Vísbending


Vísbending - 23.04.2012, Síða 3

Vísbending - 23.04.2012, Síða 3
V Í S B E N D I N G • 1 6 T B L 2 0 1 2 3 fyrir miðjan tíunda áratuginn er hærri hér á landi en í Danmörku, en hafa verður í huga að fasteignaverð á Íslandi var hátt miðað við Danmörku á þessum tíma eins og sést á mynd 1. Þar af leiðandi er upphæð íslenska lánsins hærri á hvern fermetra en dönsku lánanna. Frá miðjum tíunda áratugnum fram á miðjan fyrsta tug þessarar aldar er meðalgreiðslubyrði af íslenska lánsinu heldur minni en þess danska á föstum vöxtum. Meðalgreiðslubyrði vegna íslenskra lána hækkaði mikið á árunum fyrir hrun vegna hækkandi fasteignaverðs og mikillar verðbólgu í kjölfar hrunsins. Þessi munur hefur aftur horfið á árunum eftir hrun með fallandi fasteignaverði hér á landi. tímakaup og ekki ráðstöfunartekjur, en með því slapp höfundur við að kynna sér danska skattkerfið. Gert er ráð fyrir að einstaklingur kaupi einn fermetra af íbúðarhúsnæði og fjármagni kaupin að fullu með jafngreiðsluláni til 25 ára. Íslenska lánið er verðtryggt á föstum vöxtum en gert er ráð fyrir að tvennskonar óverðtryggð dönsk lán séu í boði, annars vegar á föstum vöxtum og hins vegar fljótandi vöxtum. Rétt er að benda á að þetta síðast nefnda form lána er hagstæðara en hagstæðustu lán sem í boði eru í Danmörku. Greiðslubyrði er metin sem meðaltímafjöldi að baki árlegri afborgun. Eftirfarandi gögn eru notuð: Fyrir Ísland: Meðalfermetraverð á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu frá Þjóðskrá. Regluleg meðallaun fullvinnandi launamanna á almennum vinnumarkað og lánskjaravísitala frá Hagstofu Íslands. Verðtryggðir vextir frá Seðlabanka Íslands og ýmsum heimildum (eldri gögn). Fyrir Danmörk: Vísitala húsnæðisverðs og meðaltímalaun fullvinnandi launa- manna á almennum vinnumarkaði frá Statistikbanken hjá Danmarks Statistik. Fermetraverð á íbúðarhúsnæði í Kaup- mannahöfn frá www.boliga.dk. Vextir á löngum og stuttum húsnæðislánum á fljótandi vöxtum frá Realkreditrådet. Samanburðarhæf gögn fengust fyrir tímabilið 1992 til 2010. Svipað húsnæðisverð Mynd 1 sýnir fermetraverð á íbúðarhús- næði í Kaupmannahöfn (Danmörk) og höfuðborgar svæðinu (Ísland) frá 1992 til 2010. Eins og sjá má var fasteignaverð í Danmörku nokkru lægra en á Íslandi framan af tímabilinu. Danski húsnæðis- markaðurinn var á leið upp úr mikilli lægð í kjölfar bankakreppunnar þar í landi á ofanverðum níunda áratugnum. Frá 1998 hefur fasteignaverð í borgunum tveim- ur hins vegar haldist mjög vel í hendur ef mælt er með þessum hætti. Myndin sýnir að húsnæðisverð tók að hækka á árunum 2004 til 2005 í báðum löndunum og náði hámarki 2006 til 2007. Húsnæðisverð hefur fallið síðan og nálgast mjög það verð sem gilti fyrir hækkunina. Verðið hækkaði samkvæmt mynd 1 skarpar og meira í Danmörku en hér á landi. Niðurstöðurnar sem fram koma á mynd 1 styðja þá kenningu að náið sam hengi sé milli launa og fasteignaverðs. Niður stöðurnar virðist einnig benda til þess að meðan fasteignaverð hér á landi er farið að nálgast sögulegt samhengi við laun sé fasteignaverð í Danmörku enn frekar hátt. Greiðslubyrði svipuð með fasta vexti Mynd 2 sýnir árlega meðalgreiðslubyrði af jafngreiðsluláni til 25 ára á föstum vöxtum sem notað er til að fjármagna fasteignakaup á þeim kjörum sem mynd 1 sýnir. Íslenska lánið er verðtryggt á föstum vöxtum en dönsku lánin óverðtryggð, annars vegar með föstum og hins vegar fljótandi vöxtum. Til einföldunar er reiknað með að lánað sé fyrir öllu kaupverðinu í upphafi og lánin ekki endurfjármögnuð á tímabilinu. Niðurstöðurnar á mynd 2 sýna að greiðslubyrði íslenskra verðtryggðra lána hefur verið svipuð og greiðslubyrði danskra lána sem bera fasta vexti. Myndin sýnir að meðalgreiðslubyrði lána sem tekin voru   ㄀ ㈀ ㌀ 㐀 㔀 㘀 㜀 㠀 㤀 ㄀  ㄀㤀㤀  ㄀㤀㤀㈀ ㄀㤀㤀㐀 ㄀㤀㤀㘀 ㄀㤀㤀㠀 ㈀    ㈀  ㈀ ㈀  㐀 ㈀  㘀 ㈀  㠀 ㈀ ㄀  ㈀ ㄀㈀ 섀 爀氀 攀最 洀 攀 愀氀 最爀 攀椀 猀 氀甀 戀礀 爀 椀Ⰰ 甀渀 渀椀 爀 琀 洀 愀爀 ⼀洀 ㈀ 섀爀 猀攀洀 氀渀 攀爀 琀攀欀椀 䐀愀渀洀爀欀 ⴀ 昀氀樀琀愀渀搀椀 瘀攀砀琀椀爀 䐀愀渀洀爀欀 ⴀ 昀愀猀琀椀爀 瘀攀砀琀椀爀 촀猀氀愀渀搀 ⴀ 瘀攀爀琀爀礀最最琀 Mynd 2: Samanburður á meðalgreiðslubyrði á íslenskum og dönskum lánum m.v. húsnæðisverð Samanburður á árlegri meðalgreiðslubyrði af jafngreiðsluláni til 25 ára á m.v. fasteignaverð sam- kvæmt mynd 1. Íslenska lánið er verðtryggt en þau dönsku óverðtryggð. Heimildir: Sjá grein   ㄀ ㈀ ㌀ 㐀 㔀 㘀 㜀 㠀 㤀 ㄀  ㄀㤀㤀  ㄀㤀㤀㈀ ㄀㤀㤀㐀 ㄀㤀㤀㘀 ㄀㤀㤀㠀 ㈀    ㈀  ㈀ ㈀  㐀 ㈀  㘀 ㈀  㠀 ㈀ ㄀  ㈀ ㄀㈀ 섀 爀氀 攀最 洀 攀 愀氀 最爀 攀椀 猀 氀甀 戀礀 爀 椀Ⰰ 甀渀 渀椀 爀 琀 洀 愀爀 ⼀洀 ㈀ 섀爀 猀攀洀 氀渀 攀爀 琀攀欀椀 䐀愀渀洀爀欀 ⴀ 昀氀樀琀愀渀搀椀 瘀攀砀琀椀爀 䐀愀渀洀爀欀 ⴀ 昀愀猀琀椀爀 瘀攀砀琀椀爀 촀猀氀愀渀搀 ⴀ 瘀攀爀琀爀礀最最琀 Mynd 3: Meðalgreiðslubyrði á jafndýrum fasteignum í Danmörku og á Íslandi Samanburður á árlegri meðalgreiðslubyrði af jafngreiðsluláni til 25 ára m.v. sama fasteignaverð í báðum löndunum. Íslenska lánið er verðtryggt en dönsku lánin óverðtryggð á föstum og fljótandi vöxtum. Heimildir: Sjá grein framhald á bls. 4

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.