Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.07.2008, Page 3

Bæjarins besta - 24.07.2008, Page 3
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 3 Skrifstofustjóri 75% starf skrifstofustjóra Súðavíkur- hrepps er laust til umsóknar Starfssvið: Innheimta Móttaka og svörun fyrirspurna Útreikningur launa Álagning fasteignagjalda Önnur almenn skrifstofustörf Skráning gagna í One System skjala- stjórnunarkerfi, Hæfniskröfur: Góð tölvukunnátta Góðir samskipta- og skipulagshæfileikar Frumkvæði og sjálfstæði í starfi Reynsla af launaútreikningum kostur Launakjör eru samkvæmt kjarasamning- um FOS VEST. Umsóknarfrestur er til 8. ágúst n.k. og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir sendist til Skrifstofu Súða- víkurhrepps, Grundarstræti 3, 420 Súða- vík. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri í síma 456 4912 eða með tölvupósti á netfangið: omar@sudavik.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps tveggja ára verði komnar nýjar rafhlöður sem muni auka vin- sældir rafmagnsbíla. Mark- miðið með þessum kaupum eru aðallega að kynnast raf- magnsbílum og öðlast reynslu á þá. Einnig verður athugað hvernig þeir reynast á norð- lægum slóðum, sérstaklega að vetri til“, segir Sölvi. Bíllinn sem um ræðir kallast Reva og er framleiddur í Indlandi en fluttur inn í gegnum Noreg. Bíllinn vegur aðeins 745 kíló og er 2,6 metrar að lengd. Sölvi þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af hraðakstri en hámarkshraði Fyrsti rafmagnsbíll Vest- fjarða var formlega tekin í notkun fyrir skemmstu þegar Gylfi Guðmundsson, inn- kaupastjóri Orkubú Vest- fjarða, afhenti Sölva Sólbergs- syni, framkvæmdarstjóra orkusviðs, lyklana að nýjum Reva rafmagnsbíl. Sölvi mun hafa afnot af bílnum og nota aðallega til ferða innanbæjar og milli vinnu og heimilis síns í Bolungarvík. „Rafmagns- bílar hafa ekki verið mikið í notkun á Íslandi en það mun bara aukast, það er á hreinu. Tækninni fleygir fram í þess- um efnum og er talið að innan hinnar 17 hestafla vélar er 75 km/klst. Það er á hreinu að orkan er ódýr á bílinn, en bílnum er bara stungið í samband líkt og hverju öðru heimilistæki. „Það tekur 2-6 tíma að hlaða rafhlöðurnar að fullu, það fer eftir því hvort notuð er 9 eða 16 ampera hleðsla. Það er ekki víst hvað það mun kosta að reka bílinn en orkunotkunin er mjög misjöfn eftir því hvernig honum er ekið. Ég mun hafa gott yfirlit yfir hvað bíllinn notar mikla orku og þannig reikna út rekstrarkostnað“, segir Sölvi. Það er ljóst að aðal kostnaðurinn í rekstri bifreiðarinnar muni felast í rafhlöðukostnaði en skipta þarf um þær á tveggja til fjögurra ára fresti. Að sögn Sölva er kostnaður við það um 10 þúsund krónur á mán- uði ef miðað er við að skipt sé á þriggja ára fresti. Hann segir að þrátt fyrir að kosta meira en venjulegur smá- bíll, eða um 2,2 milljónir, sé hann tilvalinn í snatt innanbæjar og hugsanlega góður kostur fyrir marga Íslendinga. – nonni@bb.is Orkubúið kaupir fyrsta rafmagnsbíl Vestfjarða Bifreiðin er fyrsti rafmagnsbíll Vestfjarða. Glæsilegt vallarmet hjá Auðunni á Hvaleyrarvelli Ísfirski kylfingurinn Auðunn Einarsson setti glæsilegt vallarmet á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði á þriðja degi meistaramóts Keilis á dögunum. Auðunn lék á 63 höggum, eða átta undir pari, en fyrra metið var 64 högg. Auðunn hefur verið iðinn við að slá vallarmet í gegnum árin en þetta er í fjórða skiptið sem hann gerir það. Hann sló tvö vallarmet árið 1998 þegar hann fór Tungudalsvöll á Ísafirði á 62 höggum, eða sjö undir pari, og Vesturbotnsvöll á Patreksfirði á 69 höggum, eða 4 undir pari. Auðunn sló svo vallarmetið á Gufudalsvelli í Hveragerði þegar hann fór hringinn á 68 höggum eða fjórum undir pari.Auðunn er iðinn við að slá vallarmet. Atvinna Starfskraftur óskast til afgreiðslu- og pökkunarstarfa. Vinnutími fyrir hádegi, eftir hádegi eða allan daginn. Möguleiki á sveigjanlegum vinnutíma. Upplýsingar gefur María í Gamla bakaríinu. 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi karlmann í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hóta lögreglumönnum lífláti og líkamsmeiðingum. Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt karlmann í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ítrekað hótað tveimur lögreglumönnum, sem voru við skyldustörf á Ísafirði, lífláti og líkamsmeið- ingum. Í dómi héraðsdóms kom fram að ákærði hafi látið þau orð falla að „þetta væri síðasta vakt lögreglumann- anna og að þeir væru búnir að vera, þeir væru báðir dauðir og yrðu báðir drepnir“. Kæra var gefin út fyrir brot gegn valdstjórninni og var málið dómtekið þann 7. júlí. Ákærði viðurkenndi brot sitt og þótti refsing hans hæfilega ákveðin 45 daga fangelsi. Eftir atvikum þótti rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðn- ingu dómsins haldi ákærði almennt skilorð.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.