Heima og erlendis - 01.12.1956, Qupperneq 5

Heima og erlendis - 01.12.1956, Qupperneq 5
Rœtt vib eldri fslendinga í Höfn. I. Ilal)baÖ við f>órÖ Jónsson. Hann er Reykvíkingur og fæddur í Hausthúsum í Yesturbænum. Foreldrar hans voru Jón Guð- mundsson og fyrri kona hans Sigríöur J>órð- ardóttir frá Lamhastöðum á Seltjarnarnesi. þórður er ekki elstur Islendinga hér, hvorki að árum né veru hér í landi. En eg liefí kosið að leita fyrst til hans um það, sem eg ætla þessum kafla að fræða lesendur um. þótt mjög sé ónæðis- samt á heimili þórðar og Steinunnar konu hans, sökum hinnar sífelldu gestakomu, vannst mér þó næði til nokkurra spurninga og þórði að svara þeim í næði. — Mér hefir skilist að þú hafír komið til Hafnar fyrsta sinn, sem háseti á einu skipa Sameinaða gufuskipafélagsins. Af því dreg eg þá ályktun, að þú munir ekki hafa ætlað þér að ílendast hér, og þó hefir þú nú bráð- um fímmtiu ár að baki þér hér. — Alveg rétt. Eg kom hingað sem háseti á einu skipa Sameinaða félagsins árið 1904, var í siglingum í fjögur ár og kom síst til hugar að ílendast hér. Og nú hefi eg verið búsettur hér í fímmtíu og tvö ár. — Svo giftist þú hér og komst að við toll- þjónustuna. Voru engin vandkvæði fyrir þig þá sem Islending, að fá slíka stöðu? — Ekki get eg sagt það. Eg var þá trú- lofaður Steinunni konu minni, sem þá var hjúkrunarkona hér og henni leiddust sigl- ingar mínar, svo eg fór að leita mér stöðu í landi, og fekk þá vinnu sem pakkhúsmaö- ur hér við höfnina og þá gifturn við okkur. En svo sendi eg umsókn um stöðu við toll- þjónustuna og lét fylgja henni meðmæli sem eg hafði, og að hálfu ári liðnu, fekk eg svar um, að eg gæti fengiö stöðu við tollþjón- ustuna. Islendingar voru þá taldir danskir ríkishorgarar, svo það var ekki annar hæng- ur á að fá þessa stöðu en sá, að eg varð að leysa af hendi herskyldu og var í sjóliðinu hálft ár. Lög skipuðu svo fyrir þá, að ef Is- lendingur búsetli sig hér inna 35 ára aldurs, skyldi hann gegna herskyldu, og eg veit um Islendinga, sem fóru heim innan þessa ald- urstakmarks, en komu svo aftur, þegar þeir voru komnir yfír aldurstakmarkið fyrir her- skyldu, og gátu þeir þá verið hér óáreittir áfram. þessar útgöngudyr gat eg ekki notat, eg var giftur, og með umsókn um stöðu við tollþjónustuna var það ljóst, að eg ætlaði mér að ílendast hér. — Eg hefi aldrei álitið tollþjónustu áhættu- stöðu, en hefír ekki ýmislegt það orðið á vegi þínum, sem hrosa mætti að'í — Hvort tollþjónustan er áhættustaða eða ekki fer eftir því, hvernig á það er litið, til dæmis getur maður oft orðið fyrir mútuhoð- um og bar mjög á því eftir fyrri heimsstyrj- öldina. Margir yngri tollþjónar höfðu látið leiðast inn á þá braul að ófriðnum loknum, og mistu fyrir það stöðu sína. þá kom það líka ekki ósjaldan fyrir, að ráðist væri á toll- verðina, einkum á fyrri slyrjaldarárunum. Voru það helst Danir, er voru handbendi þjóðverja við smyglun. það hefir þó aldrei verið ráðist á mig, en eg hefi komið mörg- um til hjálpar í slíkri aðför. Að sjálfsögðu hefír ýmislegt skoplegt orðið á vegi mínum í tollþjónustunni, en sleppum því. — Og nú hefir þú lagt árar í bát, eftir hvað{ Fjörutíu ára þjónustu eða meir? — Já, eftir fjörutíu og fjögurra og hálfs árs starf, og sakna þess, því síðustu tíu árin hafði eg þaó næðissamt, vann ávailt á sama stað og með góðu og skemmtilegu fólki. — Var nokkur fastur félagsskapur meðal Islendinga hér, er þú komst hingað, og hvernig var honum háttað? — það var Islendingafélag hér þá, en eg kom þar varla nokkurn tíma, var á sjónum og lítið í landi, þegar til Hafnar kom. Seinna kynntist eg íslenskum iðnaðarmönn- um hér, og þeir höfðu með sér félagsskap og meðal annars söngkór, er Sigfús Einars- son stjórnaði. — Eg hefi hugboð um, aö þúmunir vera sá meðal islenskra alþýðumanna hér, er á mest bókasafn. Er það nokkuð sérstakt, sem þú leggur áherslu á að safna? — já, jeg á talsvert af hókum, mest nýrri hókmenntir að undanskyldum Islendingasög- unum. Eg hefí þó ekki lagt áherslu á neina sérgrein bókmennta, eg á flest af því, sem út hefír komiö eftir Halldór Laxness og þor- herg þórðarson, og talsvert af bókum Krist- manns Guðmundssonar, Hagalíns og Gunn- ars Gunnarssonar. Ennfremur íslenskar ævi- minningar og talsvert eftir skandínav. rithöf. 13

x

Heima og erlendis

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima og erlendis
https://timarit.is/publication/1100

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.