Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.09.2012, Page 14

Víkurfréttir - 13.09.2012, Page 14
FIMMTUDAGURINN 13. SEPTEMBER 2012 • VÍKURFRÉTTIR14 VÍKURFRÉTTIR Í SÍMANN m.vf.is 2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR Þjónustumiðstöðin Nesvöllum Vikan 13. - 19. sept. nk. • Bingó • Gler-, keramik- og leirnámskeið • Handavinna • Leikfimi - dans- boltaleikfimi. • Línudans • Félagsvist • Tölvuklúbbur • Bridge • Hádegismatur • Síðdegiskaffi • Bókaútlán Föstudaginn 14. september n.k. Léttur föstudagur kl. 14:00: Kynning á velferðarþjónustu fyrir eldri borgara. Allir velkomnir. Allir velkomnir Nánari upplýsingar í síma 420 3400 eða á www.nesvellir.is/ Kirkjur og samkomur: Njarðvíkurkirkja. Fjölskylduguðsþjónusta og sunnu- dagaskóli 16. september kl. 11. Kaffi, djús og kökur á eftir í safnaðarheim- ilinu. Sjá nánar um starfið á njardvik- urkirkja.is SMÁAUGLÝSINGAR – 421 0000 NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS TIL LEIGU Til leigu fjögurra herbergja, rúmlega 100 fermetra íbúð í Holtaskólahverfi í Keflavík. Laus í september lok. Upplýsingar í síma 773 3310. Snyrtileg og góð 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í fjölbýli. Stutt er í skóla, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél. Góð íbúð og stutt í alla þjónustu. Leiga 95 þús. á mán. Upplýsingar í s. 892 9163. Hús á Florida til leigu Skemmtilegt hús með tveimur svefnherbergjum og stórum stof- um til leigu í St. Petersburg - við Mexicoflóa. Rólegt hverfi - stutt á strönd - priv.sundlaug. Úthlutun í gangi núna. Geymið auglýsinguna. Gott verð. Upplýsingar um verð og myndir á johannes@sts.is 897 2000. Einbýli í Garði. Leiga: 120.000 + rafmagn og hiti. Eignin er laus strax. 3ja mánaða bankaábyrgð. Upplýsingar í síma: 420 3700. 60m2 3ja herb. íbúð til leigu á jarðhæð á Túngötu 13 í Keflavík. 65.000 + hiti og rafmagn. Uppl. M² Fasteignasala & Leigumiðlun Hólmgarður 2c 230 Reykjanesbær Sími 421 8787. Studioíbúð Ca. 45m2 íbúð til leigu. Engar reykingar né gæludýr. Trygging. Laus strax. 690 8390, eftir kl. 18. TIL SÖLU 2ja herbergja, 70m2 íbúð við Heiðarból. Seld með yfittöku á láni plús sölulaun, greiðslubyrði láns rúmlega 50 þús. pr. mán. Uppl. í síma 421 1420. Rafmagnsskemmtari/orgel 25 þús. Eldhúsborð hvítt 7 þús., hliðarborð/rautt 3 þús., komm- óða 6 þús., stofuskápur á 22 þús. Upplýsingar í síma 846 5471. ÝMISLEGT Flóamarkaður Fálkaskáta Þriðjudaginn 25. september ætla fálkaskátar Heiðabúa að halda flóamarkað til styrktar góðs málefnis og sjálf síns. Allir velkomnir. GÆLUDÝR Perla týnd! Perla okkar er týnd, hvarf í Heiðar- hverfinu. Þeir sem hafa séð hana vinsamlegast hafið samband í síma 867 7697. AFMÆLI Fimmtugsafmæli Í tilefni fimmtugsafmælis míns sem var þann 9. júlí síðastliðinn verður opið hús hjá mér föstu- daginn 14. sept. næstkomandi í Kvikunni menningar- og auðlinda- húsi Grindavíkur, Hafnargötu 12a milli kl. 19:30 og 23:30. Kveðja Páll Valur Björnsson Meistarakverk Öll almenn trésmíðavinna, nýsmíði og viðhaldsvinna Tilboð og tímavinna síma: 821-7300 eða 821-7400. Póstfang meistarakverk@simnet.is. PARKETÞJÓNUSTA Parketslípun, lagnir, viðgerð- ir og almennt viðhald húsnæðis. Látið fagmenn vinna verkin! Parketþjónusta Árna Gunnars, s. 698 1559, arnigunnars@simnet.is ›› Skátafélagið Heiðabúar: Ég fæ margar fyrirspurnir þessa dagana um hvað sé best að gera til að verjast kvef- og flensu- sýkingum fyrir komandi vetur og datt í hug að gefa ykkur ein- falda uppskrift sem inniheldur styrkjandi næringar- og plöntu- efni sem efla ónæmiskerfið. Hvet ykkur til að nota algeng krydd sem forvörn eins og kanil, engifer, cayenne pipar, hvítlauk, turmerik og negul. Allt eru þetta virkar og öflugar lækningajurtir sem hafa mikla virkni til að vinna gegn öndunarfærasýkingum og styðja við starfsemi ónæmis- kerfisins. Sem dæmi þ á er u k a n i l l , h v í t - laukur og neg- ull bakteríu- og vírusdrepandi fyrir mörgum örverum, tur- merik og engi- fer draga úr bólgum í öndunar- færum og cayenne pipar er mjög slímlosandi. Mjög einfalt er að nálgast þessar kryddjurtir og hentugt og fljótlegt að nota þær í duftformi til að setja út í heitt vatn með lífrænu hunangi eða út í hristinga eða grænmetissafa. Tökum komandi vetri fagnandi með sterku og hraustu ónæmis- kerfi! 1 stórt glas Biotta gulrótarsafi 1 sítróna kreist 1 appelsína í bitum 1 hnefi frosnir ávextir (ananas, mangó) 1 tsk engifer duft 1 tsk turmerik duft Smá dash cayenne pipar ½-1 tsk kanill eða negull Vatn eftir þörfum -öllu skellt í blandara! Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir. www.facebook.com/ grasalaeknir.is www.facebook.com/grasalaeknir.is Ónæmisstyrkjandi C-vítamín hristingur Þann 15. september nk. heldur Skátafélagið Heiðabúar upp á 75 ára afmæli sitt. Félagið er með þeim elstu á landinu, ef ekki það elsta sem hefur starfað óslitið í svona langan tíma. Af því tilefni bjóðum við öllum Heiðabúum, ungum sem öldnum, sem og velunnurum félagsins að koma í skátaheimilið að Hringbraut 101 í Reykjanesbæ kl. 15:00 og sam- fagna með okkur. Skátastarf næsta árs er hafið og er þetta tilvalið tækifæri til að koma og hitta þá sem leiða starfið, fá upplýsingar og jafnvel skrá sig til leiks. Athugið að skátastarf er fyrir alla, fullorðna jafnt sem börn og unglinga. Stjórn skátafélagsins Heiðabúa. 75 ára afmælisfagnaður Heiðabúa Harður árekstur á Reykjanesbraut Harður árekstur varð á Reykjanes- braut um helgina, þegar tveir bílar skullu saman. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar hugðist beygja af Reykjanesbrautinni inn á Aðalgötu, sem liggur inn í Reykjanesbæ. Hann vanmat fjarlægð bifreiðar sem kom úr gagnstæðri átt og beygði í veg fyrir hana með fyrrgreindum afleiðingum. Ekki urðu slys á fólki, en fjarlægja þurfti ökutækin með kranabíl. 15 skilríkjafölsunar- mál á einum mánuði Í ágústmánuði síðastliðnum komu fimmtán skilríkjafölsunar- mál upp í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, auk tveggja mála þar sem engin skilríki voru til staðar. Fjöldi föls- unarmála nú er með því mesta sem komið hefur upp á einum mánuði í flugstöðinni. Það sem af er árinu 2012 hafa 35 fölsunar- mál komið upp í Leifsstöð en auk þess hafa fimm einstaklingar komið við sögu sem engin skilríki hafa haft meðferðis. Samtals er því um að ræða 40 mál. Á sama tímabili 2011 höfðu komið upp 19 mál. Samtals urðu fölsunar- málin 34 talsins, sem upp komu í flugstöðinni á síðasta ári. Það fylgir því góð tilfinning að geta orðið að liði. Skötu- messan er enn að styðja við bakið á góðum málefnum og einstak- lingum. Frá því í sumar hafa styrkir Skötumessunnar í Garði numið 950.000,- kr til 7 einstak- linga og 2ja félaga. Að þessu sinni styrktum við Óðin Frey Þórisson sem er 10 ára heyrna- laus drengur sem býr í Reykja- nesbæ. Óðinn Freyr hefur lengi langað til að eignast iPad og þegar okkur barst það til eyrna var haft samband við Björn Inga Pálsson hjá Omnis í Reykjanesbæ og hann gaf okkur alla álagningu búðar- innar á IPad 3G sem er að verðmæti 124.000 kr. og við afhentum Óðni Frey gjöfina að viðstöddum föður hans Þóri Egilssyni og ömmu hans henni Þuríði Guðmundsdóttur í Hausthúsum í Garði. Omnis og Björn Ingi hafa alltaf brugðist vel við þegar við höfum leitað til þeirra um samstarf en fyrr í sumar gáfum við saman ungri stúlku sem lá veik á Landspítalanum IPad. Þá afhentum við Petrínu Sig- urðardóttur formanni Íþrótta- félagsins NES 100.000.- kr. styrk til starfsemi íþróttafélags fatlaðra í Reykjanesbæ. Stjórnarmenn og foreldrar í félaginu hafa aðstoðað okkur á Skötumessunni við fram- reiðslu og frágang eftir veisluna, segir í tilkynningu frá Skötumess- unni í Garði. Á myndinni eru: Þórir Egilsson, Björn Ingi Pálsson, Ingunn Rögnvaldsdóttir frá Nesi, Theodór Guðbergsson, Óðinn Freyr Þórisson, Ásmundur Frið- riksson, Petrína Sigurðardóttir, Þuríður Guðmundsdóttir ásamt Eymundi frænda Óðins Freys og Þórarinn Guðbergsson. Enn styrkir Skötumessan í Garði góð málefni ›› FRÉTTIR ‹‹

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.