Víkurfréttir - 01.11.2012, Page 4
fimmtudagurinn 1. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR4
PÁLL KETILSSONvf.is
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is
Jón Júlíus Karlsson, jjk@vf.is, GSM 849 0154
Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006
Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Útgefandi:
afgreiðsla og ritstjórn:
ritstjóri og ábm.:
fréttastjóri:
blaðamenn:
auglýsingadeild:
umbrot og hönnun:
auglýsingagerð:
afgreiðsla:
Prentvinnsla:
uPPlag:
dreifing:
dagleg stafræn Útgáfa:
RITSTJÓRN
RITSTJÓRNARBRÉF
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir
kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka
smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á
þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá
færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á
vef Víkur-frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prent-
aðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það
birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
FORSETINN Í FORVÖRN Á SUÐURNESJUM
Forsetahjónin áttu góðan dag
á Suðurnesjum á forvarnar-
daginn þegar þau heimsóttu
Grunskóla Sandgerðis, Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja og
Myllubakkaskóla. Eins og
alltaf vekur heimsókn þeirra
athygli og það var gaman að
sjá hvað unga fólkið okkar tók
vel á móti þeim. Tilefnið var stórt;
vekja athygli á forvörnum gegn fíkni-
efnum, áfengisneyslu og reykingum
en árangur í þessum efnum hefur
verið mikill á undanförnum árum og
Íslendingar í fremstu röð.
Forsetinn segir í viðtali við Vef-TV
Víkurfrétta (á vf.is) að það sé einkar
ánægjulegt hvað ungmenni á Íslandi
séu glæsileg. Þau vilji njóta meiri sam-
vista með foreldrum sínum, það sé
ekki lummó. Þau séu dugleg að stunda
íþróttir og æskulýðsstarf og þau séu
virkilega að meðtaka þau skilaboð að
því lengur sem þau bíði með
það að hefja áfengisneyslu,
þeim mun minni áhætta sé á
að þau ánetjist vímuefnum.
Forsetinn sá það í heimsókn
sinni að skólastarf er í góðum
m á l u m á Su ð u r n e s ju m .
Námsárangur hefur verið á
uppleið en eitt af því sem fram kom
hjá forseta Íþróttasambandsins, Ólafi
Rafnssyni, sem fylgdi forsetahjón-
unum, en ÍSÍ er einn af samstarfsað-
ilum hans á forvarnardeginum, er að
margt af afreksíþróttafólki landsins er
sterkt á námssviðinu. Ásdís Hjálms-
dóttir, spjótkona er ein þeirra en
hún tók samhliða stífri afreksþjálfun
hæsta próf í lyfjafræði í Háskóla Ís-
lands. Afreksfólk þarf að skipuleggja
tíma sinn vel en margir hafa sýnt að
það er hægt að stunda afreksíþróttir
og ná árangri í námi á sama tíma.
StarfSbraut fjölbrautaSkóla SuðurneSja
lífi
ð
Þrettán hjól-
börðum stolið
Þrettán hjólbarðar, sem stolið var frá N1, hjól-
barðaþjónustu í Reykjanesbæ,
fundust við leit lögreglu á
Krýsuvíkurvegi, skammt frá
Hafnarfirði. Um var að ræða
svokallaða „Low Profile“ hjól-
barða, sem hurfu eftir að brot-
ist hafði verið inn í fyrirtækið.
Öryggiskerfi fór í gang og ör-
yggisvörður tilkynnti lögreglu
að þar hefði verið brotist inn.
Fylgst var náið með umferð í
nágrenni fyrirtækisins, svo og á
leiðum frá Reykjanesbæ, ef þjóf-
arnir skyldu ætla að koma þýfinu
úr umdæminu. Tveim dögum
síðar fundust dekkin svo þar
sem þau höfðu verið skilin eftir
á Krýsuvíkurvegi.
Hústökuköttum
vísað út
Lögreglan á Suðurnesjum leysti upp gleðskap katta í
mannlausu húsi í bænum um
hádegisbilið á mánudag. Íbúar
í nágrenninu höfðu séð nokkra
ketti fara inn og út um glugga
á húsinu, sem hefur staðið
mannlaust um skeið.
Er lögregla kom á staðinn voru
þar fyrir 2-3 kettir sem höfðu
gert sig heimakomna og létu fara
makindalega um sig á sófa sem
skilinn hafði verið eftir í hús-
inu. Að sögn lögreglu var partíið
leyst upp, köttunum vísað á dyr
og öllum gluggum lokað og læst
kirfilega til að koma í veg fyrir
frekara veisluhald af þessu tagi.
Starfsbraut er ein af mörgum brautum í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. Námið á starfsbraut
tekur allt mið af því að undirbúa
nemendur undir atvinnuþátt-
töku, sjálfstæða búsetu og virka
þátttöku í félagslífi og tómstunda-
starfi. Á haustönn 2012 stunda 42
nemendur nám á brautinni.
Í FS er áfangakerfi og því velja nem-
endur sér áfanga eftir áhugasviði
og færni. Á starfsbraut eins og á
öðrum brautum eru kjarnaáfangar
sem allir nemendur brautarinnar
taka og þar fyrir utan hafa þeir val
um nám sitt. Eitt af kjarnafögum
brautarinnar er starfsnám. Í starfs-
námi fá nemendur tækifæri til
þess að kynna sér ýmis störf og
mismunandi vinnustaði. Námið
felur í sér að nemendur þjálfist í
að beita mismunandi aðferðum og
verklagi. Starfsnám fer fram í skóla
og á vinnustað. Með því að tengja
námið við vinnustaði öðlast nem-
endur oft aðra sýn á námið í skól-
anum og tilgangur námsins verður
skýrari. Nemendur á fyrsta og öðru
ári fara ýmist út á vinnustaði eða fá
til sín gesti úr atvinnulífinu. Þess á
milli fá þeir fræðslu um mismun-
andi starfsstéttir, vinnustaði, lög og
reglugerðir.
Nemendur á þriðja og fjórða ári
fara í starfsnám í allt að 4-6 vikur.
Það getur verið frá einni klukku-
stund í senn upp í 10-12 klst. á
viku. Starfsnámið er aðlagað að
hverjum og einum og tekið er mið
af áhuga, færni og staðsetningu,
þ.e. áhersla er lögð á að nemendum
gefist kostur á að fara í starfsnám í
sínum heimabæ. Þegar nemendur
eru ekki úti á vettvangi er unnið
með þætti sem tengjast atvinnu-
þátttöku. Á þessari önn eru t.d.
nokkrir nemendur að vinna með
börnum, s.s. í leikskólum, grunn-
skólum og við íþróttaiðkun. Því fá
þeir fræðslu um þroska barna, sam-
skipti við börn, þagnarskyldu, mis-
munandi uppeldisstefnur og fleira.
Einnig er boðið upp á verklegt
starfsnám í skólanum. Í lok annar
búa nemendur til kynningar um
starfsnám sitt, flytja þær og bjóða
atvinnurekendum, aðstandendum
og stjórnendum.
Kennarar á brautinni hafa verið
virkir í þróunarstarfi og náms-
gagnagerð. Á þessu ári fengu undir-
ritaðar styrk til námsgagnagerðar í
starfsnámi en það er eins og áður
kom fram ein af megin stoðum
námsins á brautinni. Gaman er
að segja frá því að nemendur taka
virkan þátt í verkefninu, þ.e. með
því að prufukeyra námsefnið og
myndskreyta það.
Gott samstarf er við margs konar
fyrirtæki og vinnustaði á Suður-
nesjum og sumir nemendur hafa
staðið sig vel í starfsnáminu og
fengið vinnu að námi loknu. Dæmi
um vinnustaði sem nemendur hafa
sótt eru, bæjarskrifstofur, bílaverk-
stæði, leikskólar, grunnskólar,
íþróttamiðstöðvar, matvörubúðir,
matsölustaðir, kaffihús og svo
mætti lengi telja. Við leggjum
mikla áherslu á að finna starf við
hæfi fyrir hvern og einn og að það
muni um framlag þeirra til vinnu-
staðarins.
Við erum afar þakklát þeim góðu
viðbrögðum sem við höfum fengið
frá fyrirtækjum hér á Suðurnesjum.
Eins er alltaf gaman að fylgjast með
þeim góðu áhrifum sem nemendur
hafa haft á starfsandann innan
fyrirtækjanna og að sjá að vinnu-
framlag þeirra getur virkilega skipt
máli. Myndirnar eru af nemendum
úti á starfsvettvangi.
Þórunn Svava Róbertsdóttir
og Ásta Birna Ólafsdóttir
Starfsnámið er aðlagað að hverjum
og einum og tekið er mið af áhuga,
færni og staðsetningu, þ.e. áhersla er
lögð á að nemendum gefist kostur á
að fara í starfsnám í sínum heimabæ.
ÞaRFTU
að aUglýsa?
Hafðu samband í
síma 421 0001
eða á fusi@vf.is
Forsetinn sá það
í heimsókn sinni
að skólastarf er í
góðum málum á
Suðurnesjum.