Bæjarins besta - 24.07.2008, Qupperneq 2
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 20082
Fiskafli sem landað var á Flateyri dróst mikið saman á tímabilinu janúar – júní í ár
samanborið við sama tímabil í fyrra. Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands var 526
tonnum landað á Flateyri á tímabilinu janúar – júní í ár en í fyrra var landað 4.245
tonnum. Nemur því samdrátturinn 88% á milli ára. Mestu munaði um samdrátt í
þorskafla en 211 tonnum af þorsk var landað á Flateyri í ár eða aðeins 8% af því
magni sem landað var á sama tímabili í fyrra, eða 2.525 tonnum. Einnig varð
samdráttur í landaðri ýsu um 89% og steinbít um 65%.
Mikil aflasamdráttur á Flateyri
Heilbrigðisstofnun
Bolungarvíkur
Atvinna
Heilbrigðisstofnun Bolungarvíkur óskar
eftir starfsfólki. Um er að ræða vaktavinnu
og er starfshlutfall eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Hulda Karls-
dóttir hjúkrunarforstjóri í síma 863 3811.
Sigríður til liðs
við Mosfellsbæ
Ísfirðingurinn Sigríður
Dögg Auðunsdóttir hefur
verið ráðin í nýtt starf for-
stöðumanns kynningarmála
hjá Mosfellsbæ. Sigríður
Dögg er fædd árið 1972 og
hefur starfað í tíu ár við
fjölmiðla, lengst af sem
blaðamaður. Hún hóf feril
sinn sem blaðamaður á
Morgunblaðinu og var á
þriðja ár blaðamaður á
Fréttablaðinu. Hún var
stofnandi og ritstjóri Krón-
ikunnar og aðstoðarritstjóri
DV. Sigríður Dögg vann í
þrjú ár sem fjölmiðlaráð-
gjafi hjá stóru almanna-
tengslafyrirtæki í London.
Blaðamannafélag Íslands
verðlaunaði hana sem rann-
sóknarblaðamann ársins
árið 2006 fyrir fréttir sínar
um tölvupóstamálið svo-
Reiðhjólin stóðust ekki gæðakröfur Vodafone og hafa því verið tekin úr umferð.
Vodafone inn-
kallar reiðhjólin
bæjar, hafa hjólin þegar verið
tekin úr umferð í Ísafjarðarbæ.
„Hjólin reyndust ekki eins
vel og vonir stóðu til um. Ég
veit að þetta var notað mikið,
Þingeyringar voru til dæmis
mjög duglegir að hjóla á þeim,
en þetta bilaði oft og var
einfaldlega ekki að gera sig“,
segir Margrét. Að hennar sögn
standa vonir til að reynt verði
aftur að ári liðnu en þá með
önnur og betri hjól en þau
hafi haft í sumar.
– nonni@bb.is
kallaða og greinaflokk sinn
um einkavæðingu bank-
anna. Árið áður var hún
tilnefnd til blaðamanna-
verðlauna ársins fyrir skrif
sín.
Að því er fram kemur á
visir.is verður meginhlut-
verk hennar hjá Mosfellsbæ
að efla jákvæða ímynd og
sýnileika Mosfellsbæjar
jafnt út á við sem innan
bæjarfélagsins. Þess má geta
að Sigríður sótti um starf
upplýsingafulltrúa Ísafjarð-
arbæjar í vor en dró umsókn-
ina til baka.
Fyrir ættfræðiþyrsta má
geta þess að Sigríður Dögg
er dóttir Bertu Sveinbjarnar-
dóttur og Auðuns Hálf-
dánarsonar.
– thelma@bb.is
Vodafone hefur ákveðið að
taka úr umferð hjól sem dreift
hafði verið til sveitarfélaga á
landsbyggðinni. Hjólin voru
lánuð endurgjaldslaust til
bæjarbúa og hafði verkefnið
verið reynt í mörgum bæjar-
félögum, þar á meðal á Ísa-
firði, Flateyri, Suðureyri og
Þingeyri. Hjólin reyndust þó
ekki vel og stóðust ekki
gæðakröfur Vodafone sem
ákváðu að taka hjólin úr
umferð. Að sögn Margrétar
Halldórsdóttur, íþrótta- og
tómstundarfulltrúa Ísafjarðar-
Sigríður Dögg Auðunsdóttir með fyrsta eintak
Krónikunnar ásamt eiginmanni sínum Valdimar
Birgissyni.
Flateyri.
Auðunn og Ragna Björk sigruðu á
afmælismóti Golfklúbbs Ísafjarðar
Auðunn Einarsson og
Ragna Björk Ólafsdóttir
sigruðu á afmælismóti Golf-
klúbbs Ísafjarðar sem var
haldið á Tungudalsvelli á
laugardag. Klúbburinn
fagnar 30 ára afmæli í ár og
tókst mótið, sem var styrkt
af Glitni, einkar vel enda
mikill fjöldi þátttakenda og
aðstæður eins og best verður
á kosið. Sólin skein á 104
þátttakendur sem leiddist
ekki að spila í góða veðrinu
á Tungudalsvelli sem var í
frábæru ástandi. Á föstu-
deginum fór einnig fram
liðamót milli heimamanna
og brottfluttra Ísfirðinga
sem voru valdir af Ísfirð-
ingafélaginu í Reykjavík.
Leikið var með svokölluðu
„Ryder“ fyrirkomulagi og
endaði keppnin með yfir-
burða sigri heimamanna.
Fengu þeir að launum afhend-
an nýjan farandbikar sem
gefinn er af Ísfirðingafélaginu,
Margrétarskúlptúr, sem er
nefndur eftir Margréti Árna-
dóttir, fyrsta formanni Golf-
klúbbs Ísafjarðar.
Keppni á afmælismótinu
hófst á laugardagsmorgni
klukkan 07.50 og stóð til
20.00. Þaðan var farið beint á
afmælishóf klúbbsins sem var
haldið í sal Frímúrara á Ísa-
firði. Veislunni var stýrt af
stakri snilld Guðrúnar Stef-
ánsdóttur og var gestum boðið
upp á ljúffenga þriggja rétta
máltíð. Á hófinu voru fjórir
félagar Golfklúbbs Ísafjarðar
heiðraðir af Golfsambandi
Íslands. Það voru þau Margrét
Árnadóttir, Óli Reynir Ingi-
marsson, Finnur Magnússon
og Tryggvi Sigtryggsson, nú-
verandi formaður GÍ. Golf-
samband Íslands veitti Golf-
klúbbi Ísafjarðar einnig bikar
að gjöf sem verður veittur
ísfirskum golfara sem sýnir
kurteisi og tillitsemi á golf-
vellinum.
Að sögn Tryggva Sig-
tryggssonar gekk afmælishá-
tíðin öll ljómandi vel. „Það
var auðvitað frábært veður
og allir skemmtu sér
konunglega. Það var
nokkuð um aðkomufólk hjá
okkur og hafði það á orði
hvað það hefði verið ánægt
með aðstæður hér fyrir
vestan og hve vel afmælis-
hátíðin hefði gengið“.
Sigurvegarar í höggleikjum mótsins. Frá vinstri:
Ragna Björk Ólafsdóttir, Anton Helgi Guðjónsson og
Auðunn Einarsson.