Víkurfréttir - 03.09.2009, Blaðsíða 25
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 3. SEPTEMBER 2009 25STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Í um fjöll un und an farna daga hefur borið á veru-
legum rangfærslum varðandi
tímalengd nýtingarsamnings
um jarð hita-
rétt indi sem
Reykjanesbær
e r e i g a n d i
að en gerð ur
h ef ur ver i ð
l e i g u s a m n -
ing ur um til
HS Orku. Margir hafa vísvit-
andi látið hafa eftir sér að
samningurinn sé til 130 ára
sem er alrangt. Hið rétta er
að samningurinn er til 65
ára og er algjörlega orðaður
í samræmi við lög sem um
slíka samninga gilda.
Í lögunum sem sett voru í
júní 2008 segir: „Ríki, sveitar-
félögum og félögum í þeirra
eigu, sbr. 3. mgr., er heimilt
að veita tímabundið afnota-
rétt að réttindum skv. 2. mgr.
til allt að 65 ára í senn. Hand-
hafi tímabundins afnotaréttar
skal eiga rétt á viðræðum um
framlengingu réttarins þegar
helmingur umsamins afnota-
tíma er liðinn.“ Í samningum
Reykjanesbæjar og HS orku
segir m.a.:
„Með samningi þessum lýsir
landareigandi (Reykjanesbær,
innsk.höf.) því yfir að hann
framselji rétthafa (HS Orka,
innsk.höf.) allan rétt til þess
að nýta eða sækja um rann-
sóknarleyfi og nýtingarleyfi að
jarðhita og grunnvatni á eftir-
farandi landareignum sínum
til næstu 65 ára.“
Enn fremur segir: „Það er jafn-
framt grundvallarforsenda
samnings þessa að viðræður
um framlengingu afnotasamn-
ingsins munu eiga sér stað
þegar helmingur þessara 65
ára er liðinn, þ.e.a.s eftir u.þ.b.
32 ár. Skulu þær viðræður taka
mið af þeirri forsendu beggja
aðila þessa samnings, að HS
Orka hf. eigi rétt á framleng-
ingu réttarins eftir lok þessa
samnings í samræmi við gild-
andi lög“.
Eins og leiðir af þessum til-
vísunum er rétt að benda á
að Reykjanesbær hefði aldrei
fengið að kaupa lönd og auð-
lindir á Reykjanesi og í Svarts-
engi nema um leið hefði verið
gerður samningur um nýtingu
auðlindarinnar sem áður var
alfarið í höndum HS Orku.
Fyrir tilstuðlan meirihluta bæj-
arstjórnar Reykjanesbæjar eru
löndin og auðlindirnar hins
vegar nú í eigu Reykjanes-
bæjar en samið hefur verið við
HS Orku um nýtingu til 65
ára og fær Reykjanesbær tugi
milljóna króna á ári í afgjald
fyrir þá nýtingu.
Böðvar Jónsson.
Höfundur er bæjarfull-
trúi í Reykjanesbæ og
formaður bæjarráðs
Böðvar Jónsson bæjarfulltrúi skrifar:
Samningar algerlega í
samræmi við lög
Nýr organisti Grindavíkurkirkju
Kári Allansson hefur verið ráðinn nýr organisti í Grindavík-
urkirkju í stað Tómasar Guðna Eggertssonar sem hefur ráðið
sig til Seljakirkju. Kári er 27 ára og hefur verið organisti við
Óháða söfnuðinn undanfarin tvö ár. Hann er að ljúka námi
við tónskóla Þjóðkirkjunnar og jafnframt að útskrifast á
kirkjutónlistarbraut Listaháskólans.