Víkurfréttir - 28.05.2009, Blaðsíða 19
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 28. MAÍ 2009 19STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Það var skemmtileg tilviljun
að við útskrift sl. föstudag
hjá háskólanum að Hólum í
Hjaltadal hittust tvær aldar
upp í Keflavík, þær Camilla
Petra Sigurðardóttir og Marta
Eiríksdóttir. Háskólinn að
Hólum býður upp á fiskeldis-
og fiskalíffræðadeild, ferða-
máladeild og hestafræðideild
en skólann sækja bæði Íslend-
ingar og erlendir námsmenn,
mjög alþjóðlegur háskóli.
Camilla Petra lauk nú sínu
öðru ári við háskólann í hesta-
fræðideild en stefnir á að ljúka
þriðja námsárinu vorið 2010
en þá hefur hún hlotið allar
gráður hestafræðideildarinnar.
Marta Eiríksdóttir hóf nám sl.
haust við Hólaskóla og hlaut
diplómagráðu frá ferðamála-
deild háskólans í viðburða-
stjórnun. Þetta er annað árið
sem háskólanám í viðburða-
stjórnun býðst hér á landi.
Nemendur hestafræðideildar
útskrifast á hverju ári og bæta
við sig gráðu í hvert sinn.
Camilla Petra hefur lok ið
tveimur árum við skólann,
hún er núna hestafræðingur
og leiðbeinandi en nú hlaut
hún einnig diplóma gráðu
í tamningum. Camilla Petra
stefnir á að ljúka diplóma-
gráðu í þjálfun og reiðkennslu
að Hólum næsta vor.
Keflavíkurdætur út-
skrifast frá Hólaskóla
Ársreikningur
Sandgerðisbæjar
birtur
Ársreikningur Sand-
gerðisbæjar fyrir 2008
kom til seinni umræðu
á bæjarstjórnarfundi
fyrir helgi. Helstu
niðurstöðutölur A- og
B-hluta eru þær að
rekstrartekjur námu
rúmum 1,1 milljarði,
rekstrargjöld voru rúmir
1,3 milljarðar og fjár-
magnsgjöld 87 milljónir.
Eigið fé nam tæpum 2,2
milljörðum og skuldbind-
ingar ríflega 308 millj-
ónum. Langtímaskuldir
voru upp á rúma 2
milljarða og skammtíma-
skuldir 312 milljónir.
Sjá nánar í frétta-
safni vf.is.
EF ÞÚ VERÐUR
VITNI AÐ FRÉTT!