Heima og erlendis - 01.12.1956, Page 8

Heima og erlendis - 01.12.1956, Page 8
nægilegt rúra, þaft er borÖ eftir endilöngu gólfi og geta setiÖ viö þaö 20—30 manns, en auk jæss er nægilegt rúm fyrir stóla meö veggjunum, þrjóti sætin viö borÖiÓ. YiÖ sit- um hér, eins og stór fjölskylda, ræÖum um „landsins gagn og nauösynjar“, og kemur þá aÖ sjálfsögöu fyrir, aÖ hitni um of í ein- hverjum ræöumanna. En félagiÖ veitir gest- um kaffi eÖa öl. þessi aÓalfundur var í fáu fráhrugÖin öðr- um slíkum fundum félagsins, formaÖur skýrÖi frá því sem gerst hafÖi á félagsárinu og var það fátt annaÖ en hinir lögboðnu fundir fé- lagsins, þaÖ hitnaði fyrst í umræÖum, þegar lesnar voru athugasemdir endurskoðenda reikninga félagsins, en þeir eru, einkum þó annar þeirra, mjög fundvísir á smámunina, eða þaÖ fé sem fer til risnu, fundarhalda stjórnarinnar eöa til blóma eða annarra gjafa til félagsmanna viÖ sérstök vegamót í lífi þeirra. þessi upphæÖ samanlögð var rúm 700 kr. af 8000,00 kr. sem félagiÖ veltir árlega. Utgjöld viÓ stjórnarfundina voru 106 kr. Stjórnin heldur fundi sína í Ny Rosenborg (veitingastofunni) og veitir þá sjálfri sér kaffi eða öl (oftast 5 manns) og verður þá hver fundur 12—14 kr. þettað er sú ógnar upphæð, sem endurskoóendurnir amast svo mjög vió. HvaÖ viðvíkur risnufé, þá hefur stjórnin JjoriÖ þaÖ traust til for- mannsins, aÖ hann gætti hófs á því sviði. Stundum hefir stjórninni þó fundist, að hann hefÖi mátt gæta ineiri varúðar við eyöslu á risnufé. Frá öðrum endurskoðendanna kom fram tiliaga um þaó, aÓ stjórnin greiddi úr sínum vasa 300 kr. af þeim rúmum 700 kr. sem hér var aÖ ræöa um. það varÖ þó eng- inn til aÖ greiða tillögunni atkvæði, nema lluttningsmaÓur hennar. þá var stjórnarkosning. BaÖst Hoherg Petersen undan endurkosningu, eftir 6 ára veru í stjórninni. Stjórnina skipa nú: AÖal- geir Kristjánsson, cand. mag., Ármann Kristj- ánsson, kaupm., Bjarni Einarsson, sendikenn- ari viÖ Háskólan, GuÖrún Eiríksdóttir, frk. og þorfinnur Kristjánsson. þá var rætt um styrkveitingar lil Slysavarnadeildarinnar Gefj- unar og heimsóknastarfseminnar hér. En fundarstjóri ályktaði, að lillögurnar hefðu komið of seint, lil aö geta verið bornar undir atkvæði. SíÓan þennan fund, hefir Islendiugafélag engan fund haldiö, og sefur svefninum langa, þar til annan dag jóla, aö ákveÓið er að hafa jólaskemmtun fyrir börn, í samráði viÖ Stúdentafélagið. Næsti fundur verður svo, eins og venja er, nýársfagnaðurinn. — Gefjun hélt liina árlegu skemmtun sina sunnudaginn 11. nóvemb. í Officersforeningen H. C. Andersens Boulevard 20. Skemmtu þar Wandy Tworek, fiðluleikari og Einar Kristj- ánsson, óperusöngvari, aðstoöaöur af Axel Arnfjörð, píanóleikara. FormaÖur deildar- innar Jón Helgason, stórkaupm. setti fund- inn en síra Finn Tulinius sagöi frá Skál- holtshátíöinni síÓastliðiÖ sumar. Skemmtun- ina sóttu rúml. hundrað manns. — Fullveldishátíð hélt StúdentafélagiÖ laugar- daginn 1. des. í Karnappen, Niels Hemming- sensgade 3. Dr. SigurÖur Nordal, ambassa- dor flutti erindi og Elísabet Haraldsdóttir, frú lék á klarinett. Lauk skemmtuninni meÓ dansi. — StúdentafélagiÖ er ávalt í fullu fjöri, hefir hver fundurinn rekió annan síðan í septem- lier. Hefi eg einhversstaðar rekist á meiri- háttar ályktun frá félaginu í sambandi viÖ þrílitu ríkisstjórnina heima. þaÖ sem þó helst vakti athygli mína, var brifning Al- þýðublaÖsins og Tímans yfir þessari álykt- un Stúdentafélagsins. — Eg veit ekki hvers eg á aÖ njóta, en vinir mínir á Islandi höfÓu sent mér farmiÖa meÓ flugvél háðar leiðir. Tilefnið var, að hinir sömu vinir mínir höfðu annast útgáfu bókar eftir mig og heitir: I útlegð. Bókin fjallar um líf mitt heima og hér, er saga almenns verkamanns, sem þó hefir vasast í lleiru, en alþýÖumenn almennt. Skyldu landar mínir hér finna hvöt hjá sér til aÖ eignast bókina, fæst hún lijá Armanni Kristjánssyni, Norre Voldgade 52 og kostar 25 danskar kr. Stjórn Islendingafélags hefir veitt 300 kr. til heimsókna-starfseminnar, eins og undan- farin ár. Er tveimur ætlaÖ heim aÖ sumri. IIEOIA OCí ERLENDIS ÚTGEFANDI OG RITSTJÓRI: þORFINNUR KRISTJÁ NSSON ENGTOFTEVRF 7, K0BENHAVN V. ★ Blaðið kemur út fjóröa livern mánuð. VerÖ árgangsins í Danm. kr. 4.50. Prentað hjá S. L. Meller, Kaupmannahöfn.

x

Heima og erlendis

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima og erlendis
https://timarit.is/publication/1100

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.