? Evrópusambandið ætlast til þess að ný aðildarríki taki upp evru sem mynt. Sam- bandið er hins vegar ekki sátt við að ríki sem ekki eru í bandalaginu taki upp evru einhliða, enda mun utangarðsríki ekki hafa nein áhrif á ákvarðanir Seðlabanka Evrópu. Ef evrur yrðu teknar upp einhliða á Íslandi - í óþökk ES - yrði öllum íslensk- um krónum „hent í ruslið“ og gjaldeyris- forði Seðlabanka Íslands notaður til að kaupa evrur og láta Íslendinga fá í skipt- um fyrir krónurnar sem hætta að vera til sem gjaldmiðill. Ísland hefur ekki heimild til að prenta evrur né heldur til að búa til rafrænar evrur á bankareikningum. Þetta væri í raun svipað og að fleygja gjaldeyris- forða landsmanna. Ef Ísland gengur í Evrópusambandið og í myntbandalagið er öllum íslenskum krónum, jafnt seðlum sem rafrænum inni- stæðum, skipt út fyrir evrur af Seðlabanka Evrópu án þess að gjaldeyrisforði Seðla- banka Íslands komi þar við sögu. En hvað þarf Ísland að gera annað en að ganga í Evrópusambandið til að taka upp evru? Efnahagsmálin þurfa að vera í lagi áður en þjóð getur tekið upp evruna og þurfa að hafa verið nokkuð stöðug síðustu eitt til tvö árin fyrir upptöku hennar. Skilyrð- in, sem kennd eru við Maastricht, eru: Verðlag þarf að hafa verið stöðugt. 1. Verðbólga árið fyrir upptöku evru má ekki hafa verið meiri en 1,5% hærri en í þeim þrem ríkjum bandalagsins þar sem verðbólga er minnst. Skuldir ríkissjóðs séu innan við 60% 2. af þjóðartekjum eða a.m.k. nálgist það mark. Ennfremur má halli ríkissjóðs (eyðsla umfram tekjur) ekki vera meiri en 3% af þjóðartekjum, nema um smávægileg og tímabundin frávik sé að ræða. Magnús Bjarnason Doktor í stjórnmálahagfræði Leiða má líkur að því að langtíma­ áhrif evruvæð­ ingar á Íslandi leiði til þess að þjóðarframleiðsla verði í kaupmætti mælt nálægt 5% meiri en ef Ísland er utan myntsam­ starfs Evrópu.

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.