Fagnaðarboði - 01.03.1949, Qupperneq 7

Fagnaðarboði - 01.03.1949, Qupperneq 7
FAGNAÐARBOÐI 7 Komið til mín Komið til min, állir þér, sem erfiðið og þunga eru hlaðnir, og ég mun veita yður hvíld. Matt. 11, 28. Þessi orð talar Drottinn til allra. Við erum öll þunga hlaðin á meðan við þekkjum ekki þá náðargjöf, sem Drottinn hefir búið okkur, með því að bjóða okkur að koma. Hann, sem tók á sig allt erfiðið, svo við mættum verða frjáls og þyrftum ekki að vera undirokuð af verkum Satans, sem alltaf situr á svikráðum. Hann sat um Jesú Heilagan Guðs Soninn og bauð að gefa Honum öll ríki veraldar, ef Hann félli fram og tilbæði sig. Skildi Satan ekki hafa það svipað með okk- ur, sem alltaf erum tilbúin að falla fram og elta allt, sem heimurinn hefir að bjóða. Þannig var það með mig, á meðan ég þekkti ekki náð Drottins mér til handa. Lofaður sé Drottinn. Hann sá hverjar þær hörmungar það væru að falla fram fyrir ó- vininum. Til þess enginn þyrfti þess, þá gaf Hann sjálfan sig í dauðann á Golgota. Lof sé blessuðum Drottni að Hann friðþægði fyrir mínar syndir. Hann var særður vegna vorra synda og kraminn vegna vorra misgjörða; hegningin, sem vér höfðum til unnið, kom niður á Honum, og fyrir Hans benjar urðum vér heílbrigðir. Jes. 53, 5. Hann bar þyrnikórónuna til þess að Hann gæti tekið' burt misgjörðir vorar og gefið oss kórónu lífsins og fyrir Hans benjar urðum vér heil- brigðir. Eg get ekki opinberað náðarveg Drottins eins og ég vildi í þessum fáu línum, en Hann hefir sýnt sig náðugan í sinni dýrð. I mörg ár hefir Hann verið okkar læknir. Þegar einhver er sjúk- ur, þá þurfum við ekki annað en hringja til þjóns Drottins og biðja um fyrirbæn, þá er blessaði góði Hirðirinn búinn að létta af þjáningum og allur kviði og dauði horfinn. Ekki eigum við neitt hjá Guði en Hann vill sýna okkur að Hans máttur og dýrð heldur áfram, og er jafn lifandi Miskunn Guðs varir að eilífu Þakkið Drottni, því að Hann er góður, því að miskunn Hans varir að eilífu. Svo skulu hinir endurleystu Drottins segja, þeir er Hann hefir leyst úr nauðum. Sálm. 107, 1—2. Guði sé lof, dýrð og þakkir fyrir að ég hefi orðið náðar Drottins aðnjótandi. Hann hefir fyr- irgefið mér syndirnar og þvegið mig af öllu rang- læti, með sínu blessaða Blóði, sem útrann á Gol- gota, sem sættin á milli Guðs og manna, sem friðþægingarfórn fullkomið lausnargjald fyrir syndir alls heimsins. Lofað sé dýrðlegt Nafn Jesú, sem gaf sitt heilaga lif í dauðann svo við mættum lifa eilíflega með Honum í Hans frið. Þegar syndin er fyrirgefin, — því Jesús gjörir fullkomið verk, — þá gefur Hann sinn blessaða frið, sem heimurinn þekkir ekki. Frið læt ég eftir hjá yður, minn frið gef ég yður; ekki gef ég yður, eins og heimurinn gefur. Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist. Jóh. U, 27. Komið til Jesú. Hann rekur engan frá sér, sem til Hans kemur. Það fer enginn erindis- leysu til Hans. Hann hefir allt fyrir alla og megn- ar að bæta úr þörfum vorum, andlegum og lík- amlegum. Hann er hið sanna brauð, sem niður sté af himni til að gefa heiminum líf. Hann er einnig lífsvatnið, til að drykkja hinar sárþyrstu sálir. I Honum er öll huggunin og hvíldin, því Hann hefir sigrað gröf og dauða. Hann er lækn- ir allra vorra meina. Eg vil segja ykkur frá því að Drottinn Jesús Kristur hefir læknað mig undursamlega fyrir og vakandi eins og á þeim tíma þegar Hann gekk um á jörðinni til þess að lækna, hugga og blessa. Allt frelsið er í Jesú Kristi, til þess að höndla frelsið þá þurfum við að vilja koma til Hans, sem bjó okkur frelsið. Ég þakka Drottni að Hann birtist til þess að afmá dauðann og synd- irnar fyrir mig óverðuga. Kristín M. Jónsdóttir.

x

Fagnaðarboði

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.