Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.07.2008, Side 1

Bæjarins besta - 24.07.2008, Side 1
Lítill tími fyrir áhugamálin Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 400 m/vsk Fimmtudagur 24. júlí 2008 · 30. tbl. · 25. árg. – segir Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga, sem hefur átt það til að taka vinnuna með sér í rúmið. Sjá viðtal í miðopnu. Engin áhætta tekin þegar lífum gæti verið ógnað Lögreglunni á Vestfjörðum barst tilkynning á laugardags- kvöld frá gönguhópi þess efnis að þeir töldu sig hafa séð tvo ísbirni á ferð milli Hornvíkur og Hælavíkur á Hornströndum. Margir voru á ferð á þessu svæði á þessum tíma og fór því lögreglan strax að kanna málið frekar með það fyrir augum að tryggja öryggi þeirra sem þar voru. Björgunarskipið Gunnar Friðriksson var kallað úr og sent áleiðis norður með tvo lögreglumenn um borð. Þyrla landhelgisgæslunnar, TF- GNÁ, var einnig send vestur til að aðstoða við leitina. Þyrlan kom á vettvang upp úr miðnætti og var þá einnig búið að hafa samband við þá ferðamenn sem vitað var um að væru á ferð á svæðinu og þeir látnir vita. Þyrlan hætti leit um klukkan 02.30 og sneri aftur til Ísafjarðar og í framhaldi var farið yfir stöðuna. Leitað var mjög vel þar sem gönguhópurinn taldi sig hafa séð birnina og á svæðinu í kring, einnig var rætt við fólk sem hafði verið þarna á ferðinni. Ekkert kom í ljós við leitina sem bent gæti til þess að ísbirnir hafi verið þarna á ferð og var því ákveðið að hætta aðgerðum. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum er talið líklegt að um missýn hafi verið að ræða og vill lögregla koma því á framfæri að allar tilkynningar að þessu tagi eru teknar alvarlega og málin skoð- uð. Að sögn Önundar Jónssonar, yfirlögregluþjóns lögreglunnar á Vestfjörðum, sagðist göngu- hópurinn hafa séð tvo hvíta flekki sem hefðu seinna verið horfnir. Ekki getur um rollur verið að ræða en enginn bú- fénaður er á svæðinu. Mögu- leiki er að gönguhópurinn hafi séð álftir en það er sennilega eina dýrið sem heldur til á svæðinu sem gæti átt við lýsinguna. „Við skoðum auð- vitað allar svona tilkynningar. Þegar lífum fólks gæti verið ógnað tökum við enga áhættu og göngum úr skugga um að svæðið sé öruggt“, segir Ön- undur. Héraðsdómur Vest- fjarða sakfelldi á dögun- um karlmann á fimm- tugsaldri á Suðureyri fyrir að hafa aflað sér hreyfi- mynda sem sýndu börn á kynferðislegan eða klám- fenginn hátt. Refsing ákveðin 30 daga skilorðs- bundið fangelsi. Brotin áttu sér stað árið 2006 en þau vörðuðu 26 hreyfi- myndir. Við ákvörðun refsingar var til þess að líta að sumt af því mynd- efni er mjög gróft. Ákærða til málsbóta horfir hins vegar að sam- kvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur honum ekki áður verið gerð refsing og þá játaði hann brot sín skýlaust fyrir dómi. Að öllu þessu virtu þótti refsing ákærða hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi. Fullnustu refsingar verð- ur frestað og skal refsing- in falla niður að liðnum tveimur árum frá upp- kvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð. Ákærða var einnig gert að greiða 129.231 krónur í sakarkostnað og sæta upptöku á Western Digi- tal hörðum diski, sem á eru sautján hreyfimyndir, og geisladiski með sjö hreyfimyndum. – thelma@bb.is Dæmd- ur fyrir vörslu barna- kláms Þyrla landhelgisgæsl- unnar, TF-GNÁ, var kölluð úr til að aðstoða við leitina.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.