Víkurfréttir - 01.11.2012, Qupperneq 24
vf.is
Fimmtudagurinn 1. nóvember 2012 • 43. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
Opið alla miðvikudaga frá kl. 8:00 – 16:00
Tímapantanir í síma 426 8540
Opið virka daga frá kl. 8:00 – 17:00
Frjáls mæting
Vargur í
fuglahjörð
Stemningin var góð fyrir föstu-dagskvöldinu. Dansleikur í
samkomuhúsinu
í Sandgerði og
komið að Tóta að
keyra. Vaktafrí
alla helgina og
þúsundkallarnir
í vasanum tóku
af allan vafa um
að helginni væri
borgið. Elskaði
útborgunardaga. Rúnturinn tekinn
snemma upp og niður Hafnargöt-
una. Við félagarnir köstuðum upp
á hvort upphitunin yrði póker eða
partí. Raðirnar í Ríkinu bentu til
þess að fleiri væru að hugsa um að
mæta á ballið suður í Sandgerði.
Bjössi afgreiddi okkur ungliðana
fumlaust en hafði allan varann á sér
og spurði um nafnskírteini. Plastað
og stimplað af sýslumanni. Nafn-
númerið 9154-4156 fékk afgreiðslu
um hæl enda töffarinn nýskriðinn
yfir aldursmörkin. Með sítt að aftan
og axlapúða. Næturlíf framundan.
Morguninn eftir er bankað kröftuglega. Timburmenn-
irnir óvenju snemma á ferðinni.
Þrjú þung högg til viðbótar dynja á
kjallaraglugganum. Úti fyrir stendur
veiðimaður í kanaúlpu. „Drullaðu
þér á fætur, aumingi!“ Morgun-
skíman á Klapparstígnum skaut
mér skelk í bringu. Drápssvipurinn
á þeim höggþunga hjálpaði ekki
til. Minnugur samkomulagsins frá
næturbröltinu stökk ég staðfastur
upp úr rúminu. Heilabúið fylgdi í
humátt á eftir. Þyngra en vanalega.
Lopapeysan umvafði mig hlýju og
tók úr mér mesta skjálftann. Gamla
einhleypan á sínum stað. Tók hana
í leyfisleysi. Haglaskot í mörgum
litum. Grátbað um að stoppa á
Aðalstöðinni. Samloka, kók og
prins í lúgunni. „Já, takk, opn‘ana
og kaupa glerið.“
Stefnan tekin á Snorrastaðatj-arnir. Framundan löng og erfið
ganga um hrjóstrugt Grindavíkur-
hraun. Fagradalsfjall blasti við milli
Skógfellanna. Virtist ekki langt í
burtu. Skrefin þung og óþjál. Hraun-
nibburnar hættulega lausar í sér og
reyndu á þolrifin. Og ökklana. Hefði
auðveldlega getað horfið niður um
einhverja gjána sem leyndist undir
mosanum. Skimaði eftir fugli í vel-
þeginni hvíld á grjótþýfinu. Nestis-
laus. Hvítar þústir í fjarska. Fáar en
fallegar. Þorstinn farinn að segja
til sín. Veiðieðlið óþægindunum
yfirsterkara og fyrr en varði var ég
kominn í skotfæri. Fyrsta bráðin í
sigtinu. Hvarf handan við hæðina.
Læddist upp aftur. Öryggið aftengt.
Skotið ríður af. Fyrsta og eina.
Höglin hæfðu haus og háls. Blóðið vætlaði úr fengnum
inn í rennvotan vettlinginn. Heitt
og klístrað. Úrkoman rataði ekki
rétta leið á tungubroddinn. Risið
orðið lágt í haustdrunganum og
ganglimirnir að gefa sig. Birtu að
bregða. Verð að komast í vatn.
Einhvern vökva. Svimi. Sorti fyrir
augum. Á fjórum fótum síðustu
metrana að bílnum. Kastaði mér á
regnvota vélahlífina. Sleikti hana í
angist. Með rjúpu í hendi.
FRÉTTAVAKT VF Í SÍMA 898 2222
vaktsími allan sÓlarHringinn
Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf , það breytist ekki!
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
GÆÐAMÁLNING
Deka Pro 4. Loft og
veggjamálning. 10 lítrar
5.390
Deka Pro 10
Innimálning. 10 lítrar
5.995
Deka Meistaragrunnur
Hvítur. 1 líter
1.395
Deka Meistaralakk 70
Akrýllakk. hvítt. 1 líter
1.595
Scala Panellakk
Glært. 1 líter
1.375
LF Veggspartl
0,5 litrar
675
DekaCryl 7
Innimálning. 10 lítrar
5.490
Scala málarakýtti
390
Mako ofnarúlla
315
Mako pensill 50mm
195
Málningarlímband
24mmx50m
275
20m2 málningar-
yfirbreiðsla
175
Deka Olíulakk 30
1.495
Deka Gólfmálning grá
3 lítrar
3.890
Hagmans 2 þátta Vatnsþ
/ epoxy 4kg
9.890
Deka Project
grunnur. 10 lítrar
5.590
Hágæða sænsk málning
10% gljástig, verð 10L
5.290
allir ljósir litir
Aqua 25 innimálning á böð
4 lítrar
3.990
Deka Spartl LH. 3lítrar
1.745
Málningarbakki 31x35cm
385
Málningarpappi 20mx80cm
695
Deka menja 1 líter
895
Deka Olíugrunnur
1 líter
1.295
Áltrappa 3 þrep 4.490,-
Áltrappa 5 þrep 5.690,-
Áltrappa 4 þrep
4.990
Framlengingarskaft
fyrir rúllur Tia-EP 1,2 metrar
295
Mako málningarrúlla og
bakki 25cm
895
25cm Málningar-
rúlla og grind
690
Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-16
Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18
Akureyri Furuvöllum 15. Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-14
Vestmannaeyjar Flötum 29. Opið virka daga kl. 8-18
VALUR KETILSSON SKRIFAR
FIMMTUDAGSVALS