Vísbending - 22.10.2012, Page 1
Vikurit um viðskipti og efnahagsmál
V Í S B E N D I N G • 4 2 T B L 2 0 1 2 1
er hinn raunverulegi vandi þeirra sem
keyptu á þessum árum. Greiðslubyrðin
hefur ekki breyst mikið, en þeir sem þurfa
22. október 2012
42. tölublað
30. árgangur
ISSN 1021-8483
Hvort liggur vandi
fasteignakaupenda í
lánskjaravísitölunni eða
verðbólu árin 2005-8?
Munurinn á vöxtum
verðtryggðra og
óverðtryggðra lána sýnir
vanmat í verðbólguspám.
Skoða þarf viðmiðunar-
vexti við núvirðingu á
skuldabréfum í úttekt á
lífeyrissjóðum.
Íslenska krónan
sér til þess að tíma
æðstu starfsmanna
Seðlabankans er vel varið.
1 32 4
Vandi lánþega
Eitt af þeim málum sem ber hæst í þjóðmálaumræðunni undanfarin ár er skuldaklyfjar almennings.
Flestir stjórnmálaflokkarnir hafa komið
með tillögur til þess að leysa þennan
vanda. Dómar Hæstaréttar um ólögmæti
gjaldmiðilstengingar hafa breytt stöðu
margra þeirra sem verst virtust standa.
Enn eru þó margir óánægðir með sitt
hlutskipti eftir hrun og stjórnmálamenn
kenna lánskjaravísitölunni um. Vísbending
skoðar þessa fullyrðingu.
Skuldafjötrar
Á mynd 1 sést hvernig lánskjaravísitalan
hefur þróast m.v. laun undanfarin tólf
ár. Myndin sýnir að lengst af hafa laun
hækkað meira en vísitalan (sem byggir
á vísitölu neyslu sem mælir almennar
launahækkanir). Þannig hafa laun
hækkað um tæplega 15% umfram
lánskjaravísitöluna frá upphafi til loka
tímabilsins, þrátt fyrir hrunið. Sá sem
tók lán í upphafi tímabilsins borgar nú
lægra hlutfall af launum en hann gerði í
upphafi. Hins vegar er staða þeirra sem
tóku lán tengd lánskjaravísitölu á árunum
2006-8 lakari núna en þegar þeir tóku
lánin. Verst er hafa þeir orðið úti sem
tóku lán frá janúar 2007 fram á mitt ár
2008. Staða þeirra er 6-8% verri nú en
á lántökudegi. Þetta er auðvitað slæmt
en varla heimsendir. Samt kvarta margir.
Hvað skýrir það?
Húsnæðisokur
Seinni myndin sýnir hvernig verð á
húsnæði hefur breyst m.v. laun á sama
tímabili. Þar sést að þeir sem keyptu
húsnæði um og upp úr aldamótum
eru í ágætri stöðu. Húsnæði þeirra er
nú verðmætara en þegar þeir keyptu.
Fasteignaverð hækkaði hins vegar mikið
þegar bankarnir hófu að veita íbúðalán.
Markaðurinn jafnaði sig ekki fyrr en í
ársbyrjun 2011 og þeir sem keyptu á
árunum 2005-8 sitja uppi með það að
íbúðir þeirra eru nú 20-25% verðminni
m.v. laun en þær voru á kaupdegi. Þetta
Mynd 1: Hækkun launa m.v. lánskjaravísitölu
2000-2012
Mynd 2: Þróun á verðmæti húsnæðisverðs
m.v. laun 2000-2012
Myndin sýnir að laun hafa hækkað um 14% meira en lánskjaravísitalan frá janúar 2000 en vantar hins
vegar 8% upp á að hafa haldið í við lánskjaravísitöluna frá vorinu 2008.
Heimild: Hagstofa Íslands, útreikningar Vísbendingar.
að selja fá minna upp í lánin sín. Þeir hafa
því tapað peningum, rétt eins og þeir sem
keyptu sér hlutabréf.
Myndin sýnir hve mikið húsnæðisverð hefur breyst frá kaupdegi til september 2012 m.v. laun. Þannig hefur
húsnæði sem keypt var í maí 2002 hækkað í verðmæti um 15% m.v. laun meðan húsnæði keypt frá miðju
ári 2005 til ársloka 2007 hefur lækkað um 25% í verðmæti m.v. laun.
Heimild: Þjóðskrá Íslands, Hagstofa Íslands, útreikningar Vísbendingar.