Víkurfréttir - 19.01.2012, Síða 16
Gjöf sem gleður
Mikið guðslifandi er ég feginn að þurfa ekki lengur að streða við að finna jólagjöf handa frúnni. Fylgdist með hugarangri kollega minna
reyna að ákveða hvað þeir ættu að gefa betri helmingnum
þessi nýliðnu jól. Menn vilja alltaf koma á óvart og það
getur reynst þrautinni þyngri eftir því sem árin líða. Þeir
yngri eru snillingar í faginu en svo eru aðrir gamlir í hett-
unni og halda sig við skartið. Blessunarlega alltaf eitthvað
nýtt í því. Blómleg flóra nýrra hönnuða sem gefa gömlu
hundunum ekkert eftir.
Þegar ég hóf búskap með minni heittelskuðu fyrir rétt rúmum aldar-fjórðungi, vildi svo illilega til að ég klikkaði á fyrstu jólagjöfinni í hita
leiksins. Upptekinn af allt öðru! Ég get lofað ykkur því, að það var ekki
fýsileg byrjun. Árin þar á eftir urðu gjafirnar aldrei færri en tvær, fór allt
eftir fjölda barna sem bættust í hópinn. Ein gjöf frá mér og ein frá hverju
barni til að bæta fyrir skömmina. Geymi ennþá fyrstu jólagjöfina sem hún
gaf mér, til að minna mig á vesaldóminn.
Fyrir nokkrum árum ákváðum við síðan að kaupa okkur eitthvað saman, í stað þess að fara í sitt og hvoru lagi í leiðangur. Mér létti stórlega því
það getur verið snúið að finna eitthvað fernt, vel á annan áratug. Úff, hjálpi
mér! Nú þarf einungis að komast að niðurstöðu um eitthvað eitt, sem við
erum sammála um að sárlega vanti. Byrjuðum vel en svo varð þetta snúið.
Það getur reynst æði erfitt að meta forgangsröðunina og undanfarin tvenn
jól, erum við enn að reyna að ákveða hvorn hlutinn við kaupum á undan.
Þeir hljóta að koma báðir héðan af. Segir sig sjálft.
Við höfum þó flest sleppt fram af okkur beislinu undanfarin ár. Þráður viðburðanna hefur vonandi vakið okkur til umhugsunar um ógöng-
urnar sem við vorum komin í. Brjálæði í sinni verstu mynd. Stöndum þó
keik eftir á. Fékk til að mynda einn lítinn pakka þessi jólin, sem innihélt
statíf fyrir allar fjarstýringarnar í sjónvarpsholinu. Besta gjöfin í ár og
versluð í heimabyggð að auki. Gladdi mig afskaplega mikið.
vf.is
Fimmtudagurinn 19. janúar 2012 • 3. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
FIMMTUDAGSVALS
VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr
Á ÚTIVISTARVÖRUM FRÁ ELLINGSEN
ÚTSALA
OLíS-VERSLUNIN
Fitjabakka 2-4, Njarðvík
Vinur við veginn
Sandgerðingar nýttu sér þíðu um síðastliðna helgi til að leika golf á Kirkjubólsvelli. Fjölmargir kylfingar nýttu
sér tækifærið og drógu upp kylfurnar enda hefur lítið færi gefist til að leika golf að undanförnu í fannferginu.
Nokkur stöðuvötn hafa myndast á Kirkjubólsvelli en það aftraði ekki þessum vaska kylfingi sem óð út í vatn og
sló boltanum. Ljóst er að kylfingar leggja ýmislegt á sig til að stunda þessa göfugu íþrótt.
Myndina tók Ásgeir Eiríksson.
Stöðuvötn stöðva ekki kylfinga í Sandgerði