Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.09.2012, Page 4

Víkurfréttir - 13.09.2012, Page 4
FIMMTUDAGURINN 13. SEPTEMBER 2012 • VÍKURFRÉTTIR4 Leiðari Víkurfrétta Hilmar Bragi Bárðarson, fréttastjóri vf.is Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 20. september 2012. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða fusi@vf.is Veðurofsinn og sjálfboðaliðarnir Fyrsta haustlægðin kom með hvelli. Segja má að hamfarir hafi orðið á Norðurlandi þar sem stór svæði hafa verið meira og minna rafmagnslaus eftir að rafmagnsstaurar brotnuðu eins og eldspýtur undan þungum raflínum sem ísing hafði sest á í norðanbál- inu. Almannavarnaástandi var lýst yfir í Mývatnssveitinni, enda mörg þúsund fjár enn á fjöllum og víða hafði sauðfé fennt í kaf. Bændur og björgunarsveitir hafa lagt nótt við dag að bjarga fé. Snjóflóðastangir hafa verið notaðar til að finna skjáturnar sem eru margar á kafi í snjó. Því miður er þó nokkuð um dauð dýr en allt kapp var lagt á það í gær að koma dýrum í hús en talið var að allt að 12.000 fjár væru enn á fjöllum og ekki vitað um afdrif þess. Á sama tíma hefur bændum gengið illa að mjólka, bæði vegna rafmagnsleysis og þá hefur ófærð komið í veg fyrir að mjólkur- bílar kæmust á bæi til að sækja mjólkina. Fiskvinnslufyrir- tæki á þessu landsvæði voru einnig á hálfum afköstum vegna rafmagnsskorts og þar er talað um milljóna tjón. Þetta hafa verið sannkallaðar hamfarir fyrir norðan og það í fyrri hluta september. Ferðamannatíminn ekki búinn og svo virðist sem veðurguðirnir hafi ákveðið að sleppa haustinu og skella bara á hörðum vetri. Í öllum þessum fréttum af veðurham og björgunaraðgerðum honum tengdum eru sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Lands- bjargar í framvarðasveitinni. Fólk sem leggur mikið á sig í verðmætabjörgun og þar er ekki spurt að því hvort það sé dagur eða nótt. Sjálfboðaliðarnir hafa þegar þetta er skrifað unnið dögum saman í leit og björgun fyrir norðan. Þetta fólk tekur sér frí frá vinnu til að sinna björgunarstörfum. Ekki hefur ennþá komið til þess að björgunarlið frá Suðurnesjum hafi farið norður en á Suður- nesjum eru vel búnar björgunarsveitir sem geta unnið við erfiðar aðstæður. Sem dæmi um það hversu öflugar björgunar- sveitir eru á Suðurnesjum, þá eru fjórir björgunarsveitarmenn úr Reykjanesbæ nú staddir norðanlega á Grænlandi að taka þátt í umfangsmikilli alþjóðlegri björgunaræfingu þar. Mikið af búnaði var flutt frá Björgunarsveitinni Suðurnes með her- flutningavél frá Keflavíkurflugvelli til Meistaravíkur á Græn- landi. Þar verður svo æft næstu daga fyrir norðan dúk og disk, eins og það var orðað við blaðamann. Nú þegar veturinn er á næsta leiti er fólk hvatt til að hugsa til björgunarsveitanna og þeirra sjálfboðaliða sem þar starfa. Framundan eru mikilvægir tímar í fjáröflun þessara sveita. Hugsum til björgunarsveitanna. Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is Víkurfréttir ehf. Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is Útgefandi: Afgreiðsla og ritstjórn: Ritstjóri og ábm.: Fréttastjóri: Blaðamaður: Auglýsingadeild: Umbrot og hönnun: Auglýsingagerð: Afgreiðsla: Prentvinnsla: Upplag: Dreifing: Dagleg stafræn útgáfa: Góð skólabyrjun Nú er skólastarf hafið á nýju skóla- ári og er ekki hægt að segja annað en að skólabyrjunin hafi gengið vel. Það er gaman að sjá hve tilbúin börnin eru að hefja skólaárið og foreldrar hafa sem fyrr sýnt í verki að þeir hafa áhuga á skólagöngu barna sinna. Mæting þeirra þegar skólinn er settur er mikil og gefur það okkur sem í skólanum störfum aukinn kraft að sjá samstöðuna sem er að skapast í skólasamfélag- inu okkar. Upphaf skólastarfsins krefst mik- illar vinnu ef vel á að vera. Því betur sem skólastarfið er skipulagt og undirbúið því meiri von er á ár- angursríkum skólavetri. Kennarar og aðrir starfsmenn hefja undir- búning í skólanum 15. ágúst en þá þegar eru margir búnir að vera á námskeiðum eða málþingum um skólastarf. Nemendur komu svo í skólann 22. ágúst. Vegna góðs undirbúnings starfs- fólks og þess hve tilbúnir nem- endur voru að hefja skólastarfið fór það mjög vel af stað. Það hve tilbúnir nemendur voru stafar sennilega að miklu leyti af jákvæðu viðhorfi foreldra, viðhorf og áhugi foreldra hefur mjög mótandi áhrif á börnin. Nú hefur skapast sú hefð að fyrsta skóladaginn fer fram æfing í öllum skólanum í PBS. Það er eins og margir vita stuðningur við jákvæða hegðun og hefur það mikil áhrif á að skapa þann jákvæða anda sem er svo mikilvægur í skólastarfinu. Þriðjudaginn 4. september fóru svo allir kennarar í Holtaskóla, Myllu- bakkaskóla og Njarðvíkurskóla (en þessir skólar eru allir með PBS) á fyrirlestur um bekkjastjórnun í anda PBS. Fastur hluti af skólaupphafi í Reykjanesbæ er þátttaka í setningu Ljósanætur. Þá mæta nánast öll börn í bæjarfélaginu við Myllu- bakkaskóla og þar fer fram stutt setningarathöfn. Þessi atburður heppnaðist sérstaklega vel í ár enda komin reynsla á framkvæmdina. Í ár var tekin upp sú nýbreytni að tvö börn úr hverjum skóla mynduðu lítinn kór sem leiddi fjöldasönginn en hefð er að syngja Ljósanætur- lagið og Meistara Jakob á nokkrum tungumálum. Haustið er tími mikilla fundar- halda í skólum. Það er mikilvægt því við öll sem skólasamfélaginu tilheyrum þurfum að vita hvað er framundan og til hvers er ætlast af okkur. Í Holtaskóla hefur sam- skiptadagur nú þegar farið fram. Á þeim degi koma foreldrar með börnum sínum í viðtöl við kennara og þá settu m.a. margir nemendur sér markmið til að vinna að í vetur. Nú í vikunni voru svo sérstakir Við setningu Ljósanætur. Unga fólkið okkar er almennt til fyrirmyndar, hér eru útskriftarnemendur Holtaskóla sl. vor. Holtaskóli er samfélag sem einkennist af virðingu, ábyrgð, virkni og ánægju kvöldfundir með foreldrum hvers árgangs. Þessir fundir hafa verið haldnir undanfarin ár og verið vel sóttir af foreldrum. Þessir fundir eru mikilvægir til að allir aðilar geti stillt saman strengi sína strax í upphafi skólaársins. Innan skamms verður svo námskeið fyrir foreldra nemenda í 1. bekk þar sem farið verður yfir það hvernig foreldrar geta sem best staðið að lestrar- þjálfun barna sinna heima, en við teljum nauðsynlegt að nemendur fái góðan stuðning við lestrarnámið strax í upphafi. Í þeim tilvikum þar sem erfitt er að veita þennan stuðning heima munum við halda áfram að njóta stuðnings frá „Lestr- arömmum“ en sú nýbreytni hófst í fyrra og gaf mjög góðan árangur. Í næstu viku verða svo samræmd könnunarpróf í íslensku og stærð- fræði í 4., 7. og 10. bekk auk ensku í 10. bekk. Árangur okkar hér á Suðurnesjum hefur oft verið mun lakari en við hefðum viljað sjá. Allir skólar eiga dæmi um góðan árangur en stöðugleiki hefur ekki verið mikill nema í einum skóla, Heiðarskóla, sem hefur staðið upp úr hér á þessu svæði. Glögg merki eru þó farin að sjást um bættan árangur á fleiri stöðum. Af sjö könnunum eru t.d. nem- endur Holtaskóla yfir meðaltali í fjórum og í tveimur könnunum eru nemendur í Reykjanesbæ þ.e. meðaltal allra skólanna í bænum komið yfir landsmeðaltal. Þetta er góður árangur og greinilegt að sóknarhugur er í fólki. Við sjáum á þessu að það er hægt að bæta árangurinn en svona árangur næst ekki nema allir, nemendur, kennarar og starfsfólk skóla og ekki síst foreldrar taki höndum saman. Afmælisár Gagnfræðaskólinn í Keflavík var fyrst settur í október 1952. Nú eru því liðin 60 ár frá upphafi skólans. Þeir eru ófáir íbúarnir sem hafa stundað nám í þessum skóla sem fékk nafnið Holtaskóli árið 1982 þ.e. fyrir 30 árum. Allt til ársins 1999 voru einungis eldri bekkir grunnskólans í skólanum en skóla- árið 1999-2000 hafa allir árgangar grunnskólans stundað nám við skólann. Þessi tímamót munu á margvíslegan hátt setja svip sinn á skólastarfið í vetur. Að lokum vonumst við til að skóla- árið 2012-2013 verði gleðilegt og árangursríkt. Það eru sameiginlegir hagsmunir okkar allra sem hér búum að skólastarf gangi sem best. Þjónustuheim- sóknir í Garð og Voga á vegum Landsbankans Líkt og boðað hefur verið mun Landsbankinn áfram veita þeim íbúum í Garði og Vogum sem ekki geta sótt bankaviðskipti út fyrir bæinn, þjónustu í heima- byggð þó dregið verði úr starfsemi bankans á þessum stöðum. Þar er einkum um að ræða þjónustu við eldri borgara, starfsmenn fyrir- tækja sem ekki eiga heimangengt vegna starfa sinna og þá aðra sem ekki geta nýtt sér rafrænar lausnir í bankaviðskiptum. Bankinn veitir víða um landið þjónustu með sambærilegum þjónustuheimsóknum og hafa þær mælst vel fyrir þar sem þær hafa verið reyndar. Þjónustuheimsóknir í Voga verða með eftirfarandi hætti: Starfsfólk útibúsins í Reykjanesbæ mun sjá um þjónustuheimsóknir Landsbankans í Voga. Þjónustan verður í Álfagerði, íbúðakjarna aldraðra, að Akurgerði 25 alla mánudaga og miðvikudaga milli kl. 14:00 og 16:00. Hraðbanka verður einnig komið upp í verslun N1 í Vogum. Þar er opið frá 7.30 til kl. 20.00 á kvöldin virka daga, laugar- daga frá 10.00 - 20.00 og sunnudaga frá 12.00 - 18.00. Þjónustuheimsóknir í Garði verða með eftirfarandi hætti: Starfsfólk útibúsins í Reykjanesbæ og afgreiðslu bankans í Sandgerði mun sjá um þjónustuheimsóknir Landsbankans í Garði. Þjónustan fer fram í afgreiðslu bankans að Sunnubraut 4 alla þriðjudaga og föstudaga milli kl. 14:00 og 16:00. Hraðbanki er fyrir í Garði og að- gangur að honum allan sólarhring- inn. (Fréttatilkynning frá Landsbankanum.)

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.