Heima og erlendis - 01.12.1956, Qupperneq 6

Heima og erlendis - 01.12.1956, Qupperneq 6
— Og svo a5 síðustu. Heimili ykkar hjón- anna hefir ávallt staðiÖ opiÖ fyrir Islend- ingum aÖ heiman öll ykkar hjúskapar ár. Hefir þaÖ ekki haft mikla aukavinnu í för meö sér fyrir ykkur hjónin? — Islendingar hafa ávallt veriÖ velkomnir til okkar, og hvaÖ snertir fyrirhöfn á því sviÖi, þá höfum við aldrei taliÖ hana eftir okkur, enda hafa þeir landar, sem til okkar hafa komið, sjaldan veriÖ sem gestir, heldur eins og heima lijá sér, og þá hjálpað til, ef mikið hefir verið aÖ gera. Svo kveð eg húsráðendur þessa merka heimilis á Austurhrú. NeÖan af götunni sé eg skuggana af löndum mínum á glugga- tjaldinu, og því lengra sem líður á kvöldið, því íleiri verða skuggarnir á gluggatjaldinu. En einhvern tíma liverfa skuggarnir með öllu, Ijósin slokna og minningarnar einar reika um tómar stofurnar. — En þess veröi langt að bíÖa! Islendingar á vegi mínum í Höfn. Sigtryggur Kaldan, læknir. Hann hét upp- runalega Sigtryggur Eiríksson, en árið 1917 tók hann sér nafnið Kaldan. Hann var fædd- ur í Reykjavík 10. júní árið 1889 og foreldr- ar hans voru Eiríkur þorkelsson, sjómaður og kona hans Margrét Guðmundsdóttir. Leiö okkar lá ekki meira saman í æsku okkar í Reykjavík en jiaÖ, að við rétt könn- uðumst liver við annan, en þegar við svo hittumst hér í Höfn, lieilsuðumst viÖ eins og viö hefðum verið æskuvinir. I sjálfu sér var þetta Siglryggi eólilegt, hann var hlátt áfram og vingjarnlegur í viðmóti og það var samlandi hans og „sveitungi“ sem stóð frammi fyrir honum, og því skyldi kveöjan líka vera einlæg og vingjarnleg. þegar Sigtryggur liaföi lokiö læknisnámi, gerðist hann aÖstoðarlæknir viö Amtssjúkra- húsiö í Faxe á Sjálandi (1917—18), síðar var hann viÖ Helsingor Gresundssjúkrahús og Aarhus Kom. Hospital, en 1920, í mars mánuði, fluttisthann lilHelsingor og gengdi læknisstörf- um j)ar síðan til dauða- dags, vorið 1956. Hann var og járnbrautalæknir þar síðan 1921. Af þeiru spurnum sem eg hefi af Sigtryggi, var hann í áliti sem læknir og ekki síÖur í áliti fyrir mannkosti sína, öll umgengni hans var blátt áfram og ljúfmannleg og hjálpsemi hans er viðhrugÖið. þeir sem höfðu kjörið hann til læknis síns, höfðu tekið tryggð við hann til hinnstu stundar. Sigtryggur sótti sjaldan fundi Islendinga- félags, en væri eitthvað sérstakt um að vera, leitaðist hann fyrir um það hjá mér sím- leiðina, hvort þaÖ yrÖi nokkrum vandkvæö- um bundið aÖ komast inn á fundinn, þótt hann kæmi seinna en skyldi. MeÖ Sigtryggi er í valin fallinn góður Is- lendingur, sem j)jóð hans mun ávallt njóta, meðal þeirra er kynntust honum. Bókasafn íslendingafélags. það fylgdu því heillaóskir úr hlaði, þegar það var sett á stofn fyrir fimm árum síðan. þaö haföi oft verið rætt um nauðsyn þess, en þó ekki oröiö úr framkvæmdum, aðallega vegna vönt- unar á fé. Safnið er til orðiÖ fyrir velvilja íslenskra hókaútgefenda og rithöfunda, sem gáfu Islendingafélagi hækurnar og seinna kejrpti svo félagiö hækur að auki, og við það hefur setið síöan. Frá upphafi er það við safnið að athuga, að til þess er gefið af tilviljun — það gat ekki verið öðru vísi, enda víst einkis sér- staks óskað af hókum. þetta veldur því, aÖ bókaskápurinn er fullsettur, en mikið í hon- um af hókum, sem enginn hefir hug á að lána og lesa, en hæöi er, að félagið hefir takmarkað húsrúm fyrir bækurnar — nýtur velvildar Dansk-Isl. Samfunds — og hefir j)á heldur ekki fé til þeirra framkvæmda er þyrfti, til að færa út kvíarnar. j)á er sú hlið málsins, sem eiginlega er mest um vert, sem sé útlánin, og er engu að gapa af, hundrað útlán á ári, stundum kannske meira og stundum minna en það, af rúmum tvö hundruð manns í félaginu í Kaupmannahöfn. það getur naumast kallast verulegur áhugi, þegar litiÖ er á höfðatölu félagsins. Ætli þaö sé oílágt aö ætla, að 20 til 30 manns láni hækur félagsins árlega. MeÖ góðum vilja má gefa Islendingafélagi nokkra sök á þessu, það er hundið við skrif- stofutíma D.-I.S., en hann er fimm daga vik- unnar kl. 13—16. Af því að það gat hugs- ast, aö þessi tími hefði áhrif á útlánin, voru útlán einu sinni í viku líka kl. 20—21, en 14

x

Heima og erlendis

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima og erlendis
https://timarit.is/publication/1100

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.