Heima og erlendis - 01.07.1951, Síða 1
4. árg’.
8. tbl.
Heima og erlendis
Um Islaiul og Islendinga erlendis
Júlí 1951
ÍSLENDINGAR FAGNA
Í KAUPMANNAHÖFN
IX. Hátíðahöldin 17. júní 1944.
það er engin ástæða til að draga fjöóur
yfír það, að Islendingar hér voru andstæÖir
því, aÖ skilnaóur Islendinga og Dana færi
frain á þann hátt, sem raun varÖ á. Yottur
þess er fundur sá, er hoðað var til af Islend-
ingafélagi og Félagi íslenzkra stúdenla og
haldinn var 7. maí 1943 í lnisi danska Stú-
dentafélagsins. A fundi þeim voru rúmlega
200 manns og andmælti enginn framsögu-
manni, er var Jakoh Benedikttsson, cand.
mag. og tillaga, sem stjórnir félaganna höföu
komið sér saman um áður, samþykkt án
mótatkvæóa. þótt tillaga þessi muni líklega
flestum kunnug, læt ég hana þó fylgja hér.
Hún hljóðar: „íslendingar saman komnir á
fundi í Kaupmannahöfn 7. maí 1943 tjá sig í
grundvallaratriðum samþykka ályktunum Al-
þingis 1941 í samhandsmálinu og heina
þeirri eindregnu ósk til stjórnar og Alþingis,
að fresta úrslitum þess, þangað til háöir að-
ilar hafa talazt við.
Samhandsslit án þess aö viðræður hafi
farið fram, eru líkleg til að vekja gremju
gegn Islandi annarsstaðar á NorÖurlöndum
og gera aðstöðu Islendinga þar erfíÖa, þar
sem einhliða ákvörðun Islendinga i þessu
máli yrði talin andstæÖ norrænum sam-
húöarvenjum“.
þaÖ þarf því engan að furða á því, þótt
nokkuð sundurleitar skoöanir hafí verið um
þaö, að fagna þessum viðburði hér, eins og
málið var afgreitt, eða á hvern hátt það
skyldi gert. Á stjórnarfundi íslendingafélags
og haldinn var 17. maí, er rætt um hvaö
gera skuli. Mér er það engin launung, að
eg var á móti því á þessum fundi, aÖ þessa
viÖburÖar skyldi fagnaÓ í þaÖ sinn, en meiri
hluti stjórnarinnar var andvígur þeirri til-
Myndin sýnir borðhaldið
í Studenterforeningen 17.
júní 1944.
17