Vísbending


Vísbending - 06.05.2013, Side 2

Vísbending - 06.05.2013, Side 2
2 V Í S B E N D I N G • 1 8 T B L 2 0 1 3 tekjur ársins 1987 yrðu aldrei skattlagðar. Það var einkum tvennt sem gerði þessa tilraun áhugaverða. Í fyrsta lagi stóð tilraunin einungis í eitt ár og voru því tekjuáhrif skattalækkunarinnar takmörkuð. Í öðru lagi fór skattprósentan í núll og því mátti segja að staðkvæmdaráhrifin væru hámörkuð. Þannig mætti segja að þarna hafi skapast kjöraðstæður fyrir jákvæð áhrif skattalækkunar á vinnuframlag þjóðarinnar. Í grein höfundar með Marco Bianchi og Birni Rúnari Guðmundssyni1 voru gögn um unnar vinnuvikur notuð til þess að reikna framboðsteygni vinnuafls. Í ljós kom að skattalækkunin olli vissulega auknu vinnuframlagi. Fjöldi vinnuvika jókst árið 2007 eins og sést á mynd 1. Reiknað var atvinnustig sem hlutfall heildarfjölda vinnuvikna annars vegar og hámarksfjölda vinnuvikna allra einstaklinga á vinnufærum aldri, hins vegar. Atvinnustigið stökk upp um 3 prósentustig árið 1987 og lækkaði svo aftur. Einnig kom í ljós að það var misjafnt hvernig einstaklingar brugðust við skatt- lausa árinu. Skattabreytingarnar voru bara eitt af mjög mörgu sem gerðist í lífi þeirra 9.274 einstaklinga sem voru í úrtaki okkar (4.668 karlar og 4.606 konur). Mynd 2 sýnir fjölda vinnuvikna árið 1987 á lóðréttum ás og meðaltal fjölda vinnuvikna árin 1987 og 1989 á lárétta ásinum. Takið eftir breytileikanum. Þegar gögn um tekjur þessara aðila (skv. skattframtölum) eru notaðar kemur í ljós að teygni vinnuaflseftirspurnar var 0,42 fyrir alla einstaklinga í úrtaki, 0,58 fyrir karla og 0,06 fyrir konur. Þannig hefði 10% hækkun ráðstöfunartekna í för með við aukna skattheimtu. Þá getur lækkun mjög hárra skatta aukið skatttekjur ríkisins þegar skattstofnar stækka. Það vill oft gleymast að áhrifum skattalækkana má skipta í tvennt. Annars vegar er talað um staðkvæmdaráhrif og hins vegar tekjuáhrif. Tekjuáhrifin felast í því að skattalækkun verður til þess að einstaklingur þarf ekki að vinna eins mikið og áður til þess að hafa sömu einkaneyslu. Hann getur því aukið bæði frítíma og einkaneyslu og fækkað vinnustundum sínum. Á sambærilegan hátt verður skattahækkun til þess að skuldsettur einstakingur þarf að auka vinnuframlag sitt, hann þarf að vinna fleiri klukkustundir í hverjum mánuði til þess að eiga upp í vexti og afborganir. Þess vegna getur skattahækkun aukið vinnuframlag. En hækkunin hefur líka önnur áhrif, staðkvæmdaráhrif. Skattahækkun verður til þess að einstaklingur heldur eftir lægra hlutfalli af tekjum sínum og hefur þá minni hvata til þess að vinna m.v. fastar tekjur. Hann getur þá brugðist við með því að vinna færri vinnustundir, notið frekar frístunda, vegna þess að vinnutíminn er skattlagður en ekki frístundirnar. En hvor áhrifin eru sterkari? Á Íslandi var árið 1987 gerð athyglisverð tilraun um áhrif skattbreytinga á vinnuframboð. Unnt er að nota niðurstöður hennar til þess að meta hvort tekju- eða staðkvæmdaráhrifin hafi verið sterkari. Eins og margir muna ákváðu stjórnvöld í lok árs 1986 að taka upp staðgreiðslu skatta frá og með árinu 1988. Þetta þýddi að árið 1987 yrði greiddur skattur af tekjum ársins 1986 og svo árið 1988 af tekjum ársins 1988, Skattalækkanir í gjaldeyrisskorti Gylfi Zoega Prófessor, Háskóla Íslands Mynd 1. Atvinnustig á Íslandi Í Fjármálastöðugleikaskýrslu Seðlabankans sem út kom í apríl kemur fram að þótt hrein erlend staða þjóðarbúsins – erlendar skuldir umfram erlendar eignir – sé viðráðanleg, séu fyrirsjáanlegar miklar afborganir af erlendum lánum á allra næstu árum. Fyrir utan gömlu snjóhengjuna svokölluðu (370 milljarðar kr.) og þrotabú gömlu bankanna (hrægammana!) þarf nýi Landsbankinn að greiða þeim gamla um 300 milljarða kr. árin 2015-2018. Ef við er bætt skuldum sveitarfélaga og fyrirtækja þeirra kemur út að væntanleg gjaldeyrisþörf vegna endurgreiðslna af lánum er yfir 120 milljarðar kr. á ári 2015-2018. Upp í þessar afborganir hefur landið viðskiptaafgang sinn sem er á bilinu 30 til 40 milljarðar kr. Þótt takist að semja um að greiða skuld Landsbankans á lengri tíma nægir þessi viðskiptaafgangur tæplega til þess að standa straum af fyrirséðu útflæði gjaldeyris. Við þessar aðstæður hafa komið fram hugmyndir um skattalækkanir og lækkun á höfuðstóli verðtryggðra lána heimila. Ekki hefur verið útskýrt hvernig eigi að fjármagna skattalækkanirnar nema að vísað er á hagfræðinginn Arthur Laffer sem segir að þær muni fjármagna sig sjálfar gegnum aukna vinnusemi fólks. Skuldaafsláttinn á hins vegar að fjármagna með þeim afslætti sem búist er við að erlendir kröfuhafar í þrotabúum Kaupþings og Glitnis veiti á krónueignum þrotabúanna. Í þessari grein verður reynt að svara því hvort skatta lækkanir séu skynsamlegar við núverandi aðstæður og hvort skulda- niðurfærsla hafi jákvæð þjóðhagsleg áhrif. Um áhrif skattalækkana á framboðshlið hagkerfis Í aðdraganda Alþingiskosninga í apríl var skattalækkunum lofað. Jafnframt var því haldið fram að unnt væri að lækka skatta án þess að draga saman útgjöld ríkisins samtímis, að skattalækkanir myndu greiða fyrir sig sjálfar; aukið vinnuframlag skattgreiðenda og fjárfestingar fyrirtækja stækkuðu skattstofna. Þessari hugsun er yfirleitt lýst með svonefndri Laffer-kúrfu sem sýnir hvernig hækkandi skattprósentur valda í fyrstu hækkun skatttekna en síðar lækkun vegna þess að skattstofnar minnka 20 40 60 80 100 60 65 70 75 80 85 90 95 % men total women Heimild: Iceland´s Natural Experiment in Supply Side Economics (Sjá aftast) Karlar Konur Samtals

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.