Heima og erlendis - 01.07.1951, Page 4

Heima og erlendis - 01.07.1951, Page 4
A SLOÐUM ISLENDINGA í KAUPMANNAHÖFN íslendingar á vegi minum í Höfn. II. Finnur Jónsson. Hann var glæsilegur maÖur á velli og ákveðinn í skoðunum sín- um og framkomu allri, eða þannig kom hann mér fjrir sjónir. Hann var þur á manninn, en næðust samræöur viö hann, var hann vingjarnlegur í svörum, en ekki heí’Öi ég árætt að andmæla honum að ráði. Kynni mín af honum helguöust af vinnu minni í prentsmiÓju S. L. Möllers. Hann átti mörg sporin þang- aÖ, en kom aldrei, aÖ ég muni, lengra en á skrifstofuna. En þekkt- ur var hann í setjara- salnum, og þegar kom handrit frá lionum var, á mínum tíma, aðeins um tvo setjara að ræða er gætu þóknast hon- um, hvað vandvirkni snerli, því Finnur var kröfuharöur á því sviði. Af einhverjum ástæð- um hafði verkstjórinn einu sinni falið nýj- um manni í prentsmiðjunni setningu á ein- hverju eftir Finn. þegar próförk svo kom, fylgdu henni hoÖ frá Finni um, að liann æskti þess, aö einhver hinna gömlu setjara hanssetlu verkið, og var maðurinn þvi látinn hætta setningunni. Líkt fór fyrir mér, ég hafÖi sett eitthvert málfræÖirit eftir hann og próförk var send til Noregs, en þar var Finnur þá í sumarleyfí. þegar próförkin kom aftur, fylgdi lienni bréf, er ekki verður sagt um, að liafí verió meömæli meÖ mér, og slapp eg við frekari vinnu við þaÖ verk. En ég setti Sögu Arna Magnússonar eftir Finn, en fekk engar ákúrur fyrir það. þótt mér þætli Finnur kaldur í viðmóti, fannst mér mikið til hans koma, og dáöist aö járn-vilja hans og starfsþreki. Hann var hamhleypa viö vinnu, og munu fáir hafa staöið honum á sporÖi, þeirra íslenzku fræði- manna, er þá voru hér, nema ef vera skyldi þorvaldur Tlioroddsen. Eftir lát Melsteös varð Finnur formaður FræÖafélagsins. Eins og oflar, var litið um vinnu í prentsmiðjunni, og ekki von á neinu íslenzku verki, nema JarÖahókinni, sem enn var ekki lokiÓ viÖ að fullu. Yerkstjórinn gerði mér aðvart um ástæður, og spurÖi hvort ég gæti ekki útvegaÖ handrit í Jarða- hókina. Eg herti þá upp hugann og fór á fund Finns. Hann hjó Nyvej 4 1 á FriÖriks- hergi. Finnur tók mér vel og sagÖi aó svo vel hitti eg á, að bráÖlega yrÖi fundur í fé- laginu og skyldi hann skrifa mér að honum loknum. Nokkru seinna kom svo bréf frá Finni og segir þar, að Fræðafélagið ætli að hætta á þaÖ, að láta setja JarÖabókina, og bjargaði það mér í þaÖ sinn. Einu eða tveimur árum áður en Finnur dó, fór eg enn á fund hans í líkum erind- um. Svo stóð á, aö hann hafði beÖið prent- smiðjuna um verð á vinnu fyrir Arna Magn- ússonar nefndina, en prentsmiÖjan hafði ekki heyrt nánar frá Finni. AÖ vísu átd þetta aö vera sett á vél, en gat þó haft þýö- ingu fyrir mig. Nú átti eg að grenslast efdr því hjá Finni, hvort endir væri bundinn á málið og væri svo ekki, mátti eg segja Finni, aÖ hefÖi hann lægra hoö frá annari prent- smiðju, gæti hann þó talaÓ við Möller, áöur en bindandi samningur yröi gerður. Finnur tók mér vel, og skyldi tilgang minn með þessu, en hann hafði gengið frá samningum um verkið, liann sagðist hafa haldiö þaÖ árangurslaust, aÖ tala frekar um það viÓ Möller, úr því ákveöið hoÖ lág fyrir um prentunarkostnaÖinn. Finnur hélt aÖra eins og sjálfan sig, aö segja ekki annað en þaÖ, sem svo stæöi ó- hagganlegt. þannig var þaÖ einhvern tíma á árunum 1914—18, að Finnur kom í prent- smiðjuna og vildi fá prentaÖ eitthvað fyrir FornfræÓafélagiö og sem mjög lá á. Hann hitti þar aö máli Max Möller, annan eiganda prentsmiöjunnar, en hann tjáöi Finni, að eins og stæói væri svo rnikið um vinnu í prentsmiöjunni, að engin leiÖ væri aÖ Ijúka því fyrir þann tíma, sem Finnur IiafÖi beÓið um. Finnur reiddist þessu, tók handritið meö sér og lét aldrei prenta framar fyrir það félag i prentsmiðjunni. Eg spurÖi hann einu sinni aö því, hvort ekki væri neins aÖ vænta framar frá félaginu. Svaraði hann mér því, aö sér hafí veriÖ hafnaö einu sinni og hæði hann því ekki oftar um prentun fyrir þaö félag í þeirri prentsmiöju, enda væri hann vel ánægÖur meÖ prentun þess, þar sem það var þá.

x

Heima og erlendis

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima og erlendis
https://timarit.is/publication/1100

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.