Fagnaðarboði - 01.03.1958, Page 7
FAGNAÐARBOÐI
7
borg, á sama hátt munuð þið sjálfir verða að flýja reiði
Drottins“.
Skömmu síðar brann Álasund svo að segja til rústa.
Var þá vestan fárviðri. Þetta skeði á bernsku-árum
mínum, og ég minnist þess, að fólk í fæðingarbæ mín-
um, Kristiansund, sagði veðurhaminn hafa verið svo
ofboðslegan, að hjálparskip þaðan, hafi ekki komist
leiðar sinnar til Álasunds, heldur orðið að snúa við til
Hustavíkur vegna veðurofsans. Ibúar Álasunds urðu að
flýja borg sína sökum hins ógurlega eldhafs og þeir
FLÝÐU SÖMU LEIÐ, UT YFIR NÖRVE, eins og
Franson hafði orðið að gera. Aðeins nokkur hús stóðu
ósködduð eftir brunann. Þar á meðal, var húsið þar sem
Franson hafði búið í, þá er hann dvaldi þar í borg. öll
húsin þar í kring, brunnu til grunna. En eigandi þessa
húss hafði fengið boð frá Drottni um að vera kyrr í
húsi sínu, og það gerði hann. Sagt er að dóttir hans
hafi viljað koma kommóðu og öðru verðmætu undan
eldinum og hafi þess vegna komið því fyrir á öðrum
stað, sem hún taldi óhultari. Þessi dragkista hennar og
hitt annað dót brann til ösku, en eldurinn snerti ekk-
ert af eignum föður hennar.
Hin brennheita trúarboðun Fransons tendraði þann
trúareld, sem bræddi saman í eina trúvakningarheild
kristniboðsfélögin í Noregi, þau stóðu sameinuð undir
hinum gullvægu einkunnarorðum: — Eining Guðs barna
og frelsun syndara.
En hvernig hefur þessum vinum okkar farnast? Ó,
að þeir tímar kæmu aftur, að við fengjum að heyra boð-
skapinn fluttan í anda fyrirrennaranna og finna hinn
sama brennandi eldmóð, sem í ríkum mæli einkenndi
allan flutning Fransons á Guðs Orði.
Svo sendi Guð enn á ný spámann sinn, síra Bai'rett.
Hann fór til Ameríku, skírðist þar í Heilögum Anda.
Kom síðan aftur til Noregs og var þá eldheitur meþód-
istaprestur, og með honum barst til Noregs tungutals-
hreyfingin
Þrátt fyrir allt þetta héldu þeir áfram að syndga
og trúðu eigi á dásemdarverk Hans;
Þá lét Hann daga þeirra hverfa í hégóma og ár þeirra
enda í skelfingu.
Ég byrjaði á postulakirkjunni og fór síðan í stórum
dráttum í gegnum söguna, dró það fram, sem okkur
er kunnast, svo við gætum fengið sem gleggst yfirlit
yfir rás atburðanna og jafnframt séð -hvar okkar kyn-
slóð er á vegi stödd. Henni hefir verið eftirlátinn mikill
og dýrmætur arfur, en er þö nú andlega snauð og tötr-
um klædd, eins og glataður sonur, er sóað hefir öllum
arfi sínum. I söfnuðum kristninnar nú á dögum er mik-
ill fjöldi frá „þriðja ættliðnum", sem kominn er inn
í söfnuðina án þess að hafa hlotið endurfæðingu. Þeir
hafa verið uppfræddir og uppaldir, já, beinlínis fóstr-
aðir inn í samfélagið án þess að hafa hlotið trúarvissu
frelsisins. Þeir geta ekki átt neina hlutdeild í hinu and-
lega samfélagi Guðs barna, heldur eru aðeins meðlimir
hvað hið ytra safnaðarform snertir. Þeir trúa ekki á
kraftaverk Drottins, þótt þeir séu barnabörn ,,feðranna“
sem trúðu. Þetta er sorgleg staðreynd sögunnar, sem
hefir hvað eftir annað endurtekið sig allt frá veldisdög-
um og falli Israels. Þegar Guð úthellir blessun sinni
er hætta á því, að mennirnir láti tælast til þess, að
setja blessuninni skorður og skipuleggja hana sem ein-
hvers konar safnaðar-réttindi og sér-eign, menn láta
freistast til þess að notfæra sér þannig Guðs óverðskuld-
uðu náð til okkar mannanna, til þess að komast til valda
og virðingar. Mönnunum hættir við að vilja ganga fram
í eigin valdi en ekki krafti Andans.
Eftir daga í hégóma koma ár í skélfingu.
Þá kemur tími reiðinnar. Gætum sjálfra okkar, því
þetta er Orð Drottins til okkar í dag. Þú syndgar, ef
þú í dag trúir ekki á máttarverk Drottins. I stað þess
að láta hæðnislega, þá er þú heyrir um máttarverk
Drottins á hinum síðustu tímum, skalt þú biðja Drott-
in um að veita þér náð í trú, — og þú munt fá að sjá
að Hann mun koma trúnni til leiðar og opinbera sig í
undrum og kraftaverkum. Sá, sem þá trúir, mun bless-
un hljóta.
Gúð blessi ykkur í Jesú Nafni. I hjarta þínu er vöknuð
heilög þrá eftir því, að fyllast hinni sömu trú og hinar
heilögu trúarhetjur fyrr á tímum — að trúa á dásemd-
arverk Drottins.
I hjarta þínu ríkir hryggð vegna þess hve trúarlífi
þínu er í mörgu ábótavant og þú hefir ekki náð að
standa stöðugur í trúnni. Andinn í brjósti þínu hrópar:
„Birtzt okkur á ný“. Endurnýja í okkur þinn Heilaga
Anda og veit endurlífgunartíma meðal okkar.
Slík bæn er Guði velþóknanleg, og sannarlega mun
Hann endurnýja þig í trúnniJNokkuð stytt í þýðin-gunni).
HVER, SEM VILL! Framháld af bls. 8.
Ef maðurinn því endurfæðist ekki fyrir Orð Guðs og
Anda hér á jörð, þá eru tækifæri hans öll úti, og Guðs-
ríkið hulið honum eilíflega.
En í dag óma hin yndislegu Orð af himni ofan:
Ef nokkur varðveitir mitt Orð, hann skal aldrei að
eilífu sjá dauðann. Hver, sem vill, hann taki ókeypis
lífsvatnið.
Hver hefir ráð á að loka eyrum sínum fyrir þeirri
himnesku náð, sem ber til okkar svo mikilvægan boð-
skap, þar sem Guð hefir gefið okkur alla möguleika,
til þess að við getum numið Orð Hans, lært að þekkja
vilja Hans, orðið hluttakar í guðlegu eðli og átt aðgang
að öllum auðæfum Hans. Einar Einarsson.
Gefið út af Sjálfseignarstofnuninni Austurgötu 6,
Hafnarfirði, simi 50075. — Afgreiðsla á sama stað. —