Fagnaðarboði - 01.01.1982, Síða 3

Fagnaðarboði - 01.01.1982, Síða 3
FAGNAÐARBOÐI 3 til hirðanna á Betlehemsvöllum. Gegnum opna himna barst söngurinn til jarðarinnar. I samfundatjaldinu ljómaði dýrð Guðs út frá kerúbunum yfir loki sáttmáls-arkarinnar. Serafarnir, er voru með sex vængi hver, boðuðu Jesaja spámanni frið- þæginguna, þegar hann gekk inn í köllun sína til spámannsverksins. Einn serafanna flutti Jesaja boð- skapinn með þessum orðum: Misgjörð þtn er burt tekin og friðþægt er fyrir synd þína. (Sjájes. 6. kap.) Lærisveinunum var gefið, fyrir opinberun Heilaga Andans, að sjá inn í himindýrð Guðs og fluttu okkur síðan erindið sem þeim hafði verið falið að kunngera. Þeir vissu, að erindið var til mannanna og okkur með því gefið að vita, hvað okkur er fyrirbúið að þiggja, þá er Guðs dýrð gleður okkur í nýrri sköpun himinsins. Þar lofsyngja hersveitir Guðs í óendanlegum fögnuði, gleði sem aldrei fellur úr gildi. Lofsöngurinn rennur fram í nýrri og nýrri aðdáun á kærleika Guðs og trúfesti í hinni nýju, himnesku kærleikssköpun Hans. Himininn er hdsæti mitt og jörðin skör fóta minna. (Post. 7:49) Hvar vilt þú, afneitarinn, vera? Hvar er staður mannsins? Hvar get ég verið án þess að mæta Skaparanum, Frelsaranum, Dómaranum? Allir verða að mæta frammi fyrir Honum. Það er óumflýjanlegt. Þá er Stefán píslarvottur leit til himins, sá hann dýrð Guðs og Jesúm standandi við hægri hönd Guðs. Þannig var Stefán huggaður, meðan grjótkastið dundi á líkama hans. Þjáningarnar urðu sem að engu, er hann leit þessa dýrð og þá um leið staðinn, þar sem honum var fyrirbúið að vera um alla eilífð með Frelsara sínum, þar sem hvorki dauði né þjáning er framar til. Allt hvarf Stefáni nema hinn eilífi, sanni veruleiki: — kominn heim. Dýrð sé Guði! Drottinn Jesús kom með Guðsríkið á jörð, svo allt sem Hans er ætti að samtengja okkur himindýrð Hans, þar sem Sonurinn er allt í öllu með Föðurnum. Hann sagði við Maríu eftir upprisu sína: .... en far þú til bræðra minna og seg þeim: Ég stíg upp til Föður míns og Föðuryðar, til Guðs mtns og Guðsyðar. (Jóh. 20:17) Spámenn Guðs áminntu lýðinn um þann veg er hann, að Guðs boði, átti að ganga. Oft fór þó svo, að menn þverskölluðust og urðu fráhverfir boðum Guðs. Þar með misstu þeir af því að ganga inn til Guðs- ríkisins. Falsspámenn og andkristar fengu að ráða stefnunni. En hvernig er ástatt fyrir okkar íslensku þjóð? Jólin, — friðarhátíðin, verður stutt og fellur í skuggann þar sem haldið er að börnunum ævintýrum um jólasveina og huldufólk í alls kyns búningi vætta og annarra kynjavera. Er ætlunin með því sú að vilja prýða og auka á hátíðargleði jólanna? Á hátíðar- og gleðistundum er oft komið saman meðal frænda og vina. En þær stundir eru iðulega biandnar sárum trega, því enginn veit hvenær stund skilnaðar ber að. Bæn Jesú fyrir lærisveinum sínum var þessi: Faðir, ég vil, að það sem þú gafst mér, — að einnig þeir séu hjá mér þar sem ég er, til þess aðþeir sjái dýrð mína, sem þú hefir gefið mér; því að þú hefir elskað mig áður en heimunnn var grundvallaður. (Jóh. 17:24) Leyfum Drottni okkar og Frelsara að höndla okkur, svo við, sem erum fædd af óforgengilegu sæði, verðum viðbúin að ganga in í dýrðina sem hinar forsjálu meyjar er höfðu búið lampa sína og gengu inn til brúð- kaupsins. Hversu margir byggja ekki á kennisetningum trúar- bragðanna og mikla þau sem eitthvað það er reynst hefði þeim áþreifanleg staðreynd og þar með gefið þeim óbrigðula vissu um fullkomna sælu. En Kristur kom ekki í heiminn til þess að efla trúarbrögð manna. Hann, Höfundur trúarinnar, kom til þess að safna okkur saman í eina hjörð, svo allir hlytu hvíld og frið Hans í sæluboðskapnum — Orði Fagnaðarerindis Hans. Dyrnar til lífsins — JESLJS sagði: Ég erupprisan og lífið... (Jóh. 11:25) Og enn fremur segir Hann, sjájóh. 10:9 Ég er dyrnar; ef einhver gengur inn um mig, sá mun hólpinn verða, hann mun ganga inn og ganga út og fá fóður. Kristur Jesús, sem var negldur á krossinn, veitir okkur inngöngu um dyr lífsins. Hann bjó okkur leið með sér inn á nýjan lífsins veg, þar sem við, frelsuð fyrir Hans fullkomna sigur á krossinum, göngum í ljósi trúarinnar. Með upprisu Drottins Jesú á páskamorgun, opnast okkur mönnunum nýjar lífsins dyr og leiðin inn í kær- leiksdýrð Guðs. Þessar lífsins dyr eru Orðið er Hann

x

Fagnaðarboði

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.