Víkurfréttir - 19.01.2012, Side 8
8 FIMMTUdagUrInn 19. janúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR
›› Víkurfréttir velja Suðurnesjamann ársins 2011 – Guðmund Stefán Gunnarsson hjá Júdódeild UMFN
Vinnan með ungmennunum á hug hans allan
og hann hefur hjálpað mörgum börnum sem
ekki hafa fundið sig í öðrum íþróttagreinum.
Auk þess sem það kostar ekkert fyrir krakk-
ana að æfa hjá Júdódeild UMFN þiggur Guð-
mundur engin laun fyrir vinnu sína sem hann
sinnir ásamt því að starfa sem kennari í Akur-
skóla í Innri-Njarðvík. Guðmundur er frábær
fyrirmynd og hefur hugsjón ungmennahreyf-
ingarinnar augljóslega að leiðarljósi. Nú er svo
sannarlega þörf á svona hugsjónafólki sem
leggur mikið á sig til að aðstoða, leiðbeina
og hjálpa í okkar samfélagi sem hefur lask-
ast á mörgum sviðum eftir kreppu. Eitthvað
sem Guðmundur gerir með bros á vör og
ánægjuna eina í laun.
Antisportisti og klunni
„Ég var hálfgerður antisportisti fram eftir
aldri ef frá er talið júdóið. Ég var í tónlistar-
skóla og prófaði körfubolta en var svolítill
klunni,“ segir hann og hlær. „Ég var einu sinni
á æfingu hjá Friðriki Ragnarssyni, sem nú er
þjálfari meistaraflokks hjá Njarðvík. Ég var þá
að sýna listir mínar og þegar ég hugðist leggja
boltann ofan í körfuna þá fór ekki betur en
svo að boltinn endaði uppi á miðjum vegg í
íþróttahúsinu. Frikki hélt að ég væri að grínast
en svo var alls ekki. Þetta endaði svo allt með
því að ég fór af æfingu og lét ekki sjá mig þar
aftur,“ segir Guðmundur og skellir upp úr.
Guðmundur er fæddur árið 1977 og er því
að verða 35 ára í ár. Hann er giftur Eydísi
Mary Jónsdóttur og saman eiga þau tvo syni
sem eru þriggja og níu ára. Guðmundur er
uppalinn í Njarðvík og er Njarðvíkingur í húð
og hár eins og oft er sagt um þá sem unna
heimahögunum.
Hann segist hafa prófað sund og ýmsar íþróttir
sem barn en það hafi ekkert legið sérstaklega
vel fyrir honum. „Ég skildi t.d. aldrei þessar
óskrifuðu reglur í boltaíþróttunum þar sem
menn voru að gefa hver öðrum „high five“
og þess háttar. Það að hittast eftir leiki og gera
eitthvað saman var eitthvað sem ég skildi ekki
heldur, ég vildi bara fara heim og slappa af.“
Það var ekki fyrr en löngu síðar þegar Guð-
mundur hóf nám í Íþróttakennaraskólanum
á Laugarvatni að hann fann sig í hópíþróttum
en hann lék á þeim tíma eitt tímabil í utan-
deildinni í handbolta og einnig körfubolta
með Þrótti Vogum en þar fann hann sig ágæt-
lega, enda stór og stæðilegur piltur.
Gunnar Örn Guðmundsson, faðir Guð-
mundar, stundaði júdó með góðum árangri
hér á árum áður og hann segir að áhuginn
hafi kviknað þegar hann hafi farið að kíkja á
æfingar með pabba sínum sem þá fóru fram í
gamla Ungó í Keflavík. Þá var hann í kringum
10 ára aldurinn. Hann hætti svo um tíma að
æfa eftir að hann lenti í slysi og missti hann af
æfingum í lengri tíma. Á því tímabili lognaðist
deildin í Keflavík út af. „Ég byrja svo aftur að
æfa þegar ég er um 18 ára en þá vorum við að
æfa í Æfingastúdíóinu. Þar voru menn eins
og Einar Karl, Ragnar Hafsteinsson og fleiri.“
Ætlunin var að stofna deild á þeim tíma en
ekkert varð úr því að sögn Guðmundar vegna
þess að einhverjir úr hópnum hafi flutt er-
lendis og þvíumlíkt.
Þá tók Guðmundur sér smá pásu aftur í rúmt
ár en byrjaði svo aftur að æfa í Reykjavík og í
Vogunum hjá Magnúsi Haukssyni. „Hann er
svona minn kennari,“ segir Guðmundur sem
hefur verið nánast samfleytt í íþróttinni síðan.
Hann segist fyrst og fremst vera áhugamaður
um íþróttina og að hópurinn í kringum
júdóið sé ávallt skemmtilegur. „Þetta er svo
fjölbreyttur hópur og stemningin er alltaf svo
góð í kringum íþróttina.“ Guðmundur segir
að eftir að hann hafi að mestu leyti hætt í
júdóinu þá hafi honum byrjað að ganga hvað
best. „Þá fór ég fyrst að skilja að þetta snerist
ekki bara um styrk, heldur meira um tækni.
Ég komst að því að þetta er ekki bara bardagi
heldur er þessi íþrótt svo miklu, miklu meira,“
segir hann og það er augljóst að ástríðan fyrir
júdóinu er mikil.
Uppgötvaði lesblindu í menntó
Guðmundur útskrifaðist úr Kvennaskólanum
í Reykjavík en þar komst hann að því að hann
hafði glímt við lesblindu alla sína tíð. Eftir út-
skrift fékk hann vinnu hjá Ólafi Thordersen
hjá Njarðtaki við sorphirðu og hafði ekkert
sérstakt í huga varðandi framtíðina. Hann fór
fljótlega að hugsa sér til hreyfings eftir fyrsta
veturinn í því starfi og ákvað að sækja um í
Íþróttakennaraskólanum en gerði sér ekki
miklar vonir um að komast þar inn. Hann
þreytti þar inntökupróf sem hann stóðst með
prýði og var í framhaldinu kominn inn í skól-
ann.
Austur og aftur vestur
Eftir að námi lauk á Laugarvatni þá lá leið
Guðmundar og konu hans, sem hann hafði
kynnst á öðru ári í skólanum, til Eskifjarðar
þar sem hann hóf kennsluferilinn. „Það var
mjög skemmtileg upplifun, nánast eins og að
fara til annars lands,“ segir Guðmundur en
hann þjálfaði m.a. fótbolta á því ári sem hann
hafði búsetu fyrir austan. Tíminn þar eystra
var mjög góður að mati Guðmundar en hann
langaði að flytjast aftur heim til Njarðvíkur.
Hann hringdi því í Gylfa Guðmundsson
skólastjóra Njarðvíkurskóla og spurði hvort
hann væri ekki með vinnu fyrir hann. „Gylfi
kvaðst ekki vita um neitt að svo stöddu en
hann ætlaði að kanna málið. Daginn eftir
hringdi Gylfi og sagði að hann væri með stöðu
fyrir mig í Björkinni hjá Njarðvíkurskóla.“ Þar
starfaði Guðmundur næstu tvö árin ásamt því
að þjálfa yngstu krakkana í sundinu. Aftur
greip ókyrrðin Guðmund en hann segist vera
dálítið þannig að hann vilji breyta mikið til og
vera á hreyfingu.
Fjögurra ára ferðalag
Á þessum tíma var góðærið hvað mest hér
á landi og þau hjónin áttu saman íbúð við
Hringbrautina í Keflavík. Þá barst þeim tilboð
í íbúðina og þau ákveða að selja. „Við fórum
strax að leita að ódýrum eignum hér á Suður-
nesjum en okkur langaði að færa okkur um
set. Þá allt í einu datt okkur í hug að fara til
Danmerkur í smá ferðalag,“ en það ferðalag
átti eftir að taka töluvert lengri tíma en ætlað
var í fyrstu.
Hjúin voru opin fyrir því að fara jafnvel í nám
þar í landi og enduðu í Álaborg þar sem þau
vissu að væri góður íþróttaskóli. „Fljótlega
datt ég inn í íþróttaháskólann og spjallaði
við fólk þar, segi hvað ég hafi lært og mér er
í framhaldinu boðinn innganga í skólann.
Þar lærði ég lyftingafræði og er með hæstu
gráðu í þeim fræðum. Eftir að ég útskrifast
þar þá dett ég inn í það að kenna þarna sem
afleysingakennari hjá 10. bekk. Ég var ekkert
sérstakur í dönskunni en kenndi ensku og
dönsku engu að síður,“ segir Guðmundur og
hlær við. Þar slysast hann svo til þess að fara
að þjálfa sund í aukavinnu. Áður hafði hann
einungis þjálfað litla krakka heima en þetta
gekk bara þokkalega vel hjá Guðmundi og
unglingarnir í sundinu náðu góðum árangri
undir hans stjórn. Í kjölfarið er Guðmundi
boðinn staða yfirþjálfara hjá félaginu sem
Víkurfréttir hafa útnefnt Guðmund Stefán Gunn-
arsson þjálfara hjá Júdódeild UMFN sem mann árs-
ins á Suðurnesjum árið 2011. Guðmundur Stefán,
sem er aðeins 35 ára, íþróttakennari og stúdent frá
Kvennaskólanum og Njarðvíkingur, hefur unnið
ákaflega óeigingjarnt starf í þágu íþróttahreyfingar-
innar á Suðurnesjum frá stofnun júdódeildar UMFN
snemma á árinu 2011. Guðmundur hefur með frum-
kvæði sínu og ótrúlegum dugnaði á stuttum tíma
byggt upp júdódeild sem hefur nú þegar látið til sín
taka í júdó, brasilísku Jui Jitsu og íslenskri glímu og
unnið til verðlauna í öllum þessum greinum. Þrátt
fyrir lítið fjármagn og takmarkaða aðstöðu telja iðk-
endur deildarinnar rúmlega 100 krakka og unglinga
sem mæta reglulega á æfingar hjá Guðmundi og
stunda íþróttina án þess að þurfa að borga neitt.
Þú lærir að verja þig og taka á
ósigri án þess að vilja hefna þín
- 35 ára Njarðvíkingur, íþróttakennari og stúdent frá Kvennaskólanum leggur líf og sál og allan sinn
aukatíma í launalausa þjálfun yfir 100 krakka sem stunda ókeypis júdó og aðrar bardagaíþróttir
„Það er lítil hætta á meiðslum
í þessu sporti. Barnaflokkarnir
eru að standa sig gríðarlega vel
og unglingaflokkarnir eru að
stíga mikið upp þessa stundina“.
Guðmundur Stefán starfar sem kennari við Akurskóla í Innri Njarðvík. Hér er hann með
nemendum sínum í 6. og 7. bekk sem voru í Legó-smiðju í gærmorgun. Guðmundur Stefán með nokkrum svellköldum júdóköppum á æfingu nú í vikunni.