Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.01.2009, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 15.01.2009, Blaðsíða 9
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 15. JANÚAR 2009 9STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Norðuróp stendur fyrir tón- leikaröðinni Söngvarar Suð- urnesja og verða fyrstu tón- leikarnir í þessari skemmti- legu tónleikaröð laugardag- inn 17. janúar kl. 17 í Duus- húsum. Fram kemur Söng- hópurinn Orfeus en í honum eru söngvarar sem búa eða starfa á Suðurnesjum og má þar nefna Jóhann Smára Sig- urðsson, Guðmund Sigurðs- son, Stein Erlingsson, Bylgju Dís Gunnarsdóttur, Rúnar Þór Guðmundsson, Dagnýju Þ. Jónsdóttur o.fl. Á efn is skrá verða ís lensk sönglög í bland við perlur úr óperum og söngleikjum og mikið af samsöngsatriðum. Yf- irbragð tónleikanna verður létt og glæsilegt s.s. sannkallaðir Gala-tónleikar. Meðleikari á píanó er Antonia Hevesi. Aðrir tónleikar í þessari tón- leikaröð verða svo í mars þar sem fram koma enn fleiri söngvarar enda erum við Suð- urnesjamenn ríkir af góðum og vel menntuðum söngv- urum. Miðaverð er kr. 2000 og verða miðar seldir við innganginn eða í síma 661 7719. All ir eru hjart an lega vel- komnir. Söngvarar Suðurnesja: Sönghópurinn Orfeus með tónleika Hóf til heiðurs Grími Karls- syni var hald ið á veg um Reykjanesbæjar á föstudag- inn í tilefni þess að Grímur var nýlega sæmdur riddara- krossi hinnar íslensku fálka- orðu af Ólafi Ragnari Gríms- syni, forseta Íslands. Orðuna hlaut Grímur fyrir smíði báta- og skipslíkana og þótti því við hæfi að halda hófið í Bátasafninu í Duushúsum. Grímur, sem er fyrrverandi skipstjóri, hefur um árafjöld smíðað ógrynni líkana af ís- lenskum fiskiskipum og þar með stuðlað að varðveislu út- gerðarsögu landsins. Hóf til heiðurs Grími Karlssyni Fleiri svipmyndir frá heiðurs- hófinu má sjá á ljósmyndavef Víkurfrétta. VFmyndir/elg. Kostnaður við Hljómahöll hækkar Reikna má með að kostnaður við byggingu Hljómahallar- innar hafi hækkað í tæpa tvo milljarða úr 1,5 milljarði vegna hækkandi byggingarvísitölu. Ekki hefur farið fram sérstök endurskoðun eða endurmat á verkefninu. Þetta kom fram í svari Árna Sigfússonar, bæjarstjóra, við fyrirspurn Guð- brands Einarssonar á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ á þriðjudag í síðustu viku. Nám er farseðill þinn inn í framtíðina og ferðamögu- leikar þínir eru nánast ótelj- andi, segir í sameiginlegri aug- lýsingu frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Miðstöð símennt- unar á Suðurnesjum og Keili, miðstöð vísinda, fræða og at- vinnulífs sem birtist í Víkur- fréttum í síðustu viku. Þessar þrjár stofnanir efna til mik- illar kynningar á starfsemi sinni í Virkjun mannauðs á Reykjanesi sem staðsett er í byggingu 740 við Flugvall- arbraut á Vallarheiði. Kynn- ingin verður nk. laugardag og stendur frá kl. 13:00 til 16:00. Þessar þrjár menntastofnanir á Suðurnesjum bjóða upp á fjölbreyttar námsleiðir þar sem allir ættu að geta fundið sér nám við hæfi. Virkjun mannauðs á Reykja- nesi hóf starfsemi sína í síð- ustu viku. Virkjun er eins og áður segir til húsa í bygg- ingu 740 á Vallarheiði en þar er verið að byggja upp starf- semi fyrir íbúa á Reykjanesi sem leitar nýrra tækifæra í atvinnu eða námi. Þá verður Virkjun ekki síður samkomu- staður fólks sem vill breyta því áfalli sem atvinnuleysi er í ný tækifæri á atvinnumarkaði með námi, námskeiðum eða mannbætandi tómstundum og menningarstarfsemi sem einnig verður í boði í Virkjun. 1500 fermetra húsnæði Sveitarfélögin á Reykjanesi, Vinnumálastofnun, verkalýðs- félög og fyrirtæki, menntastofn- anir eins og Keilir, Fjölbrauta- skóli Suðurnesja og Miðstöð Fjölbreyttir námsmöguleikar kynntir í Virkjun á laugardaginn símenntunar á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman og bjóða upp á fjölbreytt nám fyrir þá sem leita nýrra tæki- færa. Miðstöð verkefnisins verður í VIRKJUN, rúmlega 1.500 fermetra húsnæði sem Þróunarfélag Keflavíkurflug- vallar, KADECO, hefur lagt til fyrir starfsemina. Hlýjar móttökur og skipu- lögð starfsemi Áhersla er lögð á hlýjar mót- tökur og skipulagða starfsemi, þar sem litið verði á erfiða stöðu sem tækifæri. Leitað verður eftir vinnuframlagi frá þeim stofnunum sem að verk- efninu standa en ekki síður sjálfboðaliðastarfi. Almenn- ingi er boðið að heimsækja Virkjun á daginn og fá þar fjöl- breytilega þjónustu; sálfræðiað- stoð, fjármálaráðgjöf, náms- og starfsráðgjöf o.s.frv. Vinnu- aðstaða fyrir ýmiskonar frum- kvöðlastarfsemi og aðstoð við stofnun sprotafyrirtækja, aðstaða fyrir námstengd verk- efni, fyrirlestrar, kynningar, persónuleg ráðgjöf og tóm- stundaverkefni, þátttakendum að kostnaðarlausu. Í boði verður léttur hádegis- verður og dagskrá alla daga þannig að hver og einn á að geta fundið verkefni við hæfi. Samhliða persónulegri ráðgjöf eiga „viðskiptavinir“ Virkj- unar að geta sótt fyrirlestra, íþróttaæfingar, sótt um vinnu, stofnað fyrirtæki o.s.frv. Fyrir fleiri en atvinnu- lausa Kappkostað verður að hafa ekki einungis starfsemi fyrir atvinnulausa á svæðinu heldur mun þar einnig fara fram önnur starfsemi, s.s. kennsla á vegum Keilis, Fjölbrautaskól- ans og Miðstöðvar símennt- unar, nýsprotastarfsemi, lær- dómsaðstaða fyrir nemendur o.s.frv. Verkefnið er nýmæli til að takast á við atvinnuleysi og má líta á það sem tækifæri til sjálfseflingar, menntunar og að gera einstaklinginn hæfari til frekari þátttöku í atvinnulíf- inu þegar ný tækifæri skapast á vinnumarkaði. Verkefnastjórar Virkjunar eru Ásmundur Friðriksson og Ása Eyjólfsdóttir ásamt Páli Rúnari Pálssyni sem er atvinnulaus en leggur Virkjun til starfskrafta sína.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.